Stór hluti hamingjunnar er að gleðja aðra og sjálfan sig

Örn Árnason leik­ari finnur ham­ingj­una í því að smíða grind­verk, elda góðan mat fyrir frúna og hand­leika frí­merkja­safnið sitt.

Stór hluti hamingjunnar er að gleðja aðra og sjálfan sig

Örn Árnason leik­ari svarar spurn­ing­unni um hvað ham­ingjan sé í huga hans með spurn­ingu: „Þessi bless­aða ham­ingja. Hvað er hún? Hvaða hljóm­sveit söng: „Og ham­ingjan, hún var best af öllu sköp­un­ar­verk­inu?“ Það var hljóm­sveitin Ðe lónlí blú bojs, text­inn er eftir Þorstein Egg­erts­son. Kannski er ham­ingjan bara sköp­un­ar­verk. Hún býr í öllum og það er spurn­ing um að næra hana rétt.“

Leiðarljós í lífinu

„Maður á sér nokkur leið­ar­ljós í líf­inu sem maður reynir að fara eftir; maður les eitt­hvað snið­ugt og skemmti­legt og hugsar að þetta sé ágætt og svo reynir maður að fylgja því. Það gengur svona að mestu leyti. Það er snið­ugt þegar maður er búinn að finna svona litla leið­ar­vísa að þegar maður stendur í ein­hverjum sporum sem maður er í smávand­ræðum með þá hugsar maður oft, „já, heyrðu, ég ætl­aði alltaf að vera svo jákvæður þegar eitt­hvað svona kæmi upp“. Ég er samt búinn að vera svo lán­samur að þær stundir eru sem betur fer afar fáar. Ég get nefnt dæmi. Einhver gömul kona ku hafa sagt: „Ef þú getur ekki sagt eitt­hvað fal­legt þá skaltu bara halda kjafti.“ Örn hlær. „Mér finnst þetta vera ágætt af því að þetta poppar upp í hug­ann þegar menn eru kannski komnir á ákveð­inn stað og það er verið að tala um ákveðin mál­efni eða menn og mann langar til að segja mönnum til synd­anna og þá heldur maður sér aðeins til hlés, veltir hlut­unum aðeins fyrir sér og segir svo sitt ef manni finnst að maður hafi eitt­hvað til mál­anna að leggja.“

Grindverkið

Sköpunin skiptir máli, að taka til hend­inni og skilja eitt­hvað eftir sig. „Ég smíð­aði grind­verk í sumar. Það veitti mér mikla ham­ingju að sjá það rísa smám saman en ég steypti kant­inn, setti járnin og sló þessu öllu upp og þetta er mín eigin hönnun. Ég fékk meira að segja leyfi frá borg­inni og þurfti að láta grennd­ar­kynna þetta og það tók tvö ár að fá leyfin. Þegar ég rak síð­ustu skrúf­una í þetta þá fyllt­ist ég ein­hverju og það urðu alls konar upp­hróp­anir svo sem „shit“, „fokk, hvað ég er ánægður með þetta“, „djöf­ull er þetta flott“ og „þetta er beint!“

Matseldin

Stundum þarf ekki svo mikið til að við­halda hvers­dags­legri ham­ingju. „Af og til kemur maður frúnni á óvart og eldar góðan mat. Það er einn hlutur sem maður getur gert. Svo getur maður setið og klórað hund­inum sínum og horft á hann glenna sig allan af því að honum finnst svo gott að láta klóra sér á mag­anum.“ Hund­ur­inn heitir Dimma en fjöl­skyldan kallar tík­ina Demó vegna þess að hún er svo lítil, en hún er af teg­und­inni Chihuahua. „Hún er bara sýn­is­horn af hundi.“

„Stór hluti ham­ingj­unnar er að gleðja aðra og sjálfan sig“

Litlar ham­ingju­bólur má finna hér og þar. „Stór hluti ham­ingj­unnar er að gleðja aðra og sjálfan sig. Maður má aldrei gleyma því að það þurfa allir sinn tíma; ég þarf mína stund og hún getur falist í ýmsu. Við hjónin sitjum stundum saman og ég er hennar Storytel, við erum að lesa ævi­sögu Einars Ben og ég les upp­hátt fyrir hana; bæði fyrir mig og hana. Það er lítil gleði­stund.“

Frímerkjasafnið

Svo má ekki gleyma frí­merkja­safn­inu. „Ég rýni stundum í frí­merkin mín. Ég er að safna íslenskum merkjum og aðal­lega merkjum sem voru gefin út í til­efni af Alþing­is­há­tíð­inni 1930,“ segir Örn en frí­merkin voru gefin út til að minn­ast þess að 1.000 ár voru liðin frá því að Alþingi var stofnað. „Ég þekki sög­una í kringum þau nokkuð vel og er að safna öllu í kringum þetta; ég á bréfa­skriftir, alls konar papp­íra og frí­merki í kringum þetta og mér finnst mjög gaman að fletta þessu. Þó þetta séu pínu­litlir papp­írs­sneplar þá veita þeir mér mikla gleði.“

Jákvætt viðhorf hjálpar

Örn er loks spurður hvað hann ráð­leggi fólki í leit að ham­ingju. „Úff, þetta er eins og að biðja um leyni­upp­skrift að ein­hverjum góðum rétti. Ég get ekki sagt annað en að fólk eigi að reyna að höndla aðstæður með jákvæðum huga, taka jákvætt á hlut­unum.

Ég reyni yfir­leitt að leysa málin; finna flöt sem allir geti verið sáttir við. Ég er meira að segja í Oddfellow-regl­unni þar sem við stundum heil­mikla mann­rækt og maður reynir að gera sig að betri manni. En auð­vitað á maður sínar sveiflur. Ég held samt að lyk­ill­inn að lífs­ham­ingj­unni sé ef maður býr sér og sínum góðar aðstæður. Það skiptir máli hvað er aðal­at­riði og hvað er auka­at­riði. Fyrir mér var girð­ingin aðal­at­riðið í sumar. Nú er það búið og þá finn ég mér ein­hverja aðra girð­ingu.

Aðstæður skapa ham­ingju og óham­ingju og spurn­ingin er hvernig við greinum fyr­ir­bærið. Ég finn alveg að þetta COVID-19-ástand tekur aðeins í og það er kannski vegna þess að mér finnst svo gaman að leika en nú má það ekki. Mér finnst gaman að standa í sviðs­ljós­inu; það er ákveðin nær­ing. Ég er búinn að gera þetta í 40 ár og þegar manni er mein­aður aðgangur að sínu helsta hugð­ar­efni þá upp­lifir maður pínu óham­ingju. Ham­ingjan er líka falin í því að fá klappið á bakið. Ég þarf bara að taka á því núna að vera jákvæður. Maður á alltaf að vera með í hug­anum að bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Það á að líta jákvæðum augum fram á veg­inn. Ég held að það sé ekk­ert flókn­ara en það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár