Í neti narsissistans

Það er auð­velt að flækj­ast í net nars­issist­ans óaf­vit­andi um hvað bíður okkar, en áttir þú því á að þú ert fórn­ar­lamb slíks ein­stak­lings skaltu koma þér í burtu hið fyrsta.

Í neti narsissistans
Sigríður Björk Starfar í Bjark­ar­hlíð þar sem hægt er að fá fag­lega aðstoð við að vinna úr afleið­ingum sam­skipta við sjálfs­dýrk­endur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Und­an­farnar vikur hefur borið á auk­inni umræðu um ofbeldi í sam­fé­lag­inu meðal ann­ars vegna álags sem mynd­ast hefur inni á heim­ilum í ein­angrun. Ástæður þess að fólk beitir ofbeldi geta verið fjöl­margar en stundum getur verið um að ræða ákveðna per­sónu­gerð sem kall­ast „Sjálfs­upp­hafn­ingar-per­sónu­leika­röskun“ eða „sjálfs­dýrk­andi“ (nars­iss­isti). Við höfum öll heyrt orð­inu „nars­iss­isti“ fleygt í dag­legri umræðu. Mörg erum við í sam­skiptum við ein­stak­linga sem bera  þessi ein­kenni og lendum jafn­vel í ást­ar­sam­bandi við þá og mun þessi grein fyrst og fremst taka á slíkum sam­böndum. Sjálfs­dýrk­and­inn getur verið af hvaða kyni sem er en til að auð­velda textaflæði verður almennt rætt um hann í karl­kyni og þol­and­ann í kven­kyni. 

Hvað er sjálfsdýrkandi eða narsissisti?

Hugtakið „nars­iss­isti“ er komið úr grískri goða­fræði þar sem fal­lega goðið Nars­issus var svo upp­tek­inn af eigin speg­il­mynd að hann féll út í speg­il­slétt vatnið og drukkn­aði. Það er auð­velt að flækj­ast í net nars­issist­ans óaf­vit­andi um hvað bíður okkar. Þessir ein­stak­lingar eru oft mjög aðlað­andi í fyrstu, bera þig á höndum sér, umvefja þig lofi og bera þig gjarnan saman við annað fólk í lífi sínu sem ekki hefur reynst þeim vel. Þannig færðu að heyra hvernig „aðeins þú“ hafir fengið að skyggn­ast inn í sál­ar­líf þeirra þar sem þú sért á flestan hátt betri en hinir mak­arnir. Hverjum finnst ekki gott að upp­lifa slíka aðdáun? Þegar þeir hafa náð þér í net sitt fer oft að bera á annarri hegðun, jafn­vel strax í brúð­kaups­ferð­inni. 

Orða­bækur tala gjarnan um að þetta eigi við fólk sem sé mjög sjálf­hverft, yfir­borðs­kennt og eig­in­gjarnt en geð­lækn­is­fræðin og sál­fræðin nálg­ast þetta út frá grein­ing­ar­sjón­ar­miði sem byggt er á ára­löngum rann­sóknum. Þar er talað um sjálfs­upp­hafn­ingar-per­sónu­leika­röskun sem eina af 10 teg­undum per­sónu­leik­arask­ana í grein­ing­ar­kerfi sál­fræð­innar (DSM-V). Nars­iss­ismi er sam­an­safn ein­kenna og ef þau eru nægi­lega mörg og hafa nægi­lega eitr­andi áhrif á sál­ar­líf ein­stak­lings­ins og sam­bönd við aðra er talað um per­sónu­leika­röskun. Talið er að um 1% ein­stak­linga grein­ist með þessa röskun og hún sé algeng­ari hjá karl­mönnum. Fagfólki greinir þó á, þar sem almennt er talið að fag­að­ilar greini konur frekar með jað­ar­per­sónu­leika­röskun (borderline per­sona­lity dis­order) sýni þær af sér þessa hegðun og sé tíðnin í raun hærri, jafn­vel 4%. Einkenni sjálfs­dýrk­unar finn­ast í sam­felldri heild, frá heil­brigðri sjálfs­dýrkun, til óheil­brigðra ein­kenna og allt til sjúk­legrar sjálfs­upp­hafn­ingar-per­sónu­leika­rösk­unar. Við erum öll með ein­hverja nars­is­s­íska eig­in­leika en það er veru­legur stigs­munur á eðli­legri sjálf­hverfu við ákveðnar aðstæður og nars­iss­isma. Nars­iss­ist­inn þarf þó ekki að sýna öll ein­kenni sjálfs­upp­hafn­ingar-per­sónu­leika­rösk­unar til að valda þol­and­anum miklu sál­rænu tjóni. 

„Nars­iss­ist­inn þarf þó ekki að sýna öll ein­kenni sjálfs­upp­hafn­ingar-per­sónu­leika­rösk­unar til að valda þol­and­anum miklu sál­rænu tjóni“

Í DSM-V er fyr­ir­bær­inu lýst sem end­ur­teknu mynstri af hug­myndum um eigin yfir­burði og ágæti hvort sem það er í hegðun eða hug­ar­heimi við­kom­andi, mik­illi þörf á aðdáun ann­arra og skorti á raun­veru­legri sam­kennd með þeim sem eru að ganga í gegnum erf­ið­leika. Þegar sagt er „raun­veru­legri“ þá er átt við að ein­stak­ling­ur­inn geti lært að í ákveðnum aðstæðum hafi fólk þörf fyrir stuðn­ing og átti sig fljótt á að stigi hann inn sem stuðn­ingur geti hann hlotið aðdáun og virð­ingu – einmitt það sem hann þarfn­ast. Stuðn­ing­ur­inn snýst því ekki um þann sem er í erf­ið­leikum heldur um til­finn­ing­una sem skap­ast innra með sjálfs­dýrk­and­anum. Hann finnur til mik­il­vægis en finnur lítið til með ein­stak­lingnum og getur því oft verið klaufa­legur í nálgun sinni og missir fljótt áhug­ann á stuðn­ings­hlut­verk­inu drag­ist það á lang­inn eða fái hann ekki nógu mikið lof og þakk­læti fyrir stuðn­ing­inn. 

Í grein­ing­ar­kerf­inu DSM-V eru nokkrir þættir dregnir fram sem gott er að hafa í huga teljir þú þig vera í sam­skiptum við nars­issista. Sá aðili:

  • Er með upp­hafna hug­mynd um sjálfan sig (til dæmis ýkir afrek sín eða hæfi­leika, til dæmis í íþróttum, „var bestur end­ur­tekið“, ætl­ast til þess að vera séður sem afreks­maður þrátt fyrir að hafa ekki til þess unnið). 

  • Er upp­tek­inn af hug­myndum um völd, frama, feg­urð og full­komið ást­ar­sam­band.

  • Upplifir sig ein­stakan, æðri öðrum og ætl­ast til að vera með­höndl­aður sem slíkur og leitar eftir því að umgang­ast fólk sem nýtur virð­ingar og velur sér oft þannig maka.

  • Hefur mikla þörf fyrir aðdáun og hrós – gjarnan end­ur­teknir póstar á sam­fé­lags­miðlum sem segja frá ham­ingju eða sigrum, eigin eða barna sinna. 

  • Telur sig eiga meiri rétt en aðrir  (til dæmis þurfa ekki að fara í röð eða fá afslætti eða til­boð sem aðrir fá ekki).

  • Nýtir sér per­sónu­leg sam­bönd til að fá sínu fram.

  • Skortir sam­kennd, neitar að horfast í augu við hvernig hegðun hans gæti hafa sært aðra. Hefur lít­inn áhuga á til­finn­ingum eða þörfum ann­arra eða slíkri umræðu. Setn­ingar eins og „ef þú myndir snúa þessu við, hvernig liði þér þá“ gera hann argan því hann tengir á engan hátt við slíkt.

  • Er oft afbrýði­samur út í aðra eða hefur hug­myndir um að aðrir öfundi sig.

  • Hefur fram úr hófi álit á eigin ágæti og sjálf­hverfur.

  • Sýnir sterk nei­kvæð við­brögð við gagn­rýni eða nei­kvæðum athuga­semdum. Notar setn­ingar eins og „hvernig dirfistu ...“ og myndi til dæmis bregð­ast illa við því að upp­lifa það að gengið væri fram­hjá honum.

  • Hefur lágt sjálfs­mat sem oft er falið með yfir­borðs­kenndri hegðun og jafn­vel hroka og yfir­læti. Stærir sig fyrir framan aðra.

Aðrir þættir sem ein­kenna sterk­lega sjálfs­dýrk­and­ann eru að þeir eiga gjarnan í erf­ið­leikum og átökum í flestum nánum sam­böndum, þar með talið ást­ar­sam­böndum, sam­böndum við börn, tengda­börn, vinnu­veit­anda, systk­ini, maka þeirra og aðra, en oft ekki við vini. Þrátt fyrir að DSM-V skipti þessu svona upp þá sýna rann­sóknir betur og betur fram á að sjálfs­dýrkun getur skipst í und­ir­týpur sem of langt mál er að fara út í hér. 

Sjálfs­dýrk­and­inn eyðir mik­illi orku í að byggja upp varnir til að vernda sjálfan sig, svo sem að þróa „falskt sjálf“. Þessi upp­gerð veldur því að hann er stöðugt á varð­bergi gagn­vart „afhjúpun á þessu falska sjálfi“ sem gerir hann ofur­við­kvæman fyrir gagn­rýni. Til að við­halda blekk­ing­unni og vernda falska sjálfið krefst nars­iss­ist­inn full­kom­innar spegl­unar, smjað­urs og við­bragða frá umhverfi sínu þar sem upp­lif­aður sigur er tek­inn fram yfir sið­ferði og heil­indi. Hann skortir oft­ast til­finn­inga­stjórn, fær ófyr­ir­sjá­an­leg reiði­köst ef álag eykst eilítið og lítið þol er gegn áreiti og álagi. Hann er hégóma­fullur, þarf stöðugt að hafa rétt fyrir sér og lætur ekki undan í ósætti nema sjá í því auk­inn hag fyrir sjálfan sig. Einnig er áber­andi skortur á eft­ir­sjá, skömm eða sam­kennd í garð ann­arra og hann á auð­velt með að brjóta illi­lega á maka sínum, svo sem með fram­hjá­haldi og daðri (jafn­vel í við­ur­vist maka), illu umtali um mak­ann eða skorti á stuðn­ingi í aug­ljós­lega erf­iðum aðstæðum. Hann virð­ist svo geta óhikað horft framan í nærum­hverfi sitt í kjöl­far slíkrar hegð­unar og reynir jafn­vel að rétt­læta hegð­un­ina og koma henni á ein­hvern hátt yfir á mak­ann: „Ég hélt bara fram­hjá því mig skorti ást og umhyggju heima hjá mér“, „ég ákvað að koma ekki heim í nótt, þú varst hvort sem er svo upp­tekin uppi á spít­ala hjá mömmu þinni“ eða með öðrum orðum, „þér er refsað fyrir að hafa ekki fulla athygli á mér“. 

„Ég hélt bara fram­hjá því mig skorti ást og umhyggju heima hjá mér“

Oft er talað um „narsissitic supply“ eða „nars­is­s­íska athygli“. Nars­is­s­ísk athygli er í raun og veru allt sem verndar nars­issist­ann frá skammar­til­finn­ingu eða höfnun og verndar þannig brot­hætta sjálfs­mynd hans.  Um er að ræða ann­ars vegar athygli (líka nei­kvæða) sem hann upp­lifir sjálfur á opin­beran hátt (svo sem frægð og frami) eða á per­sónu­legan hátt (svo sem aðdáun, lof, ótti, andúð). Hins vegar er um að ræða athygli sem hann fær út á annað fólk eða hluti í sínu lífi svo sem maka, börn, vini og jafn­vel við­skipta­vini. Þessi síð­ari athygl­is­gerð gerir nars­issist­anum kleift að lifa eðli­legri til­veru, veitir honum stolt, fjár­hags­legt öryggi, félags­lega við­ur­kenn­ingu og tengslin sem hann þarfn­ast. Einnig geta þetta verið hlutir eins og glæsi­legur bíll, fast­eignir, föt, vera með­limur í félagi eða fyr­ir­tæki eða allt sem virkar sem stöðu­tákn fyrir sjálfs­dýrk­and­ann og veitir honum því nars­is­s­íska athygli. Sjálfs­dýrk­and­inn hefur lítið þol fyrir tak­mörk­unum ann­arra og sér­stak­lega barna sinna og maka. Börnin þurfa helst að skara fram úr, fá hæstu ein­kunnir, ná hæstu mennt­un­ar­stigum og fá bestu vinn­una eða háa stöðu. „Standi“ mak­inn sig ekki eða börnin þá upp­lifir hann að þetta end­ur­spegli hann og bregst gjarnan argur við, því á sama hátt og með sigra, sér hann mis­tök náinna sem fram­leng­ingu á sjálfum sér. Þetta getur oft skapað þá til­finn­ingu hjá börnum og maka að þau geri aldrei nóg. Á sama hátt leggur hann sig fram við að gera lítið úr sigrum þess­ara aðila ef ekki hefur verið gefið rými fyrir nars­issist­ann til að njóta afrakst­urs­ins líka. Gjarnan upp­lifa þeir eigið fram­lag (þó lít­il­fjör­legt sé) sem fram úr hófi og vænta mik­ils þakk­lætis og við­ur­kenn­ingar fyrir. Þeir væru til dæmis lík­legir til að mæta ekki á mik­il­vægan atburð maka sínum til heið­urs, eins og verð­launa­af­hend­ingu og jafn­vel ásaka mak­ann um sjálf­hverfu í því sam­hengi (svo sem ein­hver þarf að sinna börn­unum í kvöld, ekki gerir þú það). 

Sjálfs­dýrk­andi myndar ekki auð­veld­lega djúpa teng­ingu eða til­finn­inga­sam­bönd við fólk og eiga þessir ein­stak­lingar oft yfir­borðs­kennd vina­sam­bönd sem oft byggja á aðdáun og gagn­rýn­is­leysi „vina“ sem fá ein­ungis að kynn­ast upp­haf­inni sjálfs­mynd nars­issist­ans. Átök eru því ekki algeng í þessum tengslum. Oft eru þetta ein­stak­lingar sem sjálfs­dýrk­and­inn velur vegna þess að honum steðjar ekki ógn af þeim og öðl­ast mik­il­vægi hjá eða nær valdi yfir, til að mynda með að vera hjálp­legur gagn­vart þeim, til dæmis með því að veita þeim fría þjón­ustu og því upp­lif­aður sem ein­stak­lega góður vinur. Þessir ein­stak­lingar virð­ist stundum hrein­lega „dýrka“ nars­issist­ann og eru til­búnir að ganga fram til að tala máli hans eða verja hann og myndu til dæmis hringja í börnin, mak­ann eða aðra til að tala máli hans óaf­vit­andi að þau er lítið annað en tól í stjórn­un­ar­leik hans. 

Hvað veldur narsissisma eða sjálfdýrkun?

Það er ákveð­inn ágrein­ingur innan sál­fræði og geð­lækn­is­fræð­innar um hvers vegna þetta ger­ist en almennt er talið að þetta sé afurð upp­eldis frekar en erfða­fræði­leg arf­leifð. Það getur þó verið um sam­bland hvoru tveggja að ræða.

Það sem fræði­menn hafa lagt fram sem lík­lega þætti sem stuðla að sjálfs­dýrkun eru eft­ir­far­andi:

  • Van­ræksla í æsku og óör­yggi, svo sem ef for­eldri er lítið til staðar eða sinnir til­finn­inga­þörf lítið.

  • Ýkt hól for­eldra eða skortur á hvatn­ingu í upp­eld­inu sem gefur barn­inu ranga hug­mynd um eigin getu eða afrek og skortur getur þá leitt af sér upp­hafna sjálfs­mynd.

  • Óút­reikn­an­leg hegðun upp­alanda, svo sem ef for­eldri á við áfeng­is­vanda að stríða eða er til­finn­inga­lega kalt og bregst ekki við til­finn­ingum eða fal­legum gjörðum barns á sama hátt og aðrir for­eldrar, svo sem ef barnið kemur og sýnir mynd sem það hefur teiknað og for­eldri lítur varla við henni eða ýtir barni frá sem þráir snert­ingu.

  • Mikill og djúp­stæður ótti við höfnun ann­arra vegna höfn­unar for­eldris í ein­hverju formi, svo sem með lít­illi við­veru eða skorti á atlæti. Frá þessu sprettur þá þessi mikla þörf fyrir aðdáun og við­ur­kenn­ingu ann­arra.

Þegar við önn­umst ung­börn þá spyrjum við lítið út í þarfir þeirra. Við fæðum þau og klæðum, knúsum þau og elskum og reynum að upp­fylla allar þeirra þarfir án þess að gera kröfur um nokkuð til baka frá þeim. Þegar barnið þroskast lærir það að aðrir í kringum það hafa þarfir og áttar sig á að mik­il­vægt er að taka til­lit til ann­arra og skilja ólíkar aðstæður fólks eða láta af eigin þörfum á stundum. Barn sem þróar með sér nars­iss­isma lærir þetta ekki eða illa og hefur því kröfur til umhverfis síns um að sínum þörfum sé mætt án skiln­ings á þörfum ann­arra eða til­finn­ingum. Oft er um að ræða veikt fjöl­skyldu­um­hverfi þar sem for­eldrar og aðrir nákomnir hafa ekki burði eða tíma til að sinna barn­inu og grunn­þörfum þess. Þetta á fyrst og fremst við um til­finn­inga­legar grunn­þarfir eins og hlýju og umhyggju, alúð, knús, sam­töl um til­finn­ingar og nánd eins og að fá að kúra hjá mömmu eða pabba. Einnig, ef fái barnið allt sem hug­ur­inn girn­ist lærir barnið litla streitu­stjórnun, þol­in­mæði eða þraut­seigju í erf­iðum aðstæðum. Það má því segja að nars­iss­ist­inn sé í raun van­rækt og ein­mana barn sem hefur gripið til innri úrræða til að auka eigið mik­il­vægi og ágæti. Það er þó ýmis­legt sem bendir til ein­hvers erfða­þáttar þar sem heilu fjöl­skyld­urnar geta verið með sterk nars­is­s­ísk ein­kenni og jafn­vel sið­blindu. Þó sið­blinda sé oft ein­kenni hjá ein­stak­lingum með sjálfs­dýrkun þá heyrir sið­blinda undir enn aðra af 10 teg­undum per­sónu­leik­arask­ana eða and­fé­lags­lega per­sónu­leika­röskun. Ein­stak­lingar geta oft verið með ein­kenni tveggja eða fleiri ólíkra rask­ana sem gerir grein­ingu og með­ferð oft flókn­ari. 

„Það má því segja að nars­iss­ist­inn sé í raun van­rækt og ein­mana barn sem hefur gripið til innri úrræða til að auka eigið mik­il­vægi og ágæti“

Ef sjálfs­dýrk­and­inn er end­ur­tekið ásak­aður um til­lits­leysi, skort á sam­kennd, yfir­gang eða annað getur hann lært hvernig gott sé að bregð­ast við þrátt fyrir að hann upp­lifi ekki skömm eða sekt. Þeir geta því verið ágætir í að segja hluti eins og „ég vil bara gera það sem er best fyrir alla“, „ég set sjálfan mig aldrei í for­gang“ eða aðrar svip­aðar setn­ingar sem hafa það að mark­miði að leiða umhverfið á villi­götur. Á sama tíma upp­lifa ein­stak­ling­arnir í kring að gengið sé yfir þá, lítið til­lit tekið til þeirra, ósann­gjarnar kröfur settar fram og upp­lifa því oft ákveðna „ringul­reið“ í til­finn­inga­lífi og hugs­unum. 

Sjálfs­dýrk­and­inn er ein­stak­lega slyngur í að spila hlut­verk fórn­ar­lambs­ins og næla sér í stuðn­ing úr nærum­hverf­inu. Til að ná því fram svífst hann ekki neins og segir það sem honum dettur í hug til að ná í sam­kennd. Afar mik­il­vægt er að biðja fólk sem þig grunar að gætu verið sjálfs­dýrk­endur um stað­reyndir. Þeir segja setn­ingar eins og „hún er búin að senda mér fullt af ljótum skila­boðum ...“; „hún er búin að hafa af mér allar eigur ...“; „ég er bara á göt­unni ...“. Biðjið um að fá að sjá gögn eða aðra hald­bæra hluti sem ekki er hægt að hrekja en fyrst og fremst skulið þið biðja um hina hlið máls­ins nema þú kjósir að vera eins og kork­tappi í ólgu­sjó nars­issist­ans. Stað­reyndir eru gjarnan í hróp­andi ósam­ræmi við orðin. Hann bregst oft­ast ekki vel við slíkri bón og ásakar þig um að standa með hinum aðil­anum og fær þig þannig til að draga þig í hlé, gjarnan með því að vekja hjá þér sekt­ar­kennd, til að halda frið­inn. Hann kemst því oft langt í ásök­unum sínum án þess að fólk sjái nokkurn tíma hald­bær gögn. Þessar upp­lýs­ingar eru ein­stak­lega mik­il­vægar í heimi lög­mennsk­unnar þar sem nars­is­s­ískir ein­stak­lingar geta keyrt upp lög­manns­kostnað ein­ungis byggt á orðum sínum og kom­ast oft upp með það í lengri tíma að leggja ekki fram hald­bær gögn máli sínu til stuðn­ings og mála sig sem fórn­ar­lamb.

Er kynjamunur á narsissískri hegðun karla og kvenna? 

Félags­mótun kynj­anna getur orðið til þess að karl­kyns og kven­kyns sjálfs­dýrk­endur þróa með sér ólík sál­fræði­leg kænsku­brögð. Kvenkyns nars­issistar virð­ast hafa til­hneig­ingu til að aðlag­ast sam­fé­lags­legum við­horfum að konur séu blíðar, góðar, umhyggju­samar, góðar mæður og svo fram­vegis. Nars­is­s­ískar konur eru því lík­legri til að hegða sér á meira óbeinan hátt en karl­kyns nars­issistar. Því eru þær ekki eins lík­legar til að vera við­ur­kenndar sem sjálfs­dýrk­endur í sam­fé­lag­inu og er oft fjallað um hinn hefð­bundna nars­issista sem karl­mann. 

Það er algengur mis­skiln­ingur að karl­kyns sjálfs­dýrk­endur séu almennt árás­ar­gjarn­ari en kven­kyns sjálfs­dýrk­endur, í reynd eru bæði kynin jafn árás­ar­gjörn en láta það í ljós með ólíkum hætti. Hann er lík­legri til að láta í ljós ógn­andi lík­am­leg tjá­skipti (svo sem slá, öskra, ógna) en kven­kyns nars­iss­ist­inn er lík­legri til að nota  „tengsla­árás­ar­girni“. Þá er um að ræða dulda fyr­ir­ætlun um að skaða þol­and­ann með því að koma höggi á félags­leg tengsl og vina­tengsl. Þetta ger­ist mest í gegnum til­finn­inga­legt ofbeldi (bak­tjalda­makk, hót­anir, dreifa sögu­sögnum, halda fólki aðskildu, segja öðrum að tengj­ast ekki ein­hverjum, illt umtal við aðra) og nær þannig að gera mak­ann óör­uggan og ringlaðan. 

„Þá er um að ræða dulda fyr­ir­ætlun um að skaða þol­and­ann með því að koma höggi á félags­leg tengsl og vina­tengsl“

Þessi lúmska list til­finn­ing­legrar eyði­legg­ingar er iðkuð dag­lega af nars­is­s­ískum konum alls staðar. Ein­elt­is­hegð­unin gegn­sýrir öll sam­bönd kven­kyns sjálfs­dýrk­and­ans án til­lits til hvort það er á heim­il­inu, stór­fjöl­skyld­unni, vinnu­staðnum eða í félaga­sam­tökum. Í þess­ari teg­und árásar er hót­unin um ein­hvers konar útskúfun notuð til að skaða þol­and­ann og ávinn­ing­ur­inn liggur í því virði sem fórn­ar­lambið setur í að til­heyra fjöl­skyldu, skóla, vinnu­stað eða öðrum hópi. 

Oft er erfitt fyrir þol­and­ann að tala um þessa teg­und ofbeldis. Augljós lík­am­leg árás­ar­girni karla er auð­þekkj­an­leg af öllum og þol­and­anum sjálfum en oft er mjög erfitt að þekkja og útskýra duldu tengsla­árás­argirn­ina. Fórn­ar­lambið er því oft ráð­villt gagn­vart því að bera kennsl á sál­fræði­lega ofbeldið sem það upp­lifir. Nars­is­s­íska konan er líka mjög snjöll í að reið­ast ekki í við­ur­vist vitna en þegar hún nær þol­and­anum einum blasir harð­gerð refs­ing við.

Gas­lýs­ingEin­stak­lingar sem verða fyrir mik­illi gas­lýs­ingu í sam­böndum fara að upp­lifa mikla ringul­reið, efast um geð­heilsu sína og minni.

Hvað er gaslýsing (gaslighting) eða villuljós?

Hugtakið gas­lýs­ing er byggt á kvik­mynd­inni „Gaslight­ing“ frá 5. ára­tugnum þar sem eig­in­maður reynir að telja konu sinni trú um að hún sé að missa vitið til að geta lagt hana inn á geð­sjúkra­hús og tekið yfir arf hennar. Er þetta algeng aðferð nars­issist­ans til að fá sínu fram og snýst hún um það að fá þig til að efast um upp­lif­anir þínar eða raun­veru­leika og hefur því stundum einnig verið nefnd „villu­ljós“. Ein­stak­lingar sem verða fyrir mik­illi gas­lýs­ingu í sam­böndum sínum við sjálfs­dýrk­endur fara að upp­lifa mikla ringul­reið, efast um geð­heilsu sína og minni og geta verið komnir í mikla van­líðan og óör­yggi ef ekki er gripið inn í. 

Gas­lýs­ing hefur verið skil­greind á ýmsan hátt en góða sam­an­tekt er að finna hjá National Domestic Hotline í Banda­ríkj­unum þar sem fram­setn­ingin er eft­ir­far­andi:

  • Að halda aftur af sam­skiptum (neita að hlusta eða segj­ast ekki skilja eitt­hvað sem ætti að vera flestum auð­skilj­an­legt).

  • Þegar reynt er að telja þér trú um að minn­ing þín af ákveðnu atviki sé röng.

  • Þegar reynt er ítrekað að skipta um umræðu­efni eða gagn­rýna það hvernig þú hugsar um hluti. 

  • Þegar gert er lítið úr til­finn­ingum þínum eða þörfum.

  • Þegar við­kom­andi þyk­ist hafa gleymt því hvað gerð­ist eða neitar ein­hverju sem hann hafði áður við­ur­kennt að átti sér stað. 

Gas­lýs­ing er versta form and­legs ofbeldis og fer afar illa með sál­ar­líf fólks og er fólki því almennt ráð­lagt að kom­ast undan þessum sam­böndum um leið og það áttar sig á stöð­unni. Að lenda í því að efast um raun­veru­leika sinn er eitt­hvað sem skilur á end­anum á milli góðrar eða slæmrar geð­heilsu. Góð geð­heilsa á grunn sinn í sterkum raun­veru­leika­tengslum.

„Mik­il­vægt er að vernda sjálfan sig og aðra nákomna frá þessum eitr­uðu sam­skiptum“

Mik­il­vægt er að vernda sjálfan sig og aðra nákomna frá þessum eitr­uðu sam­skiptum. Ef fólk er búið að vera lengi í sam­skiptum við nars­is­s­íska ein­stak­linga er það stundum búið að þróa með sér áfalla­tengsl (traumatic bond­ing) sem er skil­greint innan sál­fræð­innar sem óheil­brigð tengsl sem mynd­ast á milli ein­stak­lings sem beittur er ofbeldi og þess sem því beitir. Þetta er betur þekkt sem „nars­is­s­ískt fórn­ar­lambs­heil­kenni“ og stundum verið kallað „Stokk­hólms­heil­kenni“. Án umtals­verðrar þekk­ingar á sjálfs­upp­hafn­ingar-per­sónu­leika­röskun er erfitt fyrir með­ferð­ar­að­ila að skilja hin yfir­þyrm­andi áhrif nars­is­s­íska ofbeld­is­ins á þol­and­ann, áhrif sem eru svo máttug að þau geta endað í nars­is­s­ísku fórn­ar­lambs­heil­kenni. Þol­and­inn lærir fljótt að hót­unum er fram­fylgt svo hann upp­lifir sig í raun­veru­legri hættu. En á rugl­ings­legan hátt getur hann einnig hlotið svolitla góð­vild frá nars­issist­anum svo hann skynjar sig tengdan aftur og teng­ingin færir honum örygg­is­til­finn­ingu á ný. Hann fer að finna til sam­úðar með honum, verja hann og sætta sig við aðstæður sínar því hann trúir því að það auki líkur á því að hann kom­ist klakk­laust frá erf­iðum aðstæðum eða „ef ég hlýði þá á ég betri mögu­leika“.

Hvernig þekkjum við gaslýsingu?

Ef þú ert fastur/föst í neti nars­issist­ans vegna fjöl­skyldu­tengsla þarf mesta vinnan að fara fram innra með þér. Ekki leyfa honum að beita þig gas­lýs­ingu. Þegar setn­ingar eins og „það er bara ekki rétt hjá þér, ég hef aldrei sagt það ...“, „þetta er bara algjör ímyndun í þér, þú ert bara eitt­hvað óeðli­lega við­kvæm ...“, „ég skil bara alls ekki hvers vegna þú ert að gera svona mikið mál úr engu ...“, „það er með ólík­indum hvað þú ert sjálfselsk ...“, „ertu að verða eitt­hvað geð­veik“ eru orðnar algengar í lífi þínu (eða aðrar svip­aðar) skaltu hugsa vand­lega hvort verið sé að beita þig gas­lýs­ingu. Nars­issistar nota þetta í alls kyns sam­hengi, í ást­ar­sam­bandi, vinnu­sam­bandi eða jafn­vel gagn­vart hópi fólks eins og Robin Stern, höf­undur bók­ar­innar „The gaslight effect“, hefur ásakað Donald Trump um að gera með setn­ingum eins og „I never said that ...“ þó svo að fyrir liggi harðar stað­reyndir fyrir hinu gagn­stæða. 

Þol­and­inn fer því oft á öfga­kenndan hátt að leita stað­fest­inga á því að upp­lifun sé rétt, svo sem að skoða síma maka síns til að reyna að sýna fram á að upp­lifun hans sé rétt og ekki sé um ímyndun að ræða og þannig sýna af sér hegðun sem hann myndi ann­ars aldrei hafa sýnt. Þannig nær sjálfs­dýrk­and­inn yfir­hönd­inni, þú hefur nú gert eitt­hvað gagn­rýni­vert og nú er hægt að halda því yfir höfði þér. „Sál­fræð­ing­ur­inn minn segir að þú sért klikkuð ...“, „vinir mínir segja að þú beitir mig ofbeldi ...“, og á end­anum er ekk­ert eftir annað en að leggj­ast á grúfu í van­líðan þar sem þú átt orðið erfitt með að skilja á milli raun­veru­leika og ímynd­unar og láta allt yfir þig ganga sem er að ger­ast í kringum þig, sam­þykkja frá­sagnir og rétt­læt­ingar sjálfs­dýrk­and­ans sem raun­veru­leika þinn eða koma þér hið fyrsta í burtu hljóð­lega og var­lega. 

„Sál­fræð­ing­ur­inn minn segir að þú sért klikkuð“

Það er þó því miður oft þannig að margir bregð­ast við með því að sam­þykkja að upp­lifun þeirra sé röng, aðlaga hana að frá­sögn nars­issist­ans, þrátt fyrir að vita betur, allt til að forð­ast átök og láta sam­bandið ganga – dæmi­gerð áfalla­tengsl. Nars­iss­ist­inn er þó gjarn á að láta sér leið­ast og fer fljótt að leita eftir ein­hverju meira spenn­andi og finnur sér oft við­hald til að gera lífið lit­rík­ara. Athyglin og við­ur­kenn­ingin sem mak­inn fékk í upp­hafi fjarar út. Oft endar fram­hjá­haldið ekki í skiln­aði því sjálfs­dýrk­and­inn nær að sann­færa mak­ann um að fram­hjá­haldið hefði aldrei átt sér stað ef mak­inn hefði bara staðið sig betur eða að þetta hafi á ein­hvern hátt verið mak­anum að kenna. Óttinn, þján­ingin, rugl­ing­ur­inn, innra umrótið og ringul­reiðin sem þol­and­inn upp­lifir veldur því að hann „tiplar á tánum“ til að forð­ast frek­ari átök við nars­issist­ann. Ofbeldið er oft mjög lúm­skt, lævískt og  óbeint þar sem sjálfs­dýrk­and­inn leggur mikið á sig til að forð­ast að vera álit­inn ofbeld­is­fullur opin­ber­lega. 

Nars­iss­ist­inn getur lifað eins og fræ innra með þol­and­anum jafn­vel eftir að honum hefur tek­ist að forða sér og hann getur verið mörg ár að jafna sig á svona sam­skiptum og getur stundum ekki gert það nema með góðri aðstoð fag­manna. 

Það sem er erfitt við gas­lýs­ing­una er að sá sem henni beitir er snill­ingur í tækn­inni og því oft knár að láta vera sann­leiks­korn í ásök­un­inni. Þú gætir hafa í eitt skipti sagt að þú værir þreytt/ur og vildir helst ekki fá gesti og þá er lík­legt að dregið sé fram síðar að „þú viljir aldrei fá gesti og það sé stórt vanda­mál í ykkar lífi ...“. Þegar búið er að skapa ringul­reið­ina í huga þér ferðu í að biðj­ast afsök­unar á að hafa verið svona til­lits­laus.

En hver eru ein­kenni þess að ein­stak­lingur sé beittur gas­lýs­ingu? 

Við­kom­andi er far­inn að:

  • Efast um ákvarð­anir sínar og á orðið erfitt með að taka ákvörðun.

  • Hugsa mikið og end­ur­tekið um ein­hvern „galla“ sem hann hafi, svo sem að vera of við­kvæmur eða ekki nógu þol­in­móður.

  • Efast um sam­band sitt með hugs­unum eins og „mér fannst hann/hún alltaf svo ynd­is­leg/ur og frá­bær en núna líður mér eins og ég sé ómögu­leg/ur og hálf rugluð/aður bara ...“. 

  • Upplifa að vera end­ur­tekið í rifr­ildi, sem ekki var umbeðið og alveg sama hvað gert er til að reyna að enda það, ber það ekki árangur. Umræðan virð­ist fara í hringi, sann­leik­anum er snúið á hvolf, alveg sama hversu margar leiðir farið er að því að útskýra – er engin áheyrn. Það leys­ist sjaldan nokkuð nema þú gefir eftir og biðj­ist fyr­ir­gefn­ingar.

  • Finna fyrir þoku­kenndum og óskýrum hugs­unum sem stundum er erfitt að ná almenni­lega utan um. 

  • End­ur­tekið að biðj­ast afsök­unar og fyr­ir­gefn­ingar og vita stundum ekki lengur fyrir hvað.

  • Afsaka hegðun makans við vini og vanda­menn sem taka eftir ósið­sam­legri, stjórn­andi eða hömlu­lausri hegðun. 

  • Eiga erfitt með að skilja hvers vegna nars­iss­ist­inn er ekki ham­ingju­samur þegar allt er gott í umhverf­inu.

  • Átta sig á því að eitt­hvað er veru­legt rangt í þessu sam­bandi en eiga erfitt með að setja fingur á hvað það er.

Þó svo sjálfs­dýrk­and­inn hafi ekki alltaf þína bestu hags­muni í huga, þá getur hann elskað þig. Ást þeirra er þó oft upp­lifuð sem fall­völt. Makinn fer fljótt að upp­lifa að hann þurfi að „standa sig betur“ og teng­ingin verður ótta­blandin. Þetta getur gerst þó svo mak­inn hafi ekki áður upp­lifað óör­ugg tengsl, slíkur er sjúk­leiki stjórn­un­ar­innar. Ást­ar­sam­bandið fer því gjarnan að snú­ast yfir í það að mak­inn er kom­inn í það hlut­verk að upp­fylla enda­lausar þarfir, hratt og vel, til að halda nars­issist­anum ánægðum sem hrósar svo gjarnan mak­anum með því að gagn­rýna fyrri maka og notar þann sam­an­burð, svo sem: „Þú ert eini mak­inn minn sem hefur gert þetta fyrir mig ... þú ættir að vita hvernig þetta var í síð­asta sam­bandi ...“. Þú vilt því gjarnan gera betur og jafn­vel bæta upp fyrir þessa bitru hegðun sem síð­asti maki hafði sýnt. 

Ástin sem sjálfs­dýrk­and­inn upp­lifir snýst þó gjarnan um að þú hafir eitt­hvað sem hann vill fá, eitt­hvað sem getur gert hann stærri og meiri, svo sem að þú sért afreks­mann­eskja eða sért í góðri stöðu. Hægt og rólega vill hann þó hafa yfir­burði og hafa stjórn á því sem þú gerir. Ef honum finnst hann ekki hafa stjórn, verður hann argur og refsandi og byrjar þá gjarnan að safna „liði“ gegn þér. Þú skalt finna fyrir því að þú hafir ekki gert það sem nars­is­is­st­inn vildi og hann ásakar þig gjarnan um stjórn­semi látir þú ekki í blindni að vilja hans. Enginn vill vera ómögu­legur eða stjórn­andi í ást­ar­sam­bandi og mak­inn dregur þá gjarnan úr kröfum sínum eða vilja til að þurfa ekki að sitja undir ásök­unum nars­is­is­stans og þannig nær hann smám saman full­komnum yfir­burðum í sam­band­inu. 

Til að gera þetta fyr­ir­bæri enn ill­skilj­an­legra þá getur sjálfs­dýrk­and­inn stundum haft stjórn á því hvernig hegðun hans birt­ist gagn­vart öðrum. Ein­stak­lingur getur til dæmis sýnt af sér mjög nars­is­s­íska hegðun í einka­lífi og vinnu en ekki í vina­sam­böndum og notar gjarnan það umhverfi til að beita maka sinn ofbeldi. „Vinum mínum finnst þú vera ...“, „besta vin­kona mín telur þig vera ...“ og þannig hefur nars­iss­ist­inn eign­ast enn eitt vopnið. Í sál­fræð­inni kall­ast þetta „triangulation“ (draga inn þriðja aðila) og er þekkt stjórn­un­ar­að­ferð raskaðra ein­stak­linga. Nars­iss­ist­inn getur þá jafn­vel gengið svo langt að nálg­ast ein­stak­linga í innsta hring maka síns og reynt að hafa áhrif á þá, rægja mak­ann og snúa þeim gegn honum. Makinn getur lent í því að vinir nars­issist­ans vilji lítið eða ekk­ert af honum vita, jafn­vel vinir sem hann hefur aldrei hitt því búið er að tryggja með slæmu umtali að engin sam­skipti verði þarna á milli og hann hefur skapað sér nýjan vett­vang fyrir fórn­ar­lambs­hlut­verkið og tryggt sér þannig stöðu sína. Saklaust fólk verður því í raun ger­endur í því ofbeldi sem nars­iss­ist­inn er að sýna maka sínum. 

Er hægt að hjálpa fólki með mikil einkenni?

Í raun er með­ferð­ar­sam­band drauma­sam­band nars­issist­ans, því þar fær hann sinn tíma til að ræða og beina allri athygl­inni að sjálfum sér og þarf ekki að vita neitt um eða taka til­lit til með­ferð­ar­að­il­ans. Þeir gætu því einmitt haldið „með­ferð“ lengi út, jafn­vel árum saman, sjái með­ferð­ar­að­il­inn ekki í gegnum þá. Hann greiðir fyrir við­talið og er tím­inn því full­kom­lega á hans for­sendum. Það getur verið mjög erfitt bæði fyrir með­ferð­ar­að­ila að átta sig á nars­iss­ism­anum og fyrir nærum­hverfið að takast á við hann því hann er háll sem áll og snill­ingur í að spila á umhverfi sitt. 

„Það getur verið mjög erfitt bæði fyrir með­ferð­ar­að­ila að átta sig á nars­iss­ism­anum“

Með­ferð­ar­að­ilar fá oft ekki raun­veru­legt tæki­færi til að vinna með þessar per­sónu­leik­arask­anir því oft sækja þessir ein­stak­lingar ekki „með­ferð“ en geta verið slyngir í að leita „stuðn­ings“ hjá með­ferð­ar­að­ilum hafi þeir ekki mikla þekk­ingu á per­sónu­leika­rösk­unum, átta sig ekki á vand­anum og veita þeim end­ur­gjöf á eigið ágæti. Slíkt með­ferð­ar­sam­band byggir þá á ímynd sem sjálfs­dýrk­and­inn hefur dregið upp af sjálfum sér, gjarnan byggða á umkvört­unum um að vera mis­skil­inn og van­met­inn af fólki, vera ein­læg og góð mann­eskja sem umhverfið ein­hvern veg­inn kemur illa fram við. Þarna getur verið um að ræða per­sónu­leg sam­bönd eða við­skipti og rekstur þar sem nars­iss­ist­inn ber aldrei ábyrgð, það sem úrskeiðis fór var öðrum að kenna og hann tekur á sig hlut­verk fórn­ar­lambs­ins. Frá­sagn­irnar eru frá sjón­ar­hóli sjálfs­dýrk­and­ans, þar sem raun­veru­leik­inn er gjarnan við­snú­inn, illa bjag­aður eða frá­sagnir hrein­lega ósannar. Hafi með­ferð­ar­að­il­inn ekki næga þjálfun og biður ekki um stað­reyndir frekar en frá­sagnir, getur hann auð­veld­lega sog­ast inn í hlut­verk stuðn­ings­að­ila sem lætur vinn­una snú­ast um að styrkja nars­issist­ann til að standa með sjálfum sér. Þannig styrkir hann óaf­vit­andi og nærir nars­is­s­íska hegðun og hefur nú gefið sjálfs­dýrk­and­anum enn eitt vopnið til að nota á nærum­hverfi sitt s.s. „sál­fræð­ing­ur­inn minn segir að ...“. 

Leiti þol­andi til með­ferð­ar­að­ila með líðan sína eru það oft til­tölu­lega hvers­dags­legar umkvart­anir, svo sem að þeir finni fyrir þung­lyndi, finni fyrir óör­yggi og kjark­leysi, fái kvíða­köst eða þeim finn­ist þeir ekki vera að standa sig, ómeð­vit­aðir um að þeir hafi lifað á „stríðs­svæði“ þar sem nar­sísískur per­sónu­leiki hefur stjórnað. Þolendur virð­ast oft spenntir og tauga­veikl­aðir og ótta­stig þeirra getur verið hátt á sama tíma og sjálfs­virð­ing þeirra er lág. Oft tjá þeir ringul­reið í hugsun og getur raun­veru­lega fund­ist eins og þeir séu að missa vitið, gráta gjarnan stjórn­laust í við­tali. Þeir eru lík­legir til að láta í ljós til­finn­ingar um skömm. Þeir hafa einnig til­hneig­ingu til að vera ofurá­byrgð­ar­fullir og hneigðir til sjálfs­á­sök­unar vegna þess að þeir taka ábyrgð á nars­is­s­ísku hegð­un­inni. Í hvert sinn sem nars­is­s­ískri reiði er hrint af stað er þol­and­anum kennt um (til dæmis „þetta er þér að kenna, þú máttir vita að þetta mundi koma mér í upp­nám, sjáðu nú hvað þú hefur gert“). Þol­and­inn getur virkað valda­laus eða minni máttar og fundið fyrir mik­illi sekt­ar­kennd þegar hann talar um ger­anda sinn, jafn­vel upp að því marki að vilja vernda hann. Með­ferð­ar­að­ili með þekk­ingu á nars­is­s­ísku ofbeldi og hag­nýtri sér­kunn­áttu í vinnu með áföll mun verða líf­lína sér­hvers þol­anda nars­is­s­ísks ofbeldis. Nauð­syn­legt er að átta sig á nars­is­s­íska fórn­ar­lambs­heil­kenn­inu til að skilja af hverju þol­and­inn vill enn verja, styðja og jafn­vel elska ger­and­ann eftir allt það sem hann hefur gengið í gegnum. 

Þegar unnið er með ein­stak­ling sem sýnir ein­kenni nars­is­s­ísks fórn­ar­lambs­heil­kennis upp­lifir hann sig gjarnan sund­ur­tættan og skilur illa hvað hvað hefur hent hann. Fræðsla um nars­is­s­íska per­sónu­leika­röskun er því mik­il­væg til að styðja ein­stak­ling­inn í að koma sér út úr ringul­reið­inni. Án slíkra upp­lýs­inga getur ein­stak­ling­ur­inn verið varn­ar­laus­ari fyrir frek­ari mis­notkun og neti ann­arra nars­issista í fram­tíð­inni. Þegar ein­stak­lingur hefur áður orðið fórn­ar­lamb nars­issista (hvort sem það ger­ist í barn­æsku eða síðar á lífs­leið­inni) gerir hann sér síður grein fyrir „marg­slungnum dansi“ sjálfs­dýrk­and­ans sem gerir hann mót­tæki­legan fyrir þess­ari teg­und ofbeldis.

Hvernig tökumst við á við narsissíska persónuleikaröskun?

Mik­il­vægt er að forð­ast að leggja grein­ingar á fólk séum við ekki fag­fólk á sviði geð­heil­brigðis. Gott er hins vegar að lesa sér til um þessa eig­in­leika, átta sig á þeim og læra hvernig best er að takast á við þá og þau sjúku sam­skipti sem ein­kenna þessa ein­stak­linga. Margir gera heið­ar­lega til­raun til að ræða þau atriði sem valda van­líðan í sam­bandi en oft­ast er það ekki lík­legt til árang­urs og sjálfs­dýrk­and­inn lík­legur til að bregð­ast illa við. Allt miðar að því að forð­ast gagn­rýni og við­halda sjálfs­mynd­inni og allt sem ógnar henni er túlkað sem árás og stjórnun utan frá. Sé nars­iss­ist­inn í lífi þínu með aug­ljósa yfir­burði svo sem yfir­maður eða kenn­ari er alls ekki skyn­sam­legt að benda á ein­hverja van­kanta því sá aðili er lík­legur til að grípa til refsandi aðgerða á ein­hvern hátt jafn­vel með því að reka þig eða finna leið til að fella þig á mik­il­vægu verk­efni eða loka á við­skipta­tengsl, tölvu­pósta eða aðra þjón­ustu á þínum vegum.

Áttir þú þig á því að þú hafir verið fórn­ar­lamb nars­issista sem hafi ein­sett sér að ná þér í net sitt skaltu koma þér í burtu hið fyrsta. Ráð­leg­ast er að gera það hljóð­lega og var­lega því nars­iss­ist­inn getur ann­ars ráð­ist gegn þér og reynt hvað hann getur til að hefna sín á þér til að refsa þér fyrir að hafa hafnað honum. Þetta gerir hann með því að snúa umhverfi þínu gegn þér, hringir jafn­vel og heim­sækir fjöl­skyldu­með­limi þína til að segja þeim hvað þú sért í miklu ójafn­vægi eða jafn­vel hversu lasin þú sért, snýr vina­hópnum gegn þér með sögum um stjórn­semi þína eða sjálf­hverfu, því nars­iss­ist­inn er góður í því að snúa raun­veru­leik­anum á hvolf. Hann er einnig lík­legur til að gera skiln­að­inn að mjög erf­iðu ferli. 

„Sjálfs­dýrk­and­inn mun leita allra leiða til að við­halda stjórn og fá þig til að breyta mörkum þínum með því að ásaka þig“

Sértu í sam­skiptum við nars­issista sem eru þess eðlis að þú getir ekki farið í burtu, ef þetta er til dæmis fjöl­skyldu­með­limur, er eina leiðin að setja mjög skýr mörk í sam­skiptum ykkar. Mörk sem hvergi er vikið frá. Sjálfs­dýrk­and­inn mun leita allra leiða til að við­halda stjórn og fá þig til að breyta mörkum þínum með því að ásaka þig eða jafn­vel maka þinn um stjórn­semi, ofbeldi eða órétti. Ofbeldi er mjög vin­sælt orð í orða­bók nars­issist­ans því þannig fær hann þig til að gefa eftir eða aðra til að standa með sér. Það vill jú eng­inn sitja undir því að beita ofbeldi eða standa hljóður hjá slíku. Einnig getur hann gripið til þess að reyna að heilla þig og umvefja þig jákvæðri end­ur­gjöf, svo sem hversu betri þú sért en aðrir eða hvað nars­iss­ist­inn sjái nú eftir því hversu mikið hann særði þig (í fyrra ást­ar­sam­bandi) eða brást þér (í upp­eldi) – allt er sagt til að reyna að kom­ast á milli þín og núver­andi maka (eða ann­arra mik­il­vægra tengsla) og ná stjórn yfir þér aftur. Sjálfs­dýrk­and­inn er sér­fræð­ingur í að halda fólki aðskildu og passar það vel að fólk hitt­ist ekki til að bera saman frá­sagnir, reynslu sína eða upp­lif­anir. Það er mikið í húfi fyrir nars­issist­ann að slíkt ger­ist ekki og þannig getur hann jafn­vel beitt þig tálmun sem for­eldri (sé um skilnað að ræða) sé hann í aðstöðu til slíks. Hann leggur sig fram um að reyna að sverta fyrr­ver­andi maka svo vinir eða fjöl­skylda leiti ekki frá­sagnar hinum megin frá heldur fylki liði um nars­issist­ann sem upp­lifir sig þá mátt­ugri en nokkru sinni áður. Það er ekki fyrr en sam­böndum lýkur og fólk talar hugs­an­lega saman að lyga­vef­ur­inn kemur í ljós. Sjálfs­dýrk­and­inn er þó góður í því að við­halda þögn á milli aðila með óbeinum eða beinum hót­unum um afleið­ingar af slíkum sam­skiptum. 

Einnig má nefna að for­eldri, oft móðir, vinnur gegn eðli­legum til­finn­inga- og félags­þroska með því að koma fram við barn eins og smá­barn þó það sé komið á annað þroska­stig. Það er auð­veld­ara að stjórna smá­barni en eldra barni. Það má því oft sjá eldra barn með­höndlað eins og sér yngra barn. 

Ef þú telur að þú sért mögu­lega að upp­lifa ofbeldi eins og gas­lýs­ingu í þínu sam­bandi við maka, for­eldri, vinnu­fé­laga eða aðra sem gegna mik­il­vægu hlut­verki í lífi þínu skaltu leita þér aðstoðar hjá sál­fræð­ingi sem hefur mikla þekk­ingu á þess­ari stjórn­un­ar­tækni. Stattu fastur/föst á því að þú getir vel borið kennsl á raun­veru­leika þinn, ekki láta sann­færa þig um annað. Þú þarft ekki að reyna að „kenna þeim eða breyta“ láttu af því hlut­verki, það er oft­ast til einskis hvort sem er. Sambönd við nars­is­s­íska ein­stak­linga geta farið illa með sál­ar­líf fólks og skaðað orð­spor þess. Það skal tekið fram að þó frá­sögn þessi fjalli um nars­issist­ann í karl­kyni og þol­and­ann í kven­kyni má setja hvaða kyn sem er inn í text­ann. Sjálfs­dýrk­and­inn getur auð­veld­lega verið kona. Leitaðu þér aðstoðar hjá þeim úrræðum sem eru í boði fyrir þolendur ofbeldis. Gott er að hefja þá göngu hjá Bjark­ar­hlíð, Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða í Bjarma­hlíð á Norð­ur­landi. Þar fer fram fag­lega unnið mat á vand­anum og aðstoð er veitt við að leita þá frek­ari stuðn­ings.  


Höfundur er doktor í sálfræði og starfsmaður í Bjarkarhlíð.

Hluti greinarinnar byggir á þýðingu Írisar G. Stefánsdóttur á greinunum Narcissistic Victim Syndrome: What the heck is that? og Can women be narcissistic? eftir Christine Louis De Canonville. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár