Syrgja móður sem lést af völdum veirunnar eftir hvíldarinnlögn á Landakoti

Aðal­heiður Kristín Harð­ar­dóttir segir fólk eiga að virða yfir­mæli stjórn­valda um Covid-19. Sjálf missti hún móður sína síð­ast­lið­inn sunndag úr Covid en móðir hennar smit­að­ist á Landa­koti.

Syrgja móður sem lést af völdum veirunnar eftir hvíldarinnlögn á Landakoti
Aðal­heiður og Brynja misstu móður sína af völdum veirunnar en hún var ein þeirra sem smit­að­ist í hópsmiti á Landa­koti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Aðal­heiður Kristín Harð­ar­dóttir, betur þekkt sem Alla Stína, missti móður sína síð­ast­lið­inn sunnu­dag úr Covid-19. Móðir hennar, Jóhanna Jóhanns­dóttir, 85 ára, var í hvíld­ar­inn­lögn á Landa­koti og smit­að­ist þar. Jóhanna dvaldi á Landa­koti í rúmar þrjár vikur í kjöl­far þess að hún lær­brotn­aði á heim­ili sínu. Hún var ein­kenna­laus fyrstu dag­ana, en tæpri viku síðar, eða á fimmtu­deg­inum, fékk hún lungna­bólgu sem leiddi hana til dauða. 

Þakklát fyrir starfsfólkið 

Alla Stína seg­ist vera ótrú­lega þakk­lát starfs­fólk­inu á Landa­koti fyrir að hafa sinnt móður sinni af mik­illi hlýju, nær­gætni og fag­mennsku. „Ég á ekki nógu sterk orð til að hrósa starfs­fólk­inu á Landa­koti. Ég get ekki hrósað því nóg,“ segir Alla. 

Þann 22. októ­ber greindust nokkrir starfs­menn á Landa­koti með Covid-19 og einn sjúk­lingur á öldr­un­ar­lækn­ing­ar­deild. Fjallað var um málið í fréttum þann 23. októ­ber, sama dag og Jóhanna greind­ist með veiruna. Skoðun leiddi síðar í ljós að starfs­menn hefðu borið smit inn á Landakot í kringum 12. októ­ber, sem hafði þau áhrif að hópsmit varð. Sjúk­lingar sem voru útskrif­aðir frá Landa­koti frá 12. til 22. októ­ber báru veiruna síðan með sér inn á aðrar stofn­anir. Viku eftir að fyrstu smit komu upp á Landa­koti var búið að rekja 139 smit þangað, sem leiddi meðal ann­ars til þess að Land­spít­al­inn var settur á neyð­ar­stig. 

For­stjóri Land­spít­al­ans lýsti stöð­unni sem reið­arslagi: „Því miður hef­ur það nú gerst sem við ótt­uð­umst mest og það sem mörg önn­ur sam­fé­lög hafa þurft að glíma við, að sýk­ing blossi upp í okk­ar við­kvæm­ustu hóp­um.“

Fyrir vikið voru settar strangar kvaðir á spít­al­ann. 

„Ég á ekki nógu sterk orð til að hrósa starfs­fólki á Landa­koti“

Áður en far­ald­ur­inn náði inn á spít­al­ann máttu Alla og systur hennar heim­sækja móður sína einu sinni á dag, hringja hvenær sem var auk þess sem starfs­fólkið hringdi þrisvar til fjórum sinnum á dag til að leyfa þeim að fylgj­ast með stöð­unni á móður þeirra. „Konurnar sem vinna þarna hafa svo góða nær­veru. Það ljómar af þeim. Þær sögðu alltaf elsku Jóhanna mín, við mömmu, og töl­uðu alltaf svo fal­lega til hennar. Þær voru stöðugt að koma inn til hennar og athuga líðan, lög­uðu kodd­ann, hjálp­uðu henni að baða sig og klæða sig. Þær gerðu allt til að gera líf hennar betra meðan hún lá þarna inni. Ég á ekki nógu sterk orð til að hrósa starfs­fólki Landa­kots, ég get ekki hrósað þeim nóg.“

Þá er Alla svo ánægð með þá umönnun sem móðir hennar fékk að hún hefur ákveðið að senda Páli Matth­í­assyni, for­stjóra Land­spít­al­ans, bréf til að þakka fyrir það. 

Síðustu stundirnar

Þegar móðir hennar veikt­ist á fimmtu­deg­inum töl­uðu læknir og hjúkr­un­ar­fræð­ingur við syst­urnar. „Lækn­ir­inn og hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn töl­uðu svo fal­lega til okkar og útskýrðu allt svo vel fyrir okkur,“ segir Alla þá. 

Eftir að hafa rætt við starfs­fólk voru syst­urnar klæddar í sótt­varn­ar­klæðnað frá toppi til táar, eins og Alla lýsir því, til að hlúa að móður sinni. „Það tók hálf­tíma að klæða okkur þrjár í,“ segir hún. Þær þurftu að klæð­ast tvö­földum hönskum, sloppum með hettum og grímum með skjöldum á. „Við fengum að vera með henni á fimmtu­deg­inum og svo aðfara­nótt laug­ar­dags. Þá var bara stutt eftir en við fengum líka að koma á sunnu­dag­inn þegar hún var svo farin.“

„Ég lét hana vinka í mynd­bönd­unum og þegar hann sá þau vink­aði hann til baka, elsku kall­inn“

Konan sem sat hjá móður hennar þessar síð­ustu stundir var á bak­vakt og segir Alla það lýsa því álagi sem er á spít­al­anum um þessar mundir og hvað starfs­fólkið þarf að vinna við í þessum aðstæðum. „Við fengum að kynn­ast þessu ástandi. Við sáum hvað starfs­fólkið þurfi að ganga í gegnum,“ segir hún þá. Hún seg­ist hugsa mikið til þeirra sem þurfa að taka tvö­faldar vaktir í ástandi sem slíku. „Þetta fólk leggur svo mikið á sig til að sinna fólk­inu. Þetta er ótrú­legt starf sem þau vinna.“

Sár út í fólk sem virðir ekki sóttvarnir

Alla lýsir því hversu reið hún hafi verið að und­an­förnu þegar hún sér á sam­fé­lags­miðlum að fólk kvartar undan sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum. Hún hafi ekki gert það að venju að tjá sig opin­ber­lega um sam­fé­lags­mál en í gær hafi eitt­hvað sprungið innra með henni og ritað athuga­semd við færslu Mbl.is á Facebook þar sem verið var að deila frétt um að verð­andi feður megi ekki vera við­staddir són­ar­skoðun.

Reiði hennar bein­ist ekki beint að þeirri gagn­rýni sem sú ákvörðun sætti heldur finnur hún fyrir almennri reiði gagn­vart því að fólk sætti sig ekki við tak­mark­anir vegna veirunnar. „Ég er komin með Covid-19 upp í háls,“ segir Alla og heldur síðan áfram. „Ég er svo leið yfir því að fólk geti ekki lagt eig­in­girni sína til hliðar og hlýtt þessum fyr­ir­mælum fram til 17. nóv­em­ber. Getur fólk ekki verið þol­in­mótt? Við erum flest með þak yfir höf­uðið, mat á borðum, hita í húsum og getum farið út í nátt­úr­una og gengið. Við megum meira að segja heim­sækja okkar nán­ustu í heima­hús. Hvað er málið?“ spyr hún þá.

Eftir að Covid smit kom upp á Landa­koti gat þriðja systir Öllu ekki hitt móður sína. Hún býr nefni­lega í Noregi og eftir heim­komu tekur við fjórtán daga bann við heim­sóknum inn á stofn­anir. Þá mega syst­urnar ekki heim­sækja föður sinn sem dvelur á Hrafn­istu í Hafn­ar­firði vegna þess að smit kom upp á Landa­koti og þær höfðu heim­sótt móður sína áður en Covid-19 smit upp­götv­uð­ust þar.

Faðir þeirra, eig­in­maður Jóhönnu til rúm­lega sex­tíu ára, fékk heldur ekki að kveðja kon­una sína í hinsta sinn eða heim­sækja hana í veik­ind­unum. „Ég tók mömmu upp á mynd­band og tók myndir af henni á hverjum degi fyrir pabba. Ég lét hana vinka í mynd­bönd­unum og þegar hann sá þau vink­aði hann til baka, elsku kall­inn,“ segir Alla. 

Faðir þeirra fékk ekki að kveðja eiginkonuna

Faðir þeirra, systir og aðrir aðstand­endur geta ekki séð Jóhönnu í hinsta sinn í kistu­lagn­ingu því sam­kvæmt reglum þarf kistan að vera lokuð vegna sótt­varna. „Eftir að mamma dó spurðum við lækn­inn hvort hún væri enn smit­andi eftir að hún væri farin og hann svar­aði því ját­andi,“ útskýrir Alla. Það sé að vissu leyti gott að faðir hennar geti munað móður hennar eins og hún var áður en hún veikt­ist. „Ég held að pabbi myndi helst vilja muna hana eins og hún var, alltaf að baka pönnu­kökur, hlaupa um með postu­lín, spila bingó með eldri borg­urum og svo fram­vegis.“ Hjónin höfðu verið gift í 61 ár en þau fögn­uðu brúð­kaups­af­mæli í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Aðstand­endur Jóhönnu hafa tekið upp á því að prenta stóra mynd af henni á stál­p­lötu sem verður ofan á kist­unni. Í jarð­ar­för­inni mega aðeins 30 manns koma saman ef hún verður haldin í kirkju að prest­inum með­töldum og öðrum sem koma að þjón­ust­unni. Verði jarða­förin haldin í kapellu mega tíu aðstand­endur vera við­staddir ásamt presti og söngv­ara.

„Ég horfði svo á fund­inn í gær og sá þau til­kynna að einn hafi dáið úr Covid. Það var mamma“

Alla segir að fyrst hafi fjöl­skyldan ákveðið að jarð­ar­förin yrði haldin í kapellu en vegna fjölda­tak­mark­ana muni þau lík­lega færa sig yfir í kirkju svo fleiri geti verið við­staddir, en nær­fjöl­skyldan er stór. Hún ákvað þó að hafa sam­band við vin­konur móður sinnar, sem eru á sama aldri og hún var, til þess að láta þær vita að ef þær treysta sér ekki til að koma sé það í lagi. „Ég vil ekki að þær komi inn í of lítið rými og taki áhættu á að smit­ast. Þær eru í áhættu­hópi vegna ald­urs. Ég sagði við þær að ef athöfnin yrði í kirkju væru þær auð­vitað vel­komnar en ég myndi skilja ósköp vel ef þær myndu ekki treysta sér því ég veit að fólk er svo hrætt.“

Upplýsingafundur

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær var til­kynnt að annað and­lát hefði orðið vegna Covid-19. Alla horfði á fund­inn og vissi þá að um móður hennar væri að ræða. „Ég var búin að gráta úr mér augun síð­asta einn og hálfan sól­ar­hring, því þetta átti ekki að ger­ast. Ég horfði svo á fund­inn í gær og sá þau til­kynna að einn hefði dáið úr Covid-19. Það var mamma. Þau vott­uðu okkur samúð sína í sjón­varpi og ég sagði þá upp­hátt við mömmu: Mamma mín, þú vildir nú aldrei neitt umstang. Á afmælum og svona þá vildir þú ekki vera heima ef ein­hver væri að koma. Þú vildir ekki fá athygli, en þú fékkst nú aldeilis athygli í dag, elsku kell­ingin,“ segir Alla að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvað gerðist á Landakoti?

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár