Hundrað ára gamlar stofnfrumur

Rann­sóknir á stofn­frumum, eigin­leikum þeirra og virkni færa okkur nær því að geta nýtt stofn­frumur til meðferða í fram­tíðinni.

Öldrun
Öldrun Eftir því sem við eld­umst getur auk­ist þörfin á því að nýta stofn­frumu­með­ferðir. Mynd: Shutterstock

Allar frumur líkamans hafa sama uppruna, í upphafi vorum við öll bara ein okfruma. Þessi okfruma skipti sér svo og afleggjarar hennar hafa myndað allar þær frumur sem byggja líkama okkar, alveg sama hvaða hlutverki þær gegna.

Það er með ólíkindum að ein fruma geti endað sem allur sá fjöldi frumna sem daglega sjá til þess að líkami okkar virkar, eigi uppruna í einni og sömu frumunni. Þessi upphafs­fruma gefur svo einnig af sér vefja­sérhæfðar stofn­frumur sem sjá um að viðhalda vefjunum okkar.

Hvað eru stofnfrumur?

Stofn­frumurGeta myndað mis­mun­andi frumur.

Stofn­frumur eru sérstakar vegna þess að þær hafa hæfileika til að mynda margar gerðir frumna. Fóstur­stofnfrumur eru fyrstu afleggjarar okfrumunnar. Okfruman og hennar allra fyrstu afkomendur hafa hæfi­leikann til að mynda hvaða frumugerð sem er en eftir því sem líður á þroska fóstursins verða stofn­frumurnar sérhæfðari. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár