Flæðandi list, draumkenndir tónar og heimahátíðir

Tón­leik­ar, við­burð­ir og sýn­ing­ar 31. júlí til 20. ágúst.

Flæðandi list, draumkenndir tónar og heimahátíðir

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu þrjár vik­urnar. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara vegna sam­komu­banns.

Opnun Flæðis

Hvar? Flæði
Hvenær? 1. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Flæði er lista­manna­rekið „pop-up“ rými sem fagnar list­inni af jaðr­inum. 1. ágúst 2019 opn­aði Flæði á Grett­is­götu og sýndi þar á sjötta tug sýn­inga á þremur mán­uðum. Nú, ári síðar upp á dag, end­ur­opnar það stærra hús­næði á Vest­ur­götu 17 þar sem leik­ur­inn verður end­ur­tek­inn með sýn­ingum sem eru opnar í tak­mark­aðan tíma og því ávallt eitt­hvað nýtt til að sjá og upp­lifa. Á fyrstu sýn­ing­unni má sjá verk eftir sex mis­mun­andi lista­menn og -konur. Sýningar munu standa yfir á Vest­ur­götu, í Kola­port­inu og í Tjarn­ar­bíó.

Heimapaunk 2020

Hvar? Heima
Hvenær? 31. júlí–1. ágúst
Streymi: www.twitch.tv/nordanpaunk

Norð­an­paunk var fellt niður eins og allar aðrar tón­list­ar­há­tíðir um versl­un­ar­manna­helg­ina sökum sam­komu­banns­ins, en pönk­ar­arnir deyja ekki ráða­lausir. Þess í stað spila þrettán jað­ar­sveitir úr röðum pönk­ara og þung­arokk­ara erf­iða tón­list fyrir gott fólk á sér­stökum streym­is­tón­leikum. Aðgangur er ókeypis, en tekið við frjálsum fram­lögum.

Tónleikaröð í Garðinum

Hvar? Dillon
Hvenær? 1.–2. & 8.–9. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á sjö­unda tug tón­list­ar­at­riða spila á tón­leika­röð sem haldin er á Dillon allar helgar út júlí og ágúst. Um versl­un­ar­manna­helg­ina koma meðal ann­ars fram rokksveitin Johnny and the Rest og hljóð­gervils­dans­lista­konan Rokky. Helgina eftir það er hægt að sjá popp­ar­ann Haffa Haff og raf­mögn­uðu sveit­ina Vök.

Vitni

Hvar? Ljós­mynda­safn Reykja­víkur
Hvenær? Til 13. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Ljós­mynda­sýn­ingin Vitni eftir Christopher Lund er opnuð á merki­legum tíma þegar við­fangs­efni hennar er tíma­bundið horfið vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. Heims­borg­ar­inn sem var kom­inn til að sjá fossa falla, jökla skríða og brim sverfa er horfinn. Sýningin varpar fram spurn­ing­unni um hlut vitn­is­ins í vitn­is­burð­inum, þess sem sæk­ist í að upp­lifa og tengja við nátt­úr­una og sjálfa sig um leið.

The Great Exhibition

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 6. ágúst til 3. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Þessi yfir­lits­sýn­ing fjallar um lista­mannatvíeykið Gilbert & George sem hefur í meira en fimm ára­tugi unnið ein­stök verk þar sem dag­legt líf og mynd­list sam­ein­ast í einu mengi. Þeir hafa ögrað ríkj­andi borg­ara­legum hug­myndum um smekk og vel­sæmi og ekki síst stuðlað að breyttum við­horfum til sam­kyn­hneigðra og ann­arra minni­hluta­hópa.

GlerAkur

Hvar? 12 Tónar
Hvenær? 7. ágúst kl. 17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

GlerAkur er hug­ar­fóstur Elvars Sæv­ars­sonar sem lét ára­tuga­langan draum ræt­ast um að stofna hljóm­sveit með nógu mörgum gít­ar­leik­urum svo yfir­tóna-súpan myndi yfir­gnæfa alla aðra skynjun. Þessi til­raun heppn­að­ist svo vel að það þurfti tvo trommara til að halda mús­ík­inni við efnið. Tónlist Gler­Ak­urs er seig sem deig, draum­kennd og myrk.

Ný aðföng

Hvar? Nýló
Hvenær? Til 9. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á þess­ari sýn­ingu má sjá úrval verka eftir átta lista­menn sem gefin hafa verið í saf­n­eign síð­ustu þrjú ár. Elstu verkin á sýn­ing­unni eru frá sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og þau nýj­ustu eru aðeins nokk­urra ára gömul. Finna má verk unnin í ýmsa miðla, þar á meðal textíl­verk, skúlp­t­úra, ljós­myndir og inn­setn­ingar.

Björk Orkestral

Hvar? Harpa
Hvenær? 9., 15. 23. & 29. ágúst kl. 17.00
Aðgangs­eyrir: frá 2.600 kr.

Á þessum tón­leikum koma fram með Björk um það bil 100 íslenskir tón­list­ar­menn. Þetta er hátíð þar sem Björk heldur upp á sam­starf sitt við tón­list­ar­fólk frá Íslandi, sem starfað hefur með henni í hljóð­verum og á tón­leikum úti um allan heim. Uppselt er á alla tón­leik­ana en hægt er að kaupa miða á streymi þeirra.

Beyond human time

Hvar? Gerð­ar­safn
Hvenær? Til 15. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þrettán vatns­lita­myndir eftir Ólaf Elíasson hanga á veggjum i8 á þess­ari sýn­ingu. Mið­ill­inn hefur verið Ólafi í miklu upp­á­haldi, en hann not­aði hann árið 2009 til að kanna liti, hreyf­ingu og tíma. Verkin á þess­ari sýn­ingu eiga það öll sam­eig­in­legt að skilja eftir sig sterka mynd­leif ef horft er lengi á þær.

Þegar allt kemur til alls

Hvar? Gerð­ar­safn
Hvenær? Til 23. ágúst
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Verkin á þess­ari sam­sýn­ingu eftir tólf íslenska sam­tíma­lista­menn voru sér­valin út frá því hvernig feg­urðin í hvers­dags­leik­anum, létt­leiki, húmor og leik­gleði birt­ast í þeim. Sýningin er hug­leið­ing um það sem máli skiptir fyrir núið og inn­legg í sam­tölin sem eiga sér stað þessa dag­ana um hvað drífur sam­fé­lagið áfram og hvað skiptir okkur máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár