Særún Ósk nýr samskiptastjóri Haga

Særún Ósk Pálma­dóttir hefur verið ráðin sam­skipta­stjóri Haga. Hún starf­aði áður sem sam­skipta­ráð­gjafi ráð­gjafa­stof­unnar Aton.JL.

Særún Ósk Pálma­dóttir hefur verið ráðin sam­skipta­stjóri Haga hf. Staðan er ný innan fyr­ir­tæk­is­ins en mark­mið stöð­unnar er meðal ann­ars að gera boð­leiðir skýr­ari og mark­viss­ari innan Haga og dótt­ur­fyr­ir­tækja.

Særún hefur reynslu á sviði sam­skipta­ráð­gjafar og kemur til Haga frá ráð­gjafa­stof­unni Aton.JL, áður Aton, þar sem hún starf­aði sem sam­skipta­ráð­gjafi síð­ast­liðin þrjú ár.

Særún var einnig kynn­ing­ar­stjóri tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Myrkir mús­ík­dagar á árunum 2018 og 2019 og hefur hún einnig starfað sem sér­fræð­ingur í sam­skiptum hjá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Tempo og verk­efna­stjóri hjá Opna háskól­anum í HR.

Særún er með M.Sc. gráðu í almanna­tengslum með áherslu á krísu­sam­skipti frá Háskól­anum í Lundi í Svíþjóð og Háskól­anum í Stirling í Skotlandi, sem og B.Sc. gráðu í við­skipta­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið undanfarið ár