Þau létust á Vesturlandsvegi

Sam­býl­is­fólkið Jóhanna S. Sig­urð­ar­dóttir og Finnur Ein­ars­son lét­ust í slysi á hálu mal­biki á Vest­ur­lands­vegi. Þeirra er minnst í dag. Þau hjálp­uðu meðal ann­ars félögum sínum í bif­hjóla­sam­tök­unum.

Þau létust á Vesturlandsvegi
Parið sem lést Finnur Ein­ars­son var 54 ára og Jóhanna Sigríður Sig­urð­ar­dóttir 53 ára. Mynd: Facebook / HOG Chapter Iceland

Fólkið sem lést í umferð­ar­slys­inu á Vest­ur­lands­vegi á sunnu­dag hét Finnur Ein­ars­son, 54 ára, og Jóhanna Sigríður Sig­urð­ar­dóttir, 53 ára.

Þau voru sam­býl­is­fólk, búsett í Garðabæ, og láta eftir sig fjögur, upp­komin börn.

Finnur og Jóhanna voru á ferð­inni á mót­or­hjóli á Vest­ur­lands­vegi við Kjal­ar­nes, þegar erfitt reynd­ist að halda stjórn á því vegna galla í nýlögðu mal­biki. Á sama tíma­punkti var öku­maður á hús­bíl á ferð­inni. Annar bif­hjóla­maður, Pétur Halldór Ágústs­son, lenti einnig í slys­inu og er á bata­vegi. Þá fór sjúkra­bíll út af veg­inum á sama stað þegar hann kom á vett­vang.

Bif­hjóla­sam­tökin HOG Chapter Iceland minn­ast Finns og Jóhönnu í dag. Fram kemur í minn­ing­ar­orðum að þau hafi keypt hús­næði sam­tak­anna og látið end­ur­gjalds­laust félögum sínum í té.

„Kæru félagar, það er með mik­illi sorg í hjarta að ég flyt ykkur þær fréttir að félagar okkar í HOG Chapter Iceland, Finnur Ein­ars­son og Jóhanna S. Sig­urð­ar­dóttir, lét­ust í bif­hjólaslys­inu á Kjal­ar­nesi síð­ast lið­inn sunnu­dag. Börnum þeirra og aðstand­endum öllum, sem og vinum, vottum við okkar dýpstu samúð. Finnur og Jóhanna voru mjög virk og lögðu mikið af mörkum í starfi Chaptersins, en Finnur tók við vara­for­mennsku um ára­mótin 2018/2019. Þegar Chapterinn missti síð­asta athvarf sitt keyptu þau hjónin hús­næðið í Nethyl sem þau lögðu end­ur­gjalds­laust undir Chapterinn og hefur það verið mik­ils metið,“ segir í færslu sam­tak­anna. Þar er einnig staðið fyrir söfnun til handa börnum þeirra vegna útfar­ar­kostn­aðar.

For­stjóri Vega­gerð­ar­innar hefur sagt að mal­bikið hafi ekki stað­ist kröfur. Sýni úr því hafa verið send til Sví­þjóðar til grein­ingar. Vega­gerðin hefur harmað slysið og sent aðstand­endum hinna látnu „dýpstu samúð“. Beðið er nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar sam­gönguslysa.

Um 40 mín­útum áður en slysið varð var­aði veg­far­andi Kjal­nes­inga við í íbúa­hópnum Færð og veður á Kjal­ar­nesi á Facebook. „Varúð nýja mal­bikið við vigtaplanið er STÓR­hættu­legt,“ sagði í færsl­unni.

Vega­gerðin seg­ist taka fulla ábyrgð, þótt verk­taki hafi séð um verkið.  Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu­ráð­herra hefur fundað með for­stjóra Vega­gerð­ar­innar vegna slyss­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár