Grétu þegar stúlkan fannst Magnús Einar Magn­ús­son, for­maður björg­un­ar­sveit­ar­innar á Flateyri, segir að allir björg­un­ar­sveit­ar­menn­irnir sem voru við leit hafi farið að gráta af létti þegar þeir fundu og björg­uðu stúlkunni sem lenti í snjó­flóð­inu í nótt.

„Tíu fullorðnir karlmenn grétu á sama tíma“

Magnús Einar Magn­ús­son, for­maður björg­un­ar­sveit­ar­innar Sæbjargar á Flateyri, segir að tjón á dauðum hlutum skipti engu máli. „Ég heyrði nokkuð sem ég hef aldrei heyrt áður,“ segir hann um augna­blikið þegar ung­lings­stúlka fannst á lífi í rúm­inu sínu undir snjó­flóð­inu.

Magnús Einar Magn­ús­son, for­maður björg­un­ar­sveit­ar­innar Sæbjargar á Flateyri, segir að öllum hafi létt gríð­ar­lega þegar að ung­lings­stúlkan sem grófst undir flóð­inu sem féll þar í gær­kvöldi fannst heil á húfi. „Ég heyrði nokkuð sem ég hef aldrei  heyrt áður, tíu full­orðnir karl­menn grétu á sama tíma.“

Tvö snjó­flóð féllu úr tveimur giljum upp af Flateyri á tólfta tím­anum í gær­kvöldi. Annað þeirra, það sem féll úr Skolla­hvilft sem er innar í firð­inum, fór með­fram snjó­flóða­varna­garði og í sjó fram með þeim afleið­ingum að flóð­bylgja mynd­að­ist og reið yfir smá­báta­höfn­ina. Hvolfdi hún og sökkti sex af sjö bátum sem voru í höfn­inni og mara þeir þar nú í hálfu kafi. Hitt flóðið, sem féll úr ytra gil­inu, Innra-Bæj­ar­gili, lenti einnig á snjó­flóða­varn­ar­garði sem beindi því frá bænum. Kraftur flóðs­ins var hins vegar svo mik­ill að það sprakk yfir snjó­flóða­varn­ar­garð­inn og skall á húsi við Ólafstún þar sem fjög­urra manna fjöl­skylda býr. Móðirin komst út úr húsin með tveimur yngri börnum sínum af eigin ramm­leik. Elsta dóttirin grófst hins vegar undir flóð­inu í svefn­her­bergi sínu. Björg­un­ar­sveit­ar­menn komu fljótt á vett­vang og fundu stúlk­una, kalda en ómeidda, eftir um 40 mín­útna leit. 

Aðstæður til leitar í hús­inu, inni í her­bergi stúlkunnar, voru mjög erf­iðar. Plássið var lítið og mik­ill snjór. Alls konar dót, inn­an­stokks­munir og annað, voru fyrir við mokst­ur­inn og eins þurfti að fara var­lega við leit­ina.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafði stúlkan legið í rúmi sínu, sem feykt­ist til á milli veggja, og fannst hún liggj­andi í fóst­ur­stell­ingu undir sæng sinni. Snjó­flóðið var þá orðið hart eins og „steypa“, sam­kvæmt lýs­ingum.

„Snjórinn varð mjög fljótt mjög harður og það var eins mjög erfitt að koma snjó út úr her­berg­inu. Það reyndi því tals­vert á mann­skap­inn en sem betur fer fór þetta vel. Manni fannst þetta taka heila eilífð en í raun voru þetta um 35 til 40 mín­útur frá því að við fórum inn í húsið og þar til við fundum hana,“ sagði Magnús þegar Stundin ræddi við hann á ell­efta tím­anum í morgun.

Við höfn­inaÍbúi á Flateyri horfir yfir ham­fara­svæðið í gær­kvöldi.

Tilfinningarnar gríðarlegar

Spurður hvernig til­finn­ingin væri þegar björg­un­ar­sveit­ar­menn finna mann­eskju sem leitað væri að í aðstæðum sem þessum segir Magnús að hann hafi ekki verið sjálfur inni í her­berg­inu þegar stúlkan fannst því hann hafi verið að stýra aðgerðum fyrir utan. „Ég heyrði nokkuð sem ég hef aldrei  heyrt áður, tíu full­orðnir karl­menn grétu á sama tíma. Til­finn­ing­arnar eru auð­vitað gríð­ar­legar, ekki síst í svona litlu bæj­ar­fé­lagi þar sem að allir þekkja alla og ekki síður af því að við eigum okkar sögu,“ segir Magnús og vísar þar til snjó­flóðs­ins mann­skæða sem féll á Flateyri 26. októ­ber 1995, þar sem tutt­ugu manns lét­ust.

„Ég trúi því ekki að ég sé kom­inn aftur“

Magnús sjálfur er fæddur 1989 og man því ekki mikið eftir flóð­inu 1995. „Það eru bara sög­urnar sem maður hefur heyrt, þetta hitti menn verr fyrir sem upp­lifðu flóðið þá.“ Hins vegar voru sumir reynd­ari björg­un­ar­sveit­ar­manna í Sæbjörg einnig við björg­un­ar­störf fyrir ald­ar­fjórð­ungi, þegar flóðið féll 1995. Magnús segir að minn­ing­arnar síðan þá hafi hreyft mjög við mörgum þeirra. „Eins björg­un­ar­sveit­ar­menn sem komu með varð­skip­inu frá Ísafirði í nótt, menn sögðu: Ég trúi því ekki að ég sé kom­inn aftur.“ Tíu björg­un­ar­sveit­ar­menn frá Sæbjörgu voru við störf í nótt og sautján björg­un­ar­sveit­ar­menn komu með varð­skip­inu Þór frá Ísafirði í nótt og eru fimmtán þeirra ennþá á Flateyri en tveir fóru til baka með skip­inu í morgun.

Stúlkan borin um borð í ÞórLand­helg­is­gæslan birti í morgun myndir af því þegar að björg­un­ar­sveit­ar­menn fluttu stúlk­una sem bjargað var úr flóð­inu um borð í skipið, sem svo sigldi með hana og fjöl­skyldu hennar inn á Ísafjörð.

Veðrið enn kolvitlaust

Magnús segir að léttir­inn þegar stúlkan fannst hafi verið mik­ill og eins þegar ljóst var að engir aðrir höfðu slasast eða lent í flóð­inu. Þorps­búar séu engu að síður í sjokki. „Það er að koma áfallateymi með Þór og ég hef fengið nokkrar hring­ingar í morgun um hvort að það verði í boði, sér­stak­lega fyrir nem­endur Lýð­há­skól­ans sem búa í sjóstang­veiði­hús­unum sem voru rýmd í gær­kvöldi. Það var verk­efnið sem við vorum að fara í í gær­kvöldi þegar að við fengum fregnir af seinna flóð­inu. Þá settum við það auð­vitað bara í bið.“ Eftir hádegið verður opnuð fjölda­hjálp­ar­mið­stöð í grunn­skól­anum þar sem áfalla­hjálp verður í boði og munu björg­un­ar­sveit­ar­menn veita fólki aðstoð við að kom­ast þangað ef þörf krefur.

Bátarnir lík­lega ónýtirMagnús Einar telur allar líkur á að bát­arnir sex sem flóð­bylgjan tók með sér séu ónýtir.

Flóðið lenti ekki á hús­unum sem standa þarna niðri á Eyar­ar­bót­inni en flóð­bylgjan sem varð þegar flóðið úr Skolla­hvilft féll í sjó fram var gríð­ar­leg og olli því gríð­ar­legum skemmdum á sex af sjö bátum Flat­eyr­inga sem voru í höfn­inni. Magnús segir að lög­regla hafi tekið ávkörðun um að rýma umdrædd hús og auk þess tvö hús í Hafn­ar­stræti einnig. „Það fór sjór hér yfir allt. Þó að þegar hafi fallið eitt flóð þá er alls ekki víst að svæðið sé öruggt, það er ekk­ert hægt að segja um hvernig snjó­flek­inn hefur brotnað upp enda er ekk­ert skyggni búið að vera. „Það er nátt­úru­lega bara alveg kol­vit­laust veður þannig að við sjáum ekki einu sinni út um glugga hjá okkur. Síðasta sem ég vissi að það væri mögu­legt að það lægði eitt­hvað upp úr hádegi, við vonum það bara.“

Mjög mikið eignatjón eftir flóðin

Þegar Stundin ræddi  við Magnús á ell­efta tím­anum var um það bil að hefj­ast stöðu­fundur vegna snjó­flóð­anna. Flat­eyr­ingar muna varla eftir öðrum eins snjó­þyngslum á þess­ari öld og hafa íbúar verið lok­aðir inni vegna veð­urs frá því síð­ast­lið­inn föstu­dag. Fréttir voru sagðar af því í byrjun vik­unnar að farið væri að sneið­ast um birgðir í þorp­inu, brauð væri að klár­ast og óljóst hvenær hægt yrði að koma mat­vælum og öðrum vörum á svæðið. Greint var frá því í morgun að varð­skipið Þór myndi koma með birgðir frá Ísafirði til Flat­eyrar. Magnús segir þó að ekki sé vöntun á neinu að sinni. „Við erum stödd á Gunnu­kaffi, sem er kaffi­hús hér í bænum, og þau eru búin að græja morg­un­mat fyrir alla björg­un­ar­sveit­ar­menn. Þau voru vel birg, þau sjá um mötu­neytið fyrir leik­skól­ann og grunn­skól­ann hér í bænum.“

„Þetta eru algjörar ham­farir“

Grétu þegar þeir fundu hanaMagnús Einar Magn­ús­son, for­maður björg­un­ar­sveit­ar­innar á Flateyri, segir að allir björg­un­ar­sveit­ar­menn­irnir sem voru við leit hafi farið að gráta af létti þegar þeir fundu og björg­uðu stúlkunni sem lenti í snjó­flóð­inu í nótt.

Magnús segir að nú bíði björg­un­ar­sveitin þess að veður skáni og mögu­lega verði þá hægt að kom­ast í verð­mæta­björgun í hús­inu við Ólafstún. Önnur verk­efni séu óklár en hættu­stig er enn á hlutum bæj­ar­ins, þar á meðal hafn­ar­svæð­inu. Því hafi björg­un­ar­sveit­ar­menn ekk­ert kom­ist til að kanna með bát­ana í höfn­inni. „Nei, þetta er hættu­svæði þar sem þeir eru og við fórum ekk­ert í nótt. Svæðið er smekk­fullt af snjó svo við höfðum í sjálfu sér ekki áhyggjur af því að bát­arnir færu þegar byrj­aði að falla út. Eftir því sem ég hef séð í morgun, milli bylja, eru bát­arnir allir enn inni í höfn­inni. Þetta er hins vegar gríð­ar­legt eigna­tjón, án þess að ég sé neinn sér­fræð­ingur gæti ég trúað að allir þessir bátar séu ónýtir. Flot­bryggjan er bara farin, hún liggur á hvolfi í poll­inum. Þetta eru algjörar ham­farir. Þetta eru hins vegar bara dauðir hlutir, eftir að stúlkan bjarg­að­ist á lífi þá skiptir engu máli með hitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Snjóflóð á Flateyri

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár