Skólastarf með eðlilegum hætti frá 4. maí og fjöldatakmörk rýmkuð

Skóla­starf í leik- og grunn­skólum verður með eðli­legum hætti frá og með 4. maí. Heimilt verður að opna fram­halds­skóla og háskóla og fjölda­tak­mörk á sam­komum verða rýmkuð. Íþrótta­starf barna og ung­linga verður leyft með vissum skil­yrðum. Þetta verður meðal þeirra breyt­inga sem verða gerðar á þeim höftum sem sett hafa verið vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og taka gildi 4. maí.

Skólastarf með eðlilegum hætti frá 4. maí og fjöldatakmörk rýmkuð
Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra á upp­lýs­inga­fund­inum í Safna­hús­inu í dag. Mynd: Skjáskot

Skóla­starf  í leik- og grunn­skólum verður með eðli­legum hætti frá og með 4. maí. Heimilt verður að opna fram­halds­skóla og háskóla og fjölda­tak­mörk á sam­komum verða rýmkuð. Íþrótta­starf barna og ung­linga verður leyft með vissum skil­yrðum. Þetta verður meðal þeirra breyt­inga sem verða gerðar á þeim höftum sem sett hafa verið vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og taka gildi 4. maí.

Þetta kom fram á upp­lýs­inga­fundi for­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra sem hald­inn var í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu nú í morgun. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði að nú væri mik­il­vægur tíma­punktur, eins og að vera í fjall­göngu þar sem bara síð­asta brekkan væri eftir. Freist­andi væri að sleppa henni, en það þýddi þrjár vikur til við­bótar af hörðum tak­mörk­unum á sam­komum. Ekki mætti heldur flýta sér of hratt niður brekk­una, þar sem það gæti þýtt að smitið bloss­aði upp aftur.

Þessar aflétt­ingar eru að til­lögu sótt­varna­læknis. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði að COVID-19 far­ald­ur­inn væri lík­lega stærsta verk­efni sem íslenskt sam­fé­lag hafi tek­ist á við í sam­ein­ingu.  

Enn geta komið upp hópsmit

„Far­ald­ur­inn er í rénun, það er ljóst. En það geta komið upp hópsmit,“ sagði Svandís. Hún kynnti síðan þær breyt­ingar sem verða 4. maí. Fjölda­mörk sam­komu­banns munu miða við 50 manns, skóla­starf í grunn- og leik­skólum verður með eðli­legum hætti og ýmis þjón­usta getur haf­ist aftur, en halda skal tveggja metra fjar­lægð eins og kostur er. Ýmis heil­brigð­is­þjón­usta sem fallið hefur niður mun einnig verða opnuð aftur.

Skipu­lagt íþrótta­starf barna og ung­menna utandyra verður leyft, svo fram­ar­lega að ekki verði fleiri en 50 í hóp. Lík­ams­rækt­ar­stöðvar og sund­laugar verða áfram lok­aðar.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að mik­il­vægt væri að fara hægt í að afnema höftin. Það væri mat helstu sér­fræð­inga heims í  þessum efnum. Margir í sam­fé­lag­inu væru afar við­kvæmir fyrir sýk­ingum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár