Hliðum Wuhan-borgar lokið upp

Þegar borg­inni Wuhan í Kína var lokað 23. jan­úar litu margir utan Kína á þessar aðgerðir sem fjar­stæðu­kenndar, eitt­hvað sem ekki gæti gerst á Vest­ur­löndum. En síðan þá hefur far­ald­ur­inn breiðst út og all­flest vest­ræn lýð­ræð­is­ríki hafa gripið til aðgerða þar sem frelsi fólks hefur verið skert veru­lega. Hliðum borg­ar­innar var lokið upp á mið­nætti og voru þær 11 millj­ónir íbúa sem borg­ina byggja voru frels­inu fegnir eftir 76 daga inni­lokun.

Hliðum Wuhan-borgar lokið upp
Frá borg­inni Wuhan í morgun Heil­brigð­is­starfs­maður grætur á Tianhe-flug­velli, við opn­un­ina í morgun. Mynd: Hector RETAMAL / AFP

Hlið borg­ar­innar Wuhan í Kína, þangað sem upp­tök COVID-19 far­ald­urs­ins eru rakin, voru opnuð á mið­nætti . Þær 11 millj­ónir íbúa sem borg­ina byggja voru frels­inu fegnir eftir 76 daga inni­lokun. Þetta eru hörð­ustu aðgerðir sem vitað er til að gripið hafi verið til vegna far­ald­urs­ins, kín­versk yfir­völd segja að þær hafi borið til­ætl­aðan árangur, en ekki eru allir íbúar sann­færðir um það. 

Borginni var skellt í lás 23. jan­úar, öll umferð til og frá henni bönnuð, miklar tak­mark­anir settar á opn­anir versl­ana og þjón­ustu og íbúum sagt að halda sig heima eins og kostur væri á.  Þegar þetta var gert litu margir utan Kína á þessar aðgerðir sem fjar­stæðu­kenndar, eitt­hvað sem ekki gæti gerst á Vest­ur­löndum. En síðan þá hefur far­ald­ur­inn breiðst út og all­flest vest­ræn lýð­ræð­is­ríki hafa gripið til aðgerða þar sem frelsi fólks hefur verið skert veru­lega.

Viðhöfn og ljósadýrð við opnunina

Í dag verður hluti versl­ana og þjón­ustu­fyr­ir­tækja borg­ar­innar opn­aður að nýju og þeir íbúar sem eru með græn heilsu­fars­skír­teini, sem stað­festa að þeir eru ekki smit­aðir, geta snúið aftur til starfa. Skólar á öllum skóla­stigum eru enn lok­aðir og ekki hefur verið til­kynnt um hvenær þeir verða opn­aðir. Þá er þeim til­mælum beint til íbúa að tak­marka ferðir sínar utan heim­ilis og að taka ekki þátt í fjöl­mennum við­burðum. 

„Þegar þetta var gert litu margir utan Kína á þessar aðgerðir sem fjar­stæðu­kenndar, eitt­hvað sem ein­göngu myndi ger­ast í landi eins og Kína“

Nokkur við­höfn var þegar borgin var opnuð.  Borg­ar­búum var boðið upp á ljósa­sýn­ingu, flug­völlur borg­ar­innar var opn­aður við hátíð­lega athöfn og her­ferð var hrundið í gang á sam­fé­lags­miðlum til kynn­ingar. Lestir og strætó­skýli voru ljósum prýdd og skýja­kljúfar borg­ar­innar báru áletr­un­ina Halló Wuhan. 30 flug­ferðir frá Wuhan til ann­arra borga í Kína eru á áætlun í dag og meira en 1.600 far­þegar hafa bókað ferðir með þeim. Yfir 55.000 ætla að yfir­gefa borg­ina með lestum, margir hverjir búa ann­ars staðar í Kína en voru staddir í borg­inni þegar henni var lokað.

Flykkst að lest­ar­stöð­inniMyndin er tekin á Hankou lest­ar­stöð­inni í Wuhan. Þangað flykk­ist nú fólk til að kom­ast frá borg­inni, en ferðir til og frá henni lágu niðri frá 23. jan­úar.

Eins og vera leystur úr prísund

„Þetta er eins og að vera leystur úr prís­und,“ hefur breska blaðið The Guardian eftir Zhang Kaizhong, 51 árs gömlum íbúa úr nágrenni borg­ar­innar. Hann var einn þeirra sem lögðu þegar af stað frá borg­inni um leið og kostur gafst, en hann hafði komið til borg­ar­innar til að heim­sækja son sinn dag­inn áður en borg­inni var lokað. Hann var fullur eft­ir­vænt­ingar að kom­ast aftur til fjöl­skyldu sinnar.

„Ég missti tíu kíló, las tvær bækur, próf­aði klipp­ingu sem ég hefði ann­ars aldrei þorað að gera og svaf í átta tíma á sól­ar­hring“

Stjórn­völd í Kína hvöttu fólk til að birta jákvæðar hliðar inni­lok­un­ar­innar á sam­fé­lags­miðlum. „Ég missti tíu kíló, las tvær bækur, próf­aði klipp­ingu sem ég hefði ann­ars aldrei þorað að gera, svaf í átta tíma á sól­ar­hring. Næsta skref er að missa fleiri kíló og aðlag­ast sam­fé­lag­inu á nýjan leik,“ skrif­aði einn íbúi borg­ar­innar á sam­fé­lags­mið­il­inn Weibo.

56 milljónir íbúa voru í fyrirskipaðri sóttkví

Wuhan var lokað með skömmum fyr­ir­vara, en borgin var fyrsti þétt­býl­is­stað­ur­inn í heimi til að grípa til aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19. Í kjöl­farið fylgdu aðrar borgir í Hubei hér­aði og sam­tals voru 56 millj­ónir íbúa á svæð­inu í sótt­kví að fyr­ir­skipan yfir­valda. Kínversk stjórn­völd segja aðgerð­irnar hafa heppn­ast vel, mjög hafi hægt á útbreiðsl­unni og rétt­læta megi þessar hörðu aðgerðir full­komn­lega.

Um það eru skiptar skoð­anir. Á meðan kín­versk stjórn­völd segj­ast hafa hægt á útbreiðsl­unni með því að loka þennan hluta lands­ins af frá öðrum lands­hlutum, hafa þau verið gagn­rýnd fyrir að hafa brugð­ist of seint við. Hægt hefði verið að grípa til mild­ari aðgerða fyrr og koma þannig í veg fyrir svo umfangs­miklar aðgerðir.

Segja ástandið ekki eins gott og fullyrt sé

Samkvæmt opin­berum tölum kín­verskra stjórn­valda hafa rúm­lega 50.000 íbúar Wuhan sýkst af veirunni 2.500 lát­ist af völdum hennar, en grun­semdir eru um að talan sé hærri. Þetta eru 77% þeirra dauðs­falla sem kín­versk yfir­völd segja að hafi orðið af völdum COVID-19 í land­inu. 

„Ástandið er ekki jafn gott og full­yrt er,“ segir Yao sem býr í Wuhan við The Guardian. Hún seir að margir íbúar borg­ar­innar ótt­ist smit frá fólki, sem sýnir engin ein­kenni, nú þegar sam­gangur á milli fólks hefur verið leyfður að nýju.

Bera smit inn í Kína frá öðrum löndum

Nokkuð hefur verið um að Kín­verjar, búsettir utan heima­lands­ins, hafi borið veiruna með sér inn í landið. Til dæmis var til­kynnt um 698 slík smit í gær, sam­kvæmt frétt CNN.

„Á meðan heims­far­aldur geisar er þessu ekki lokið í Kína. Við erum ein­fald­lega komin á nýjan stað“ 

Það, að engin ný til­vik hafi komið upp, þýðir ekki að hættan sé liðin hjá, segir í kín­verska dag­blað­inu People’s Daily í dag. CNN hefur eftir Zeng Guang, sem er sótt­varna­læknir Kína, að far­aldr­inum sé síður en svo lokið í land­inu.  „Á meðan heims­far­aldur geisar er þessu ekki lokið í Kína. Við erum ein­fald­lega komin á nýjan stað,“ segir lækn­ir­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár