20 spurningar og tveim betur

20 spurningar og tveim betur

Fyrri mynd:

Myndin hér að ofan var senni­lega tekin 1934 og sýnir hund­inn Hachiko sem beið á hverjum degi á járn­braut­ar­stöð í heima­landi sínu eftir að hús­bóndi hans kæmi heim úr vinn­unni. Eftir að hús­bónd­inn dó hélt hund­ur­inn áfram að bíða eftir hús­bónd­anum og varð frægur fyrir tryggð sína. Nú prýðir stytta af honum braut­ar­stöð­ina og bíó­mynd hefur verið gerð um hund­inn. Í hvaða landi gerð­ist þessi hjart­næma sanna saga?

1.   Fyrir fáeinum dögum var frá því sagt í fréttum á Stöð 2 að jörð, sem fór í eyði 1901, væri nú byggð að nýju. Jörðin heitir Auðnar og er í Kjálka­firði sem er einn af sjö eyði­fjörðum í röð á til­tek­inni leið. Firð­irnir sjö ganga allir inn af öðrum stærra firði. Hver er sá fjörður?

2.   Hvað heitir aðal­flug­völlur Kaup­manna­hafnar?

3.   Michael Collins, Dick Gordon, Stu Roosa, Al Warden, Ken Matt­ingly og Ron Evans. Þessir sex Banda­ríkja­menn unnu fyrir um hálfri öld ákveðið afrek, en eru – þótt mót­sagna­kennt kunni að virð­ast – fyrst og fremst frægir fyrir það sem þeir gerðu EKKI, hver fyrir sig, en tólf félagar þeirra gerðu aftur á móti. Hvað gæti það verið?

4.   Hvaða ár var Vigdís Finn­boga­dóttir kjörin for­seti Íslands?

5.   Hvað er fusilli?

6.   Árið 2002 var stofnað í Colorado í Banda­ríkj­unum fyr­ir­tæki sem brátt helg­aði sig því verk­efni að fram­leiða alveg til­tekna vöru. Þessi vara þykir mörgum vera ein­stak­lega þægi­leg, enda er hún fram­leidd úr léttu og mjög með­færi­legu efni. Í eðli sínu er hún eins konar eft­ir­lík­ing af svip­aðri vöru úr tré sem Hol­lend­ingar eru frægir fyrir. Þessi vara hefur náð svo miklum vin­sældum að fjöldi fyr­ir­tækja um allan heim er nú farin að fram­leiða mjög svip­aða vöru. En þótt varan sé þægi­leg, og margir gangi varla spönn frá rassi án hennar, þá þykir mörgum hún heldur ljót. Hvað heitir fyr­ir­tækið sem varan dregur svo nafn sitt af?

7.   Um hvað sner­ust Versala-samn­ing­arnir svo­nefndu?

8.   Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir var kosin á þing fyrir VG en sagði skilið við þing­flokk­inn fyrir all­nokkru, og á dög­unum gekk hún svo til liðs við annan flokk. Hver er sá?

9.   Hver sagði fyrstur: Ég kom, ég sá, ég sigr­aði. Eða veni, vidi, vici eins og hann orð­aði það sjálfur.

10.   Klemens Hannigan er í hljóm­sveit. Hvað heitir hún?

11.   Árný Fjóla Ásmunds­dóttir er líka í hljóm­sveit. Sú hljóm­sveit missti lík­lega af miklum frama á árinu sem er að líða. Hvað heitir hljóm­sveitin?

12.   Yfir­leitt er talið að sjúk­dóm­ur­inn covid-19 hafi komið upp í til­tek­inni borg í Kína, þótt það sé raunar ekki fullrann­sakað enn. En hvaða borg er það?

13.   Í hvaða heims­álfu er ríkið Djibouti?

14.   Here Comes the Sun heitir lag sem birt­ist á plötu árið 1969. Það var samið af hæfi­leik­a­ríkum mús­í­k­ant sem þótti þó um þær mundir stundum standa í skugga félaga sinna tveggja. Fyrr en síðar losn­aði hann þó við skugga þeirra tví­menn­inga. Hver samdi Here Comes the Sun?

15.   Á þaki bygg­ingar einnar bjó geitin Heiðrún sem mjólk­aði bjór og íbúar átu af einum vold­ugum grís sem end­ur­nýj­að­ist fyrir hverja mál­tíð. Á bygg­ing­unni voru 640 dyr sem 960 krafta­karlar gættu. Hvaða bygg­ing er þetta? 

16.   Fyrir 30 árum var frum­sýnt leik­ritið Ég er meist­ar­inn eftir Hrafn­hildi Hagalín Guð­munds­dóttur. Leik­ritið naut mik­illa vin­sælda og var sýnt víða um heim, en þar er fjallað um átök þriggja lista­manna. Og þeir lista­menn eru meist­arar – mis­miklir þó – í hverju?

17.   Winona Ryder heitir banda­rísk leik­kona sem var mjög áber­andi á síð­asta ára­tug 20. aldar og var þá til dæmis tví­vegis til­nefnd til Ósk­arsverð­launa. Síðan bar minna á henni um skeið, en 2016 kom hún aftur fram í sviðs­ljósið í afar vin­sælli sjón­varps­s­eríu sem Netflix fram­leiðir. Þar leikur hún móður tveggja bræðra sem eru í for­grunni ser­í­unnar, en brallar líka sitt af hverju sjálf. Hvað heitir ser­ían?

18.   Hvar eru Kuiper-beltið og Oort-skýið?

19.   Hvað heitir áin sem fellur um Akureyri?

20   En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústusi keis­ara, að skrá­setja skyldi alla heims­byggð­ina. Þetta var fyrsta skrá­setn­ingin og var gjörð þá er Kýreníus var land­stjóri ... hvar?

Mynd 2:

Þessi káta kona prýddi for­síðu Vikunnar árið 1976. Hún hefur lagt gjörva hönd á margt en er kannski allra þekkt­ust fyrir tón­list sem hún hefur bæði samið og sungið fyrir börn. Hvað heitir hún?

Svör:

1.  Breiða­fjörður. – 2. Kastrup. – 3. Þeir sveim­uðu allir umhverfis tunglið í Apollo-geim­förum meðan félagar þeirra lentu á tungl­inu. – 4. 1980. – 5. Pasta-teg­und. – 6. Croc-skór. – 7. Frið­ar­samn­ingar eftir fyrri heims­styrj­öld. – 8. Sam­fylk­ing­una. – 9. Julius Caesar. – 10. Hatari. – 11. Gagna­magnið. – 12. Wuhan. – 13. Afríku. – 14. George Harrison. – 15. Valhöll. – 16. Gít­ar­leik. – 17. Stranger Things. – 18. Í útjaðri sól­kerf­is­ins. „Úti í geimnum,“ er reyndar alveg full­nægj­andi svar. – 19. Glerá. – 20. Í Sýrlandi.

Mynda­spurn­ingar: Hund­ur­inn Hachiko lifði og dó í Japan. Konan heitir Olga Guðrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár