Þar sem föðurlandinu er flaggað

Stein­grímur Karlsson vann við kvik­mynda­brans­ann í rúm 20 ár og á sumrin vann hann auk þess við leið­sögn í hesta­ferðum. Sveitin tog­aði æ meira í hann og loks lét hann draum sinn ræt­ast. Hann og Arna Björg Bjarna­dóttir byggðu upp og opn­uðu Óbyggða­setrið á innsta bænum í Fljóts­dal.

Þar sem föðurlandinu er flaggað
Stein­grímur Karlsson í Óbyggða­setr­inu Hann er ætt­aður úr Fljóts­dal og hefur alltaf fundið fyrir teng­ingu þangað.

Stein­grímur Karlsson fædd­ist og ólst upp á Akureyri. Móðir hans er ættuð úr Fljóts­dalnum og faðir hans er frá Djúpa­vogi. „Frá því ég var lít­ill hefur mér fund­ist ræt­urnar mínar vera hér í Fljóts­dalnum. Þetta er minn staður og ég kaus að vera í Fljóts­dalnum á sumrin,“ segir hann en hann var í sveit hjá móð­ur­systur sinni á næsta bæ við Egils­staði þar sem Óbyggða­setrið er.

Faðir Stein­gríms var sýn­ing­ar­maður í Nýjabíói á Akureyri og horfði Stein­grímur oft á kvik­myndir í gegnum litla glugg­ann í sýn­ing­ar­klef­anum. Þessi heimur kvik­mynd­anna fannst honum vera spenn­andi.

Árin liðu. Stein­grímur flutti suður og fór að vinna hjá Saga Film við ýmis störf, hann bjó í Danmörku í eitt og hálft ár þar sem hann vann hjá fyr­ir­tæk­inu Creative Commercials sem Saga Film hafði stofnað þar og svo lá leiðin vestur um haf þar sem hann stund­aði kvik­mynda­nám í Hollywood og sér­hæfði sig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðasumarið 2020

Gleymdi garður töframannsins i Tungudal
NærmyndFerðasumarið 2020

Gleymdi garður töfra­manns­ins i Tungudal

Á Ísafirði er að finna fal­inn högg­mynda­garð ljós­mynd­ar­ans, lista­manns­ins og töfra­manns­ins Martinus Simson sem var danskur og sett­ist að á Íslandi árið 1916. Simsons-garður er stað­settur í Tungudal þar sem Simson fékk úthlut­aða lóð á þriðja ára­tugnum en í dag liggur garð­ur­inn í órækt, fal­inn minn­is­varði um merki­legan og list­rænan ein­stak­ling með ástríðu fyrir skóg­rækt á Íslandi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár