Eftir snjó­flóðið Þegar snjó­byl­inn lægði sást hvernig Súðavík hafði breyst. Mynd: RAX

Ég varð aldrei sá sami eftir þetta

Ásgeir Guð­munds­son fór sem sjálf­boða­liði til Súða­víkur eftir að snjó­flóð féll yfir byggð­ina. Hann skrif­aði end­ur­minn­ingar sínar 10 árum síðar en hefur aldrei birt þær fyrr en nú. Við­kvæmir eða þeir sem eiga um sárt að binda eru varaðir við lestr­inum.

16 jan­úar 1995.

Ég vakn­aði til að fara í vinnu frá Ísafirði til Bol­ung­ar­víkur.

Það hafði spáð vondu veðri kvöld­inu áður svo ég hafði fært bíl­inn minn út næstu götu til að ég þyrfti ekki að moka mig fram.

Veðrið var ekki gott en það var vinnu­dagur svo ég klæddi mig vel og fór út.

Maður sá ekki svo mikið fyrir veðr­inu en þeir voru jú vanir að opna veg­ina. Bíllinn start­aði og þá var bara að keyra af stað 100 metra. Þetta gekk 200 m, ég kom fram að norð­ur­tang­anum og þar var snjó­veggur sirka tveir metrar. Nei, þetta var ekk­ert vit, maður þurfti að kanna þetta aðeins betur svo ég sneri heim.

Ásgeir Guð­munds­sonSkrifar um lífs­reynslu sína við björg­un­ar­starf í Súðavík.

Ég hringdi í Vega­gerð­ina og spurði hvort það yrði opnað en þeir sögðu að það væri beðið átekta. Það var lítið við því að gera.

Ég lagði á kola­elda­vél­ina sem var ennþá með glóð frá kvöld­inu áður. Kjallari fullur af kolum síðan 19 hund­ruð og eitt­hvað og elda­vélin klár. Því ekki að taka þetta í notkun þegar viðrar svona? Það var jú ekki alltaf raf­magn þegar veðrið lét svona.

Ég lagð­ist í sófann með lopa­peys­una á mér og hafði útvarpið á. Ég hlýt að hafa dottað, það var orðið svo heitt að svit­inn lak næstum af mér.

Svo heyrð­ist í útvarp­inu að það hafði fallið snjó­flóð í Súðavík. Hvað er að ger­ast? Var þetta fólk sem ég þekkti? Og smátt og smátt rann það upp fyrir mér hvað var að ger­ast.

Ég vissi hvað snjó­flóð væri og hafði gert frá síð­ustu árum og mínum upp­vexti á Hrauni á Ingj­alds­sandi við Önund­ar­fjörð. Svitinn varð kaldur og ég skalf af til­hugs­un­inni um þetta.

En það var ekki svo mikið sem maður gat gert hérna. Ég vissi að þeir sem ég hafði áður verið með í björg­un­ar­sveit­inni voru örugg­lega farnir inneftir, svo ég sat bara þarna og hlust­aði á útvarpið.

Svo kom til­kynn­ing í útvarp­inu um að þeir sem gætu komið og hjálpað til væru beðnir um að koma niður á slökkvi­stöð.

Ég hafði verið með áður svo það var ekki nein spurn­ing um annað en að fara.

Ég vakti kon­una og sagði henni hvað hefði  gerst og hvort það væri ekki í lagi að ég færi. Hún þekkti mig og vissi að það væri ekki hægt að stoppa mig.

Hvernig verður þetta?

Ég gerði mig kláran með vett­linga og sokka til skipt­anna. Skórnir mínir voru ekki svo góðir, en ég hugs­aði með mér að það yrði ekki svo mikið um göngu. Ég smurði mér nesti þar sem ég vissi að það gæti verið lítið um mat til að byrja með.

Ég lagði af stað gang­andi niður að slökkvi­stöð. Það var orðið bjart og veðrið hafði versnað, eða það virt­ist hafa versnað. Það var eig­in­lega ekki mögu­legt að sjá fram fyrir sig. En það er ekki svo erfitt að labba á milli húsa hér þar sem maður þekkir allt.

Allt var hvítt og maður sá að það hafði komið mik­ill snjór. Ég var spenntur og skalf smá inni í mér, hugs­aði mikið um hvað myndi nú ske og hvernig þetta yrði.

Þegar ég kom inn á slökkvi­stöð­ina voru mörg and­lit sem ég þekkti. Allir sátu þar og voru frekar þungir á svip. Ég gekk og reg­isterti mig og var sagt að bíða þar til það yrði farið með okkur á bát inn í Súðavík.

Biðin í slökkvi­stöð­inni var löng og við urðum bara fleiri og fleiri þar og að lokum kom það sem við allir biðum eftir. Ég labb­aði saman með fleirum niður í Sunda­höfn og þar beið tog­ari eftir okkur. Ég veit ekki hvað það voru margir um borð, en það var þrungin stemn­ing. Við komum okkur á milli­dekkið og svo vorum við lagðir af stað.

Sjóferðin

Við flestir sem vorum þar vorum ekki sjó­vanir og sjór­inn tók meira og meira í bát­inn.

Mér leið ekki vel. Fiski­kass­arnir köst­uð­ust veggja á milli og við þurftum að passa okkur á þeim. Maður sá þegar bát­ur­inn lagði til hliðar að sjór­inn náði upp að kýraug­unum. Það var bara að halda sér. Ég er að venju mjög sjó­veikur en ekki í dag.

Spennan var mikil og maður hugs­aði: Komust við inneftir? Maður getur ekki gert sér grein fyrir því hvað skipið þolir, lifir maður þessa sjó­ferð af? Margar hugs­anir vakna og maður sá á öðrum að það var ekki bara ég sem hugs­aði svona.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár