Dæmi um geðrof af völdum Covid-19

Ofsa­fengin við­brögð ónæm­is­kerf­is­ins við veirunni sögð geta valdið skaða á heila­frumum.

Dæmi um geðrof af völdum Covid-19

Læknar í Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Spáni og víðar segj­ast hafa greint tugi til­fella þar sem geð­rof virð­ist með beinum hætti vera rakið til Covid-19 sýk­ingar. Meðal þeirra sem fyrst vöktu athygli á þessu voru geð­læknar við South Oaks spít­al­ann í New York í Banda­ríkj­unum. Spít­al­inn byrj­aði snemma að gefa Covid-sjúk­lingum kost á sál­fræði­með­ferð til að takast á við streitu og hræðslu sem margir upp­lifa. 

Hisam Goueli, læknir við spít­al­ann, seg­ist í sam­tali við New York Times fyrst hafa veitt því athygli í vor að nokkrir sjúk­lingar end­uðu í alvar­legu geð­rofi. „Þegar ég sá fyrsta til­fellið hugs­aði ég með mér að mögu­lega væri teng­ing á milli geð­rofs og kór­óna­veirunnar en margt annað gæti komið til. Svo sá ég annað, þriðja og fjórða til­fellið á skömmum tíma. Þá vissum við að eitt­hvað væri að ger­ast,“ segir Goueli.

Fólkið upp­lifði skelfi­legar ofsjónir og heyrðu sumir þeirra raddir sem skip­uðu þeim að skaða sig og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár