Hliðum Wuhan-borgar lokið upp

Þegar borginni Wuhan í Kína var lokað 23. janúar litu margir utan Kína á þessar aðgerðir sem fjarstæðu­kenndar, eitthvað sem ekki gæti gerst á Vestur­löndum. En síðan þá hefur faraldurinn breiðst út og allflest vestræn lýðræðis­ríki hafa gripið til aðgerða þar sem frelsi fólks hefur verið skert verulega. Hliðum borgarinnar var lokið upp á miðnætti og voru þær 11 milljónir íbúa sem borgina byggja voru frelsinu fegnir eftir 76 daga innilokun.

Frá borginni Wuhan í morgun
Frá borg­inni Wuhan í morgun Heil­brigð­is­starfs­maður grætur á Tianhe-flug­velli, við opn­un­ina í morgun. Mynd: Hector RETAMAL / AFP

Hlið borgarinnar Wuhan í Kína, þangað sem upptök COVID-19 faraldursins eru rakin, voru opnuð á miðnætti . Þær 11 milljónir íbúa sem borgina byggja voru frelsinu fegnir eftir 76 daga innilokun. Þetta eru hörðustu aðgerðir sem vitað er til að gripið hafi verið til vegna faraldursins, kínversk yfirvöld segja að þær hafi borið tilætlaðan árangur, en ekki eru allir íbúar sann­færðir um það. 

Borginni var skellt í lás 23. janúar, öll umferð til og frá henni bönnuð, miklar takmarkanir settar á opnanir verslana og þjónustu og íbúum sagt að halda sig heima eins og kostur væri á.  Þegar þetta var gert litu margir utan Kína á þessar aðgerðir sem fjarstæðu­kenndar, eitthvað sem ekki gæti gerst á Vestur­löndum. En síðan þá hefur faraldurinn breiðst út og allflest vestræn lýðræðis­ríki hafa gripið til aðgerða þar sem frelsi fólks hefur verið skert verulega.

Viðhöfn og ljósadýrð við opnunina

Í dag verður hluti verslana og þjónustu­fyrirtækja borgarinnar opnaður að nýju og þeir íbúar sem eru með græn heilsufars­skírteini, sem staðfesta að þeir eru ekki smitaðir, geta snúið aftur til starfa. Skólar á öllum skóla­stigum eru enn lokaðir og ekki hefur verið tilkynnt um hvenær þeir verða opnaðir. Þá er þeim tilmælum beint til íbúa að takmarka ferðir sínar utan heimilis og að taka ekki þátt í fjölmennum viðburðum. 

„Þegar þetta var gert litu margir utan Kína á þessar aðgerðir sem fjarstæðu­kenndar, eitthvað sem eingöngu myndi gerast í landi eins og Kína“

Nokkur viðhöfn var þegar borgin var opnuð.  Borgar­búum var boðið upp á ljósa­sýningu, flug­völlur borgarinnar var opnaður við hátíðlega athöfn og herferð var hrundið í gang á samfélags­miðlum til kynningar. Lestir og strætóskýli voru ljósum prýdd og skýjakljúfar borgarinnar báru áletrunina Halló Wuhan. 30 flug­ferðir frá Wuhan til annarra borga í Kína eru á áætlun í dag og meira en 1.600 farþegar hafa bókað ferðir með þeim. Yfir 55.000 ætla að yfirgefa borgina með lestum, margir hverjir búa annars staðar í Kína en voru staddir í borginni þegar henni var lokað.

Flykkst að lest­ar­stöð­inniMyndin er tekin á Hankou lest­ar­stöð­inni í Wuhan. Þangað flykk­ist nú fólk til að kom­ast frá borg­inni, en ferðir til og frá henni lágu niðri frá 23. jan­úar.

Eins og vera leystur úr prísund

„Þetta er eins og að vera leystur úr prísund,“ hefur breska blaðið The Guardian eftir Zhang Kaizhong, 51 árs gömlum íbúa úr nágrenni borgarinnar. Hann var einn þeirra sem lögðu þegar af stað frá borginni um leið og kostur gafst, en hann hafði komið til borgarinnar til að heimsækja son sinn daginn áður en borginni var lokað. Hann var fullur eftir­væntingar að komast aftur til fjöl­skyldu sinnar.

„Ég missti tíu kíló, las tvær bækur, prófaði klippingu sem ég hefði annars aldrei þorað að gera og svaf í átta tíma á sólar­hring“

Stjórn­völd í Kína hvöttu fólk til að birta jákvæðar hliðar inni­lokunarinnar á samfélags­miðlum. „Ég missti tíu kíló, las tvær bækur, prófaði klippingu sem ég hefði annars aldrei þorað að gera, svaf í átta tíma á sólar­hring. Næsta skref er að missa fleiri kíló og aðlagast samfélaginu á nýjan leik,“ skrifaði einn íbúi borgarinnar á samfélags­miðilinn Weibo.

56 milljónir íbúa voru í fyrirskipaðri sóttkví

Wuhan var lokað með skömmum fyrirvara, en borgin var fyrsti þéttbýlis­staðurinn í heimi til að grípa til aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19. Í kjölfarið fylgdu aðrar borgir í Hubei héraði og samtals voru 56 milljónir íbúa á svæðinu í sóttkví að fyrir­skipan yfirvalda. Kínversk stjórn­völd segja aðgerðirnar hafa heppnast vel, mjög hafi hægt á útbreiðslunni og réttlæta megi þessar hörðu aðgerðir fullkomnlega.

Um það eru skiptar skoðanir. Á meðan kínversk stjórn­völd segjast hafa hægt á útbreiðslunni með því að loka þennan hluta landsins af frá öðrum lands­hlutum, hafa þau verið gagnrýnd fyrir að hafa brugðist of seint við. Hægt hefði verið að grípa til mildari aðgerða fyrr og koma þannig í veg fyrir svo umfangs­miklar aðgerðir.

Segja ástandið ekki eins gott og fullyrt sé

Samkvæmt opinberum tölum kínverskra stjórn­valda hafa rúmlega 50.000 íbúar Wuhan sýkst af veirunni 2.500 látist af völdum hennar, en grun­semdir eru um að talan sé hærri. Þetta eru 77% þeirra dauðsfalla sem kínversk yfirvöld segja að hafi orðið af völdum COVID-19 í landinu. 

„Ástandið er ekki jafn gott og fullyrt er,“ segir Yao sem býr í Wuhan við The Guardian. Hún seir að margir íbúar borgarinnar óttist smit frá fólki, sem sýnir engin einkenni, nú þegar samgangur á milli fólks hefur verið leyfður að nýju.

Bera smit inn í Kína frá öðrum löndum

Nokkuð hefur verið um að Kínverjar, búsettir utan heima­landsins, hafi borið veiruna með sér inn í landið. Til dæmis var tilkynnt um 698 slík smit í gær, samkvæmt frétt CNN.

„Á meðan heims­faraldur geisar er þessu ekki lokið í Kína. Við erum einfald­lega komin á nýjan stað“ 

Það, að engin ný tilvik hafi komið upp, þýðir ekki að hættan sé liðin hjá, segir í kínverska dagblaðinu People’s Daily í dag. CNN hefur eftir Zeng Guang, sem er sóttvarna­læknir Kína, að faraldrinum sé síður en svo lokið í landinu.  „Á meðan heims­faraldur geisar er þessu ekki lokið í Kína. Við erum einfald­lega komin á nýjan stað,“ segir læknirinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár