Samherji kærir starfsmenn Ríkisútvarpsins til siðanefndar fyrir að tjá sig um ásakanir Samherja

Samherji hefur kært 11 starfs­menn Rík­is­út­varps­ins fyrir að koma starfs­bróður sínum til varnar eftir að Samherji birti heim­ild­ar­þátt um hann. Farið er fram á að þeir fjalli ekki frekar um mál­efni Samherja. Vinnu­reglur Rík­is­út­varps­ins kveða á um að starfs­menn skaði ekki trú­verð­ug­leika frétta­stofu með tján­ingu sinni.

Samherji kærir starfsmenn Ríkisútvarpsins til siðanefndar fyrir að tjá sig um ásakanir Samherja
Kærð til siða­nefndar Stígur Helgason, Sigmar Guð­munds­son, Lára Ómars­dóttir, Freyr Gígja Gunn­ars­son, Snærós Sindra­dóttir, Sunna Val­gerð­ar­dóttir, Tryggvi Aðal­björns­son, Rakel Þor­bergs­dóttir, Þóra Arn­órs­dóttir, Helgi Seljan og Aðal­steinn Kjart­ans­son.

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji hefur fengið lög­mann til þess að taka saman ummæli starfs­manna Rík­is­út­varps­ins á sam­fé­lags­miðlum og kæra til siða­nefndar ell­efu starfs­menn vegna tján­ingar þeirra í kjöl­far þess að Samherji birti mynd­band um einn frétta­mann­anna, Helga Seljan.

Starfs­menn­irnir sem eru kærðir voru í flestum til­fellum að verja starfs­bróður sinn, Helga Seljan, vegna umfjöll­unar Samherja um hann. Hluti kær­anna snýr að því að starfs­menn RÚV hafi „lækað“ eða deilt ummælum.

Starfs­menn­irnir sem Samherji kærir til siða­nefndar eru Lára Ómars­dóttir frétta­maður, Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri, Freyr Gígja Gunn­ars­son, frétta- og dag­skrár­gerð­ar­maður, Stígur Helgason frétta­maður, Snærós Sindra­dóttir, nefnd „frétta­maður“ í kæru en er verk­efna­stjóri, Sunna Val­gerð­ar­dóttir frétta­maður, Tryggvi Aðal­björns­son frétta­maður, Sigmar Guð­munds­son, dag­skrár­gerð­ar­maður í Morg­un­út­varp­inu, Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks, og þeir Helgi Seljan og Aðal­steinn Kjart­ans­son, frétta­menn Kveiks, sem unnu meðal ann­ars umfjöllun um mútu­mál Samherja í Namibíu á síð­asta ári.

Í kærunni fer Samherji fram á  að starfs­menn­irnir fjalli ekki frekar um útgerð­ar­fé­lagið og mál­efni þess. „Erfitt er að sjá hvernig þeir starfs­menn Rík­is­út­varps­ins sem þessi kæra fjallar um geta fjallað um mál­efni kær­anda í sam­ræmi við þessar skuld­bind­ingar eftir að hafa lýst skoð­unum sínum á mál­inu á sam­fé­lags­miðlum.“

Þor­steinn Már Bald­vins­sonFor­stjóri Samherja hefur und­an­farið látið vinna mynd­bönd um Rík­is­út­varpið, en kærir starfs­menn Rík­is­út­varps­ins fyrir að tjá sig um það.

Gagnrýndu umfjöllun Samherja um Helga

Meg­in­hluti kær­anna snýr að við­brögðum starfs­manna RÚV við mynd­böndum Samherja, sem hafa meðal ann­ars fjallað um Helga Seljan, frétta­mann Kveiks. Í heim­ild­ar­þætti Samherja, þar sem rætt var við starfs­menn og sam­starfs­að­ila Samherja og birt leyni­upp­taka af sam­tali við Helga, var hann sak­aður um að hafa falsað skýrslu Verð­lags­stofu skipta­verðs í umfjöllun sinni um rann­sókn Seðla­bank­ans á Samherja fyrir átta árum. 

Þannig tjáði Freyr Gígja Gunn­ars­son, frétta- og dag­skrár­gerð­ar­maður, sama dag og mynd­band Samherja „Skýrslan sem aldrei var gerð“, var birt:

„Það fór um mann hrollur við að horfa á mynd­skeiðið í morgun.“

Samherji telur þessi ummæli Freys Gígju vera brot á siða­reglum.

„Þetta er grafal­var­leg aðför að fjöl­miðlun í land­inu.“

Lára Ómars­dóttir frétta­maður er einnig kærð til siða­nefndar fyrir að lýsa van­þóknun á heim­ild­ar­þætti Samherja. „,Þessi grófa árás þjónar þeim eina til­gangi að skaða mann­orð frétta­manns RÚV, sem hefur hvorki falsað gögn né „átt við þau“ og trú­verð­ug­leika frétta­stof­unnar,“ sagði Lára á Facebook sama dag og þátt­ur­inn var birtur. „Ekkert er hæft í ásök­unum Samherja gegn Helga Seljan og RÚV. Aldrei hef ég orðið vitni að annarri eins aðför og róg­burði gegn blaða­manni og frétta­stofu hér á landi og nú. Þetta er grafal­var­leg aðför að fjöl­miðlun í land­inu. Lesið það sem Helgi Seljan sjálfur hefur að segja.“

Þá tekur hún undir færslu Ölmu Ómars­dóttur frétta­manns, sem mót­mælti efni heim­ild­ar­þáttar Samherja: „Þekkt er víða um heim að fjár­sterkir aðilar beiti ýmsum aðferðum til að vekja efa­semdir um frétta­flutn­ing sem að þeim snýr. Það skapar þá hættu að grafið sé undan trausti á fjöl­miðlum og að fjöl­miðlar veigri sér við að fjalla um ein­staka aðila. Af því er mikil hætta búin fyrir lýð­ræð­is­legt sam­fé­lag.“ Alma er þó ekki kærð.

Vinnureglur kveða á um hlutleysi

Í þeim greinum vinnu- og siða­reglna Rík­is­út­varps­ins, sem Samherji byggir kæru sína á, er kveðið á um að starfs­menn skaði ekki trú­verð­ug­leika frétta­stof­unnar með tján­ingu sinni opin­ber­lega. 

„Frétta­menn skulu gæta þess að opin­bera ekki skoð­anir sínar á mál­efnum eða ein­stak­lingum þannig að trú­verð­ug­leiki frétta­stof­unnar hljóti skaða af,“ segir í 4. grein. 

Í kæru Samherja, sem unnin var af Arnari Þór Stef­áns­syni lög­manni, er tekið fram að ef kæru­nefnd­inni þyki ein­stök ummæli ekki brot á siða­reglum, beri að horfa á öll til­vikin sem eina heild og lesa í sam­hengi við aðrar færslur starfs­manna.

Farið er fram á að siða­nefndin úrskurði að um „mjög alvar­leg“ brot á siða­reglum sé að ræða.

Samherji vinnur fleiri myndbönd um Ríkisútvarpið

Samherji hefur haldið áfram mynd­banda­gerð. Eftir þátt­inn „Skýrslan sem aldrei var gerð“ 11. ágúst, stað­festi Verð­lags­stofa skipta­verðs að hafa átt gögnin sem Helgi Seljan til­tók í umfjöllun sinni 2012. Í kjöl­farið birt­ist þátt­ur­inn „Skýrslan sem hvergi finnst“ 23. ágúst. Tveimur dögum síðar stað­festi Verð­lags­stofa skipta­verðs að hafa fundið grein­ing­una sem um ræddi í skjala­safni sínu, „vistað utan hefð­bund­ins skjala­kerfis á aflögðu gagna­drifi“. 27. ágúst birt­ist nýtt mynd­band frá Samherja undir heit­inu „Óheið­ar­leg vinnu­brögð Rík­is­út­varps­ins“. Samherji segir á vef­síðu sinni að rúm­lega 85 þús­und manns hafi „horft á nýjasta þátt Samherja“.

Á sam­fé­lags­miðlum hafa borist frá­sagnir fólks um að þátt­ur­inn hafi meðal ann­ars birst sem aug­lýs­ing á undan barna­efni á Youtube. Mynd­banda­veitan hefur nú skráð 95 þús­und spil­anir á mynd­band­inu, þar sem Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, tjáir sig um vinnu­brögð Rík­is­út­varps­ins. „Mikið áhorf á þennan þriðja þátt sýnir, svo ekki verður um villst, að sjón­varps­þátta­gerð er afar hentug og árang­urs­rík leið fyrir fyr­ir­tæki að miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings,“ segir í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár