Íslendingar fastir erlendis: „Okkur langar að komast heim“

Yfir sex þúsund símtöl og fyrir­spurnir hafa borist borgara­þjónustu utan­ríkis­ráðuneytisins síðustu vikur, meðal annars frá Íslendingum sem eru stranda­glópar erlendis. Einn óskaði til að mynda um aðstoð við að finna uppskrift að fiskisúpu sem hann hafði fengið á Íslandi fyrir nokkrum árum.

Dætur Birtu og Othman
Dætur Birtu og Othman Þær hafa ásamt for­eldrum sínum verið í útgöngu­banni frá 15. mars, en þau dvelja í nálægð við borg­ina Marra­kesh í Marokkó. For­eldr­arnir bíða þess að kom­ast heim til Íslands með þær en gleðj­ast yfir því að hafa garð þar sem dæt­urnar geta leikið sér. Mynd: Úr einkasafni

Enn eru 57 einstaklingar stranda­glópar víða um heim, sem ekki hefur tekist að koma aftur heim til Íslands eftir að ferða­takmarkanir skullu á vegna covid-19. Þeir voru 211 um mánaða­mótin mars/apríl en síðan þá hafa tæplega 150 manns fengið aðstoð við að komast til landsins frá borgara­þjónustu utan­ríkis­ráðuneytisins. Flestir þeirra sem ekki hafa komist heim eru á Spáni en einnig eru einstaklingar í nokkrum ríkjum Afríku, í Mið-Austur­löndum, Austur-Asíu, Suður-Ameríku og víðar. Þetta kemur fram í svari frá Maríu Mjöll Jóns­dóttur, deildar­stjóra hjá Utan­ríkis­ráðuneytinu. 

Á meðal þeirra sem vilja komast heim eru hjónin Birta Árdal Nóra Bergsteins­dóttir og Othman Karoune. Þau hafa verið búsett á víxl á Íslandi og Marrokkó, þaðan sem hann er. Þau eiga fjórar ungar dætur og hafa verið í ströngu útgöngu­banni frá því 15. mars. „Það var björgunar­flug frá Marokkó 17. apríl sem við hefðum getað farið með, en við fengum að vita af því með tveggja daga fyrirvara og það var of margt sem við þurftum að greiða úr til að geta stokkið á það. Við ákváðum því að fara ekki í flugið, enda héldum við að útgöngu­bannið væri við það að klárast. Sama dag og flugið fór var hins vegar tilkynnt að það yrði að minnsta kosti mánuður í viðbót í útgöngu­banni hér,“ segir Birta. Hún bætir þó við að aðrir Íslendingar hafi komist að í þeirra stað sem hafi verið gott, því sjálf búi þau við góðar aðstæður, hafi meðal annars garð út af fyrir sig þar sem börnin geta leikið sér.

„En okkur langar að komast heim“ 

Óvissan er hins vegar farin að reyna á, segir Birta, og ekki sér fyrir endann á henni. Landa­mærunum hafi verið lokað 19. mars og síðan hafi ekki verið hægðar­leikur að komast úr landi. Af og til séu flug á áætlun en þeim sé alltaf frestað þegar nær dregur brott­farardegi. „Við vitum ekki hvernig þetta verður, hvort við kaupum flug þegar útgöngu­banninu lýkur eða hvort það verði yfir höfuð einhver flug að hafa þá. Við erum í sambandi við danska sendi­ráðið hér og starfs­fólkið þar ætlar að láta okkur vita af það verður flug á þeirra vegum héðan, en það er í raun og veru ólíklegt. Það fer vel um okkur þó það sé að verða ansi heitt, um 40 gráður í dag. En okkur langar að komast heim.“ 

Hjálpuðu elskendum og mataráhugafólki

Frá og með deginum í dag, 4. maí, er hefð­bundið snið komið á starfsemi borgara­þjónustunnar en hún er opin árið um kring, allan sólar­hringinn. Hlutverk hennar alla jafna er að gæta hagsmuna og öryggis Íslendinga erlendis en að undan­förnu hefur starfsemin verið mun umgangs­meiri en vanalega og úrlausnar­efni er tengjast Covid-19 verið fyrirferðar­mikil. Í það heila hafa um 550 manns í 56 ríkjum fengið úrlausn sinna mála. Yfir áttatíu manns hafi komið heim með borgara­flugum Norður­landa, Eystrasalts­landa og annarra Evrópu­ríkja, auk þess sem á annað hundrað manns hafi nýtt sér sér fjögur flug frá Varsjá í mars og apríl, á vegum pólskra stjórn­valda.

María Mjöll segir að þó að starfsemi sé nú aftur orðin hefð­bundin hjá borgara­þjónustunni sé það enn í forgangi að aðstoða þá sem vilja komast heim. Áfram verði fylgst með stöðu mála og upplýsingum, ráðgjöf og aðstoð miðlað til þeirra sem enn þurfa á því að halda. Hún segir að almennt virðast að flestir þeirra sem enn eru séu í aðstöðu til að vera áfram erlendis þar til flug­framboð eykst að nýju og ferða­takmörkunum verði aflétt.

Borgara­þjónustan veitti almenna ráðgjöf í yfir 6 þúsund símtölum og tölvu­póstum sem henni bárust og þúsundum skilaboða við nær 600 einstaklinga í gegnum Facebook. Auk þess var haft beint samband að fyrra bragði við 5.750 manns sem skráðir voru erlendis, þar af á þriðja þúsund í síma, til að kanna stöðu þeirra.

María segir að meðal þeirra þúsunda hjálpar­beiðna sem borist hafi að undan­förnu hafi nokkrar eftir­minnilegar slæðst með, eins og sú sem barst frá bandarískum ferða­manni, sem hafði fengið úrlausn sinna mála hjá borgara­þjónustunni. „Um leið og hann þakkaði fyrir sig spurði hann hvort við gætum kannski aðstoðað hann við að hafa uppá uppskrift að fiskisúpu sem hann hafi fengið á Íslandi fyrir nokkrum árum.“ Vel hafi verið brugðist við því og uppskriftinni verið flett upp fyrir manninn. Þá hafi ást og rómantík oft komið til sögunnar, enda hafi elskendur, sem staddir voru hvor í sínu landinu, fengið ráðgjöf um hvernig þeir gætu náð saman á þessum skrýtnu tímum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár