Segja nú að öllum beri að bera andlitsgrímur

Nokkur Evrópu­lönd skylda nú fólk til þess að bera andlits­grímur. Yfirvöld í Banda­ríkjunum hafa snúið afstöðu sinni og mælast nú einnig til þess. Ólafur S. Andrésson, prófessor í erfða­fræði við Líf- og umhverfis­vísinda­deild Háskóla Íslands, segir að grímur veiti falskt öryggi. Sóttvarna­læknir taldi „vafasamt“ að láta almenning bera grímur.

Með heimatilbúna grímu
Með heima­til­búna grímu Götusali í Sao Polo í Brasilíu með plast­poka fyrir vitum sér í þeim til­gangi að verj­ast smiti kór­óna­veirunnar sem veldur COVID-19. Nokkur Evr­ópu­lönd skylda nú þegna sína til að bera grímur á almanna­færi. Mynd: NELSON ALMEIDA / AFP

Nokkur Evrópu­lönd skylda nú fólk til bera andlits­grímur á almanna­færi til að varna útbreiðslu COVID-19 og bandarísk stjórn­völd hafa nú tekið upp þá stefnu að mælast til þess, eftir að hafa mælst gegn því. 

Lög þessa efnis gengu í gildi í Austur­ríki í dag. Ólafur S. Andrésson, prófessor í erfða­fræði við Líf- og umhverfis­vísinda­deild Háskóla Íslands, segir að grímur séu ekki fullkomin vörn gegn COVID-19 smiti og geti veitt þeim sem þær bera falskt öryggi.

Þetta segir Ólafur á Vísindavef Háskóla Íslands þar sem hann svarar spurningum um hvaða gagn grímur geri gegn COVID-19 smiti.

Í svari sínu segir Ólafur að grímur komi einkum að gagni við tvenns konar aðstæður. Í fyrsta lagi til að verja heilbrigðis­starfsfólk gegn sýkingum þegar það umgengst fólk með COVID-19-sýkingu. Þar sé þá um að ræða sérstakar sóttvarnar­grímur með smáum götum sem hleypa ekki í gegn örsmáum ögnum svo sem veirum. Þær séu dýrar og af skornum skammti.

Trefill getur hremmt dropa

Ólafur S Andr­és­son pró­fessor við HÍ

Í öðru lagi geti einfaldar grímur, trefill eða annað klæði, hremmt dropa sem myndast við hóst og hnerra. „Talið er að SARS-CoV-2 veiran (sem veldur COVID-19) berist einkum milli manna beint með slíkum úðadropum, eða óbeint um fleti sem fólk snertir,“ skrifar Ólafur í svari sínu.

Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir tók í sama streng á stöðu­fundi Almanna­varna fyrir helgi þar sem hann sagði að gríma gæti veitt fólki falskt öryggi.

Á vef Land­spítala, þar sem finna má ráðleggingar um sýkinga­varnir gegn COVID-19, segir að engin ástæða sé fyrir heilbrigt fólk að bera grímu nema það sinni umönnum fólks sem hugsanlega gæti verið sýkt eða að viðkomandi finnu fyrir flensu­einkennum. Þá segir í leið­beiningunum að gríma komi aðeins að gagni ef sá sem hana noti stundi reglulega hand­hreinsun.

Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir sagði á blaðamanna­fundi almanna­varna á föstudag það vera vafasamt að fá almenning til að bera grímur. „Að almenningur gangi með grímur er mjög vafasamt. Það er engin stofnun eða ábyrgur aðili sem mælir með því. Ég veit að í Banda­ríkjunum hafa þeir verið að tala um þetta en ég alla vega set spurninga­merki við þetta.“

Tekið til sinna ráðaÞessi íbúi á Fil­ipps­eyjum útbjó grímu úr vatns­brúsa. Óvíst er hversu mikla vörn gríma sem þessi veitir gegn COVID-19 smiti.

Landlæknir útbýr grímu úr stuttermabol

Fyrir helgi beindi Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, þeim tilmælum til bandarísks almennings að skýla nefi og munni á almanna­færi. Sjálfur sagðist Trump þó ekki ætla að bera grímu.

Í kjölfarið birti Sóttvarna­stofnun Banda­ríkjanna, CDC, um helgina leið­beiningar á vefsíðu sinni um hvernig útbúa megi slíkar grímur. Myndband sem sýnir  Jerome Adams landlækni Banda­ríkjanna, útbúa grímu úr stuttermabol hefur vakið töluverða athygli og fengið mikið áhorf.

Fjöldi fólks um allan heim hefur tekið upp á því að útbúa sínar eigin andlits­grímur til að verjast mögulegu veiru­smiti.

Ný lög í Austurríki

Frá og með deginum í dag ber öllum þeim, sem fara inn í dagvöruverslanir og apótek í Austur­ríki að bera grímu.  Kanslari landsins, Sebastian Kurz, hefur sagt að ekki sé útilokað að þetta muni fljótlega eiga við um öll önnur almanna­rými. Austur­ríki gengur ekki jafnlangt í þessum efnum og Bosina-Hersegó­vína, Slóvakía og Tékkland, þar sem fólki ber að bera grímu fari það út fyrir heimili sín.

Nú er í gangi þjóðar­átak í Tékklandi þar sem fólk er hvatt til að bera grímur og útbúa þær sjálft. Í mynd­skeiði, sem stjórn­völd létu gera, er meðal annars fullyrt að Tékkum hafi tekist að hamla útbreiðslu veirunnar með þessum aðgerðum.

Alþjóða­heilbrigðismál­stofnunin, WHO, segir að þeir einir eigi að bera grímur sem séu með einkenni COVID-19 eða séu á einhvern hátt útsettir fyrir smiti. Á vefsíðu stofnunarinnar er áréttað að einnota grímur eigi eingöngu að nota í eitt skipti. Mikil eftir­spurn sé eftir grímum alls staðar í heiminum og fólki því ráðlagt að nota þær á skyn­samlegan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár