Róbert Spanó: Réttarkerfi Íslands notið góðs af Mannréttindadómstólnum

Róbert Spanó hefur fyrstur Íslendinga og jafnframt fyrstur Norður­landabúa verið kosinn forseti Mann­réttinda­dómstóls Evrópu. Á meðal mála dómstólsins tengdum Íslandi má nefna tjáningar­frelsi, skattamál, sakamál og Lands­réttarmálið.

Heiður
Heiður Róbert segir mik­il­vægt fyrir okkar litlu þjóð að Íslend­ingar velj­ist til leið­toga­starfa á alþjóð­legum vett­vangi. Mynd: STEPHANIE KLEIN

Róbert Spanó fæddist í Reykjavík árið 1972. Móðir hans er Reyk­víkingur en faðir hans er frá Napolí. „Við fluttum árið 1979 til Quebec-fylkis í Kanada þar sem ég lærði frönsku sem hefur gagnast mér afar vel hér úti í Strassborg þar sem vinnu­tungumálin eru enska og franska.

Um sjö árum síðar fluttum við til Ítalíu um rúmlega árs skeið og svo aftur til Íslands.

Ég stundaði nám við Hlíða­skóla og fór svo í Verslunar­skóla Íslands þar sem ég útskrifaðist með stúdents­próf árið 1992. Þaðan lá leiðin í lagadeild Háskóla Íslands þar sem ég lauk embættis­prófi árið 1997. Loks innritaðist ég í Oxford-háskóla á Englandi árið 1999 og lauk þar meistara­gráðu árið 2000.“

Róbert segir að í fjöl­skyldu sinni hafi lengi verið sagt að hann hafi talað um að verða lögfræðingur frá því hann var krakki. „Ég held það sé rétt. Ég man allavega ekki eftir því að hafa hugsað um að verða eitthvað annað sem er eilítið öðruvísi en fyrir marga sem leggja lögfræði fyrir sig. Ég var alltaf mjög heillaður af lögfræði­bíómyndum og þess háttar. Það var þó ekki fyrr en löngu síðar, eftir að ég hóf störf sem dómara­fulltrúi við Héraðsdóm Reykjaness, stuttu eftir að ég útskrifaðist úr lagadeild, sem dómstörfin urðu heillandi.“

Hóf ferilinn hjá skattrannsóknarstjóra

Fyrsta starf Róberts eftir útskrift frá lagadeild HÍ árið 1997 var sem lögfræðingur hjá skatt­rannsóknar­stjóra ríkisins. „Ég starfaði þar aðeins um nokkurra mánaða skeið en hef alltaf sagt að það hafi verið afar góður tími sem gaf mér góða innsýn inn í íslenskt skatt­kerfi. Í september 1997 hóf ég störf sem dómara­fulltrúi við Héraðsdóm Reykjaness þar sem ég starfaði í tæpt eitt ár en var svo ráðinn til starfa hjá embætti umboðs­manns Alþingis í ágúst 1998.

Eftir nám mitt í Oxford réð Tryggvi Gunnarson, þá hæstaréttar­lögmaður, mig til starfa sem aðstoðar­mann umboðs­manns Alþingis en því starfi gegndi ég til ársins 2004 þegar ég var ráðinn dósent við lagadeild Háskóla Íslands en ég hafði verið lektor í hluta­starfi þar frá árinu 2002. Árið 2007 varð ég síðan prófessor við lagadeild HÍ og forseti deildarinnar á árunum 2010–2013. Eftir fall íslensku bankanna á árinu 2008 var Tryggvi skipaður í rann­sóknar­nefndina um banka­hrunið. Alþingi setti mig þá í að leysa hann af sem umboðs­mann Alþingis en því starfi gegndi ég frá janúar 2009 fram á mitt ár 2010 og svo aftur á árinu 2013.

„Það var gríðar­lega erfitt starf en virkilega gefandi“

Einn eftir­minnilegasti en jafnframt krefjandi tíminn við störf á Íslandi var formennska mín í svokallaðri vistheimila­nefnd á árunum 2007 til 2012 en sú nefnd rann­sakaði meðal annars Breiða­víkur­heimilið og önnur vist­heimili þar sem börn dvöldu á árum áður. Það var gríðar­lega erfitt starf en virkilega gefandi. Sama er að segja um formennsku mína í rann­sóknarnefnd kirkju­þings á árinu 2011.“

Elja íslensku þjóðarinnar 

Róbert var í júní árið 2013 kjörinn dómari við Mann­réttinda­dómstól Evrópu og hóf formlega störf 1. nóvember. Kjör­tímabilið er níu ár og hann lýkur því störfum 31. október 2022. Í maí 2017 var hann svo kjörinn forseti deildar innan dómstólsins, vara­forseti í maí 2019 og svo forseti dómstólsins núna í apríl en hann tekur formlega við því starfi 18. maí.

„Þótt forseta­kjörið sé auðvitað ákveðinn persónu­legur heiður fyrir mig finnst mér skipta meira máli hve mikilvægt það er fyrir okkar litlu þjóð að Íslendingar veljist til leiðtoga­starfa á alþjóð­legum vettvangi. Ég er fyrsti Íslend­ingurinn og raunar fyrsti Norður­landabúinn til að gegna embætti forseta dómstólsins frá því að hann var stofnaður í núverandi mynd. Þetta sýnir að við Íslendingar erum til alls megnugir, hvort sem það er á sviði íþrótta eða í því að láta gott af okkur leiða hvar sem er í veröldinni. Sá elja og sá kraftur sem býr í okkar litlu þjóð er með ólíkindum eins og síðustu vikur hafa sýnt þar sem íslenska heilbrigðis­kerfið og þríeykið okkar, Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller, hafa sýnt að þau eru afburða­fólk og með þekkingu á heims­mælikvarða. Ég hef þurft að fylgjast með framvindu mála úr fjarlægð hér frá Strassborg undan­farnar vikur en framganga þeirra og raunar allrar íslensku þjóðarinnar á þessum erfiðu tímum hefur fyllt mig miklu stolti.“

Dóm­stóll­inn Róbert situr þing­hald í yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins.

„Þetta sýnir að við Íslendingar erum til alls megnugir“

Erfiðir tímar fram undan

Fram undan er afar erfitt tímabil fyrir mann­réttinda­vernd í Evrópu sem mun hafa mikil áhrif á störf Mann­réttinda­dómstólsins. „Í fyrsta lagi er alls óvíst hvernig farsóttin mun hafa áhrif á líf okkar til frambúðar en eitt er víst að hún mun hafa mikil og lang­varandi áhrif. Þar eru mann­réttindi borg­aranna ekki undan­skilin. Á því er hætta á slíkum tímum að þeir sem fara með opinbert vald gangi of langt, einkum þegar lýðræðislegar undir­stöður í samfélaginu eru ekki sterkar fyrir. Hlutverk sjálf­stæðra dómstóla, sem grunn­stofnana réttar­ríkisins, verður enn mikil­vægara og þar mun Mann­réttinda­dómstóll Evrópu þurfa að sinna sínu hlutverki af kostgæfni við að tryggja að fylgt sé megin­reglum þeim sem fram koma í Mann­réttinda­sáttmála Evrópu. Í annan stað hefur þróun mann­réttinda í Evrópu undan­farin ár verið með þeim hætti, einkum í þeim löndum þar sem lýðræðisleg grunn­gildi og kröfur réttar­ríkisins hafa látið undan, að áhrif hefur á störf innlendra dómstóla, á sjálf­stæði þeirra og störf Mann­réttinda­dómstólsins. Það er einmitt við slíkar aðstæður sem sjálf­stæðir dómarar þurfa að standa í lappirnar og halda sínu striki við að dæma í samræmi við lögin eins og þau eru og þá einkum að tryggja mann­réttindi þau sem er að finna í stjórnar­skrám viðkomandi ríkja og í Mann­réttinda­sáttmála Evrópu.“

Mikið um ferðalög

Mann­réttinda­sáttmálinn er alþjóðleg grundvallar­skrá mann­réttinda í 47 aðildar­ríkjum Evrópu­ráðsins, þar á meðal Íslandi. Lögsaga dómstólsins tekur því samtals til um 820 milljóna manna. Verkefni dómstólsins eru því ærin.

„Sjálf­stæðir dómarar þurfa að standa í lappirnar og halda sínu striki“

„Sem stendur eru um 60.000 mál fyrir­liggjandi og mörg hver afar erfið og þýðingar­mikil. Forseti dómstólsins fer með yfir­stjórn dómstólsins í heild sinni en þar starfa tæplega 700 manns. Segja má að helmingur tíma forseta fari í beina stjórnun og að sinna því að vera málsvari dómstólsins út á við gagnvart Evrópu­ráðinu og aðildar­ríkjunum. Mikið er því um ferðalög og fundi, enda forsetinn nokkurs konar sendi­herra dómstólsins út á við. Hinn helmingurinn fer í bein dómsstörf en forseti MDE situr ávallt í dóms­forsæti yfir­deildar sautján dómara, sem dæmir í allra stærstu málunum, nema að um sé að ræða mál frá hans heimaríki eða ef hann hefur vikið sæti. Þá heldur forsetinn áfram að dæma í málum sjö manna deildar dómstólsins sem koma frá heima­landi. Ég mun því halda áfram að dæma í íslenskum málum.“

Íslenska ríkið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu

Saga Íslands innan Evrópu­ráðsins og sem aðila að Mann­réttinda­sáttmála Evrópu er orðin um 70 ára gömul.

„Réttar­kerfi okkar hefur notið afskaplega góðs af þátttöku Íslands í þessu samstarfi og ljóst að MSE hefur haft mikla þýðingu fyrir þróun íslensks réttar. Gerðar hafa verið grundvallar­kerfis­breytingar á Íslandi vegna þróunar í dóma­framkvæmd á vettvangi Mann­réttinda­dómstóls Evrópu auk þess sem mann­réttinda­kafla stjórnar­skrárinnar var breytt á árinu 1995 beinlínis til þess að tryggja samræmi þar á milli.

Þegar sjálfstætt og fullvalda ríki ákveður að taka þátt í alþjóð­legu samstarfi eins og því sem fer fram í Evrópu­ráðinu hefur ríkið tekið þá afstöðu að það sé, þegar á heildina er litið og til lengri tíma, til heilla fyrir það að vera þar þátt­takandi. Með slíku samstarfi fylgja þó bæði réttindi og skyldur. Með því að Ísland, eins og önnur ríki Evrópu­ráðsins, hefur ákveðið að undir­gangast lögsögu Mann­réttinda­dómstóls Evrópu að þjóða­rétti hefur Ísland skuld­bundið sig til að fram­fylgja þeim dómum sem þar ganga. Dómar sem kunna að fela í sér áfelli fyrir aðildar­ríki eru því eðlilegur hluti af því kerfi sem aðildar­ríkin hafa ákveðið að fylgja. Það hafa því komið upp mál endrum og eins þar sem reynir á skuld­bindingar Íslands samkvæmt sátt­málanum. Á síðastliðnum árum hefur dómstóllinn til að mynda fjallað töluvert um mál þar sem reynir á tjáningar­frelsi, skattamál og nú er töluverður fjöldi mála til meðferðar sem varða sakamál sem höfðuð voru í framhaldi af banka­hruninu. Eins og allir þekkja hafa síðan mál er varða skipun dómara við Landsrétt verið til meðferðar úti í Strassborg.“

Dómstóla að veita aðhald 

Þegar Róbert er spurður út í Lands­réttarmálið segir hann að það sé ekki rétt af sinni hálfu að tjá sig sérstak­lega um einstök mál. „Ég tek aðeins fram að dómarar verða að þola gagnrýni á sín störf; það er hluti af starfinu. Þeir mega ekki taka slíka gagnrýni persónu­lega eða of nærri sér. Maður verður því að hafa bein í nefinu í svona starfi, annars er bara best að fara að gera eitthvað annað. Þeir sem hins vegar gagnrýna dómstóla, eins og Mann­réttinda­dómstól Evrópu, innlenda dómstóla eða einstaka dóma, verða að leitast við að gera það með málefna­legum rökum og velja orð sín af kostgæfni.

„Það er hlutverk dómstóla að taka afstöðu til þess hvort störf stjórn­málamanna séu í samræmi við Mann­réttinda­sáttmálann“

Það á sérstak­lega við um ráðamenn og þá sem fara með opinber völd. Kjósi menn að láta gott af sér leiða á sviði stjórn­málanna verða þeir jafnframt að horfa til þess að í lýðræðis- og réttar­ríki gilda ákveðnar reglur um slík störf sem þeim ber að fara eftir. Það er hlutverk dómstóla að taka afstöðu til þess hvort störf stjórn­málamanna séu á hverjum tíma í samræmi við Mann­réttinda­sáttmálann, stjórnar­skrá og almenn lög. Það er beinlínis það kerfi sem er undir­staða réttar­ríkisins.“

Ísland alltaf í forgangi

Róbert segir að hvað sem líði einstökum málum sem komið hafa frá Íslandi til Strassborgar á undan­förnum árum sé það skoðun sín að þekking íslenskra lögfræðinga, lögmanna og dómara á Mann­réttinda­sáttmálanum og dóma­framkvæmd Mann­réttinda­dómstóls Evrópu sé mikil og hafi raunar verið til fyrir­myndar á síðustu árum.

„Ég ber mikið traust til íslenska dóms­kerfisins en þar er mikið um afskaplega fært fólk á öllum þremur dómstigunum sem reynir að gera sitt besta. Ég hef miklar væntingar til þess að með tíð og tíma muni hin nýja dómstóla­skipan á milli Lands­réttar og Hæstaréttar auka enn á fyrirsjáanleika og samkvæmni í dóma­framkvæmd. Íslenska lögmanna­stéttin hefur einnig að geyma mikið af afar hæfileika­ríku fólki. Það sé ég þegar íslensk mál koma á mitt borð úti í Strassborg. Ég hef á undan­förnum árum leitast við að eiga gott samstarf við dómara og lögmenn á Íslandi og því reglulega komið heim til fyrir­lestrar­halds. Það verður líklega erfitt fyrir mig á næstunni þegar ég tek við forseta­starfinu en Ísland verður alltaf í forgangi hjá mér ef óskað er eftir nærveru minni.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár