Fjöldi símtala í hjálparsíma margfaldast: Einangrun og veikindi taka sinn toll

Fjölga þurfti sjálf­boða­liðum til að anna fjölgun sím­tala í hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, en frá ára­mótum hafa sím­tölin þangað verið um 10.000. Á sama tíma­bili í fyrra voru þau 4.000, mesta fjölg­unin er í hópi eldra fólks og ein­mana­leiki og kvíði eru algeng­ustu ástæður sím­tal­anna.

Hjálparlínan 1717
Hjálp­ar­línan 1717 Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, hafa borist um 10.000 sím­töl frá ára­mótum fram í miðjan apríl. Á sama tíma­bili í fyrra voru sím­tölin 4.000. Mesta fjölg­unin er í hópi eldra fólks og ein­mana­leiki og kvíði eru algeng­ustu ástæður sím­tal­anna. Bæta þurfti við hund­rað nýjum sjálf­boða­liðum til að svara sím­töl­unum. Mynd: Aðsend/Samsett

Meira en tvö­falt fleiri hringdu í hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, frá ára­mótum fram í miðjan apríl en á sama tíma í fyrra.  Mesta fjölg­unin er í hópi eldra fólks og ein­mana­leiki og kvíði eru algeng­ustu ástæður sím­tal­anna. Fjölga þurfti mikið í hópi sjálf­boða­liða til að anna þess­ari fjölgun sím­tala og Rauði kross­inn býst jafn­vel við enn meiri fjölgun þegar far­aldr­inum linnir.

Frá ára­mótum og fram í miðjan apríl bár­ust 1717 um 10.000 sím­töl. Á sama tíma­bili í fyrra voru þau um 4.000. Sandra Björk Birg­is­dóttir verk­efna­stjóri hjá 1717 segir að þessu til við­bótar séu sím­tölin þyngri. „Vanlíðan er meiri nú en áður, það er þyngra hljóð í fólki,“ segir hún.

„Vanlíðan er meiri nú en áður“

Flestir hringja vegna kvíða

Mesta aukn­ingin hefur verið  í sím­tölum vegna ein­mana­leika og það sem af er ári hafa 780 sím­töl verið vegna kvíða. Þar af voru 470 sím­töl í mars og það sem af er apríl, en til sam­an­burðar voru 168 sím­töl vegna kvíða á því tíma­bili í fyrra. Kvíðinn er af ýmsum ástæðum, segir Sandra. „Stundum vegna ótta við að fá veiruna, fólk hefur áhyggjur af eigin heilsu og ann­arra. Stundum er kvíð­inn fjár­hags­legur. Fólk ótt­ast um afkomu sína og það er nokkuð um sím­töl frá fólki sem ýmist hefur misst vinn­una eða ótt­ast að það ger­ist.“

Ástæða til að huga að stöðu barna

Sandra segir ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu barna í far­aldr­inum. „Sumum líður ekki vel heima hjá sér af ýmsum ástæðum og þó þau búi við góðar aðstæður, þá líður mörgum þeirra illa yfir þess­ari röskun á dag­legu lífi og að geta ekki farið í skól­ann og hitt vini sína.“

„Það er nokkuð um sím­töl frá fólki sem ýmist hefur misst vinn­una“

Einmanaleiki eldri borgara er ekki nýtilkominn

Nánast jafn margar konur og karlar hringja í 1717. Flestir sem þangað leita eru börn og ung­menni 18 ára eða yngri og það hefur ekki breyst í far­aldr­inum. Næsti stærsti hóp­ur­inn er fólk sem er 67 ára og eldra og þar  hefur mesta aukn­ingin orðið. Hjá elsta hópnum er félags­leg ein­angrun helsta ástæðan. „Því miður er þetta ótrú­lega stór hópur, en þannig hefur það verið í mörg ár. Hjá mörgum er sím­tal í 1717 hluti af dag­legu lífi. Félags­leg ein­angrun er alvar­legt ástand og með COVID-far­aldr­inum hefur umræðan auk­ist.“

„Við finnum að ein­angr­unin er farin að taka sinn toll af fólki“

Sandra segir að það sem far­ald­ur­inn hafi haft í för með sér sé að nú upp­lifi fólk á öllum aldri félags­lega ein­angrun í fyrsta sinn. „Vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins eru margir í aðstæðum sem þeir hafi aldrei verið í áður; að hafa tak­markað sam­neyti við annað fólk. Þetta eru aðstæður sem margt fólk átti ekk­ert von á að lenda í og við kunnum fæst að takast á við þetta. Við finnum að ein­angr­unin er farin að taka sinn toll af fólki.“

Búast við enn frekari aukningu

Að sögn Söndru er 1717 gjarnan fyrsta skrefið hjá fólki sem upp­lifir breyt­ingar á and­legri líðan sinni. „Fyrir suma dugar að spjalla við okkur, stundum er ein­fald­lega nóg að tala við ein­hvern sem hlustar á þig af ein­lægni. Aðrir þurfa meiri aðstoð.“

Sandra segir að hugs­an­lega megi búast við enn frek­ari aukn­ingu, jafn­vel eftir að far­ald­ur­inn verði um garð geng­inn og sam­komu­banni og tak­mörk­unum á ferðum fólks hafi verið aflétt. „Oft kemur van­líðan fólks fram síðar, eftir að ástandið er liðið hjá og lífið komið í þokka­lega eðli­legt horf. Við erum þess vegna und­ir­búin fyrir að auka enn frekar við okkar mann­skap.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár