BPA-gildi í mannfólki verulega vanmetin

Nýjar mæl­ingar á plast­efn­inu BPA sýna að gildi efn­is­ins geta verið 44 sinnum meiri en áður mæld­ist.

BPA-gildi í mannfólki verulega vanmetin
Plast í umhverf­inu Lítil börn umgang­ast gríð­ar­lega mikið af plasti. Mynd: Shutterstock

Ný aðferð til að mæla BPA-gildi í mann­fólki hefur leitt í ljós að fram til þessa virð­umst við hafa stór­lega van­metið hversu mikið BPA er að finna í lík­ama fólks. Raun­veru­leg gildi geta verið allt að 44 sinnum meiri en mæl­ast með eldri grein­ing­ar­að­ferðum.

Hvað er BPA?

BPA eða bisphenol A er íblönd­un­ar­efni sem oft er blandað við plast­efni til þess að styrkja það og gefa plast­inu ákveð­inn sveigj­an­leika. Þekkt er að BPA getur haft áhrif á kyn­frumur dýra og hermt eftir ákveðnum horm­ónum. Þannig getur efnið ruglað eðli­lega starf­semi lík­am­ans. Þetta á sér­stak­lega við um fóstur. Fóstur sem útsett eru fyrir BPA í móð­ur­kviði geta til dæmis glímt við vanda­mál tengd eðli­legum vexti og efna­skipta­vanda­mál, auk þess sem þau eru í meiri áhættu á að fá krabba­mein.

Vegna þess­ara áhrifa hafa margir plast­fram­leið­endur brugðið á það ráð að skipta út BPA fyrir önnur efni sem hafa svip­aða bygg­ingu og gefa plast­inu sömu eig­in­leika. Einnig hefur BPA verið bannað upp að ein­hverju marki, sér­stak­lega í vörum fyrir ung­börn.

BPA getur verið að finna í plast­um­búðum á borð við plast­flöskur og mat­ar­í­lát. Í dag er yfir­leitt tekið fram á umbúðum hvort þær séu lausar við BPA eða ekki.

Raunveruleg gildi allt að 44 sinnum hærri

Í grein sem birt­ist nýverið í rit­rýnda tíma­rit­inu Lancet Diabetes & Endocrinology er fjallað um rann­sókn þar sem ný aðferð til að mæla BPA í manns­lík­am­anum er metin. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar er sú að þær aðferðir sem not­aðar hafa verið til að mæla BPA til þessa van­meti veru­lega raun­veru­leg gildi efn­is­ins.

Í sumum til­fellum eru raun­veru­leg gildi allt að 44 sinnum meiri en mæl­ingar með eldri aðferðum sögðu til um

Talskona rann­sókn­ar­hóps­ins, Patricia Hunt, pró­fessor við Washington State Uni­versity, segir rann­sókn­ina vekja spurn­ingar um það hvort við höfum fram til þessa farið nægi­lega var­lega varð­andi öryggi í kringum notkun á BPA. Þær aðferðir sem hafi verið not­aðar hingað til gætu hafa byggt á óná­kvæmum mæl­ingum og því ekki gefið rétta mynd af vand­anum. Svo mikil virð­ist skekkjan í mæl­ingum vera að í sumum til­fellum eru raun­veru­leg gildi allt að 44 sinnum meiri en mæl­ingar með eldri aðferðum sögðu til um.

Ný og nákvæmari aðferð

Nýja aðferðin sem fjallað er um í grein­inni er ólík fyrri aðferðum að því leyti að hún getur á nákvæm­ari og beinan hátt mælt BPA umbrots­efni í lík­am­anum.

Fyrri aðferðir byggðu að mestu á því að mæla BPA umbrots­efni óbeint. Þetta var gert með því að nota lausn sem inni­hélt ensím úr sniglum. Ensímin höfðu það hlut­verk að breyta umbrots­efnum aftur í BPA sem var síðan mælt til að gefa hug­mynd um það hversu mikið BPA var að finna í lík­am­anum.

Tvær aðferðir bornar saman

Í rann­sókn­inni voru þessar tvær aðferðir bornar saman. Í fyrstu var not­ast við gervi­þvag sem inni­hélt BPA. Seinna var not­ast við 39 sýni úr mann­fólki.

Í ljós kom að með því að nota nýju aðferð rann­sókn­ar­hóps­ins var nið­ur­staðan sú að mæld gildi voru mun hærri en með eldri aðferð­inni. Í ofaná­lag reynd­ist skekkjan vera meiri eftir því sem útsetn­ing fyrir BPA var meiri.

Krefst frekari rannsókna

Höfundar grein­ar­innar segja að end­ur­taka þurfi til­raun­ina oftar til að kom­ast að end­an­legri nið­ur­stöðu. Þeir von­ast til þess að nið­ur­stöð­urnar veki sér­fræð­inga í fag­inu til umhugs­unar um það hvernig við mælum BPA-gildi í lík­am­anum í dag.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn vinnur nú að frek­ari til­raunum með mæl­ingar á BPA. Að auki vinnur hóp­ur­inn að próf­unum á öðrum efnum sem hafa verið mæld með svip­uðum aðferðum til að athuga hvort sömu sögu sé að segja þar. Sá listi inni­heldur efni á borð við para­ben, triclosan og benzophenone sem er að finna í snyrti­vörum og sápum, svo dæmi séu tekin.

Ítarefni:

Science Daily: BPA í mann­eskjum veru­lega van­metið

The Lancet: Hefur gölluð mat­s­tækni dregið úr áreið­an­leika hættu­mats?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár