Segir af sér sem formaður Landsambands íslenskra verslunarmanna

Guð­brandur Ein­ars­son hefur sagt af sér sem for­maður LÍV. Ástæðan sem hann gefur er mein­ing­ar­munur á milli hans og for­svars­manna VR með hvaða hætti skuli nálg­ast kjara­samn­ings­gerð.

Guðbrandur Einarsson
Guð­brandur Ein­ars­son Mynd: sudurnes.net

Guð­brandur Ein­ars­son hefur sagt af sér sem for­maður LÍV. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Guð­brandur sendi frá sér í gær en birt var í dag.

Í henni segir hann að þeirri stöðu hafi hann gengt í hart­nær 6 ár af auð­mýkt og þakk­læti fyrir að hafa verið trúað fyrir þessu mik­il­væga verk­efni. „Þessi staða hefur gefið mér margt og veitt mér tæki­færi til að takast á við ný verk­efni s.s. að eiga mikil og náin sam­skipti við syst­ur­sam­tök á Norð­ur­löndum og kynn­ast fólki sem þar er í for­svari. Sú reynsla hefur kennt mér margt sem ég mun búa að,“ segir hann.

„Þær breyt­ingar hafa hins vegar orðið að það stétt­ar­fé­lag sem ég hef verið í for­svari fyrir und­an­farin 21 ár, sam­ein­ast VR þann 1. apríl og við það fær­ist samn­ings­um­boð þess félags yfir til VR í kjöl­farið. Þá er sú staða uppi að LÍV og VR hafa ekki átt sam­leið við gerð kjara­samn­ings, þrátt fyrir að hafa lagt fram sam­eig­in­lega kröfu­gerð.

Veru­legur mein­ing­ar­munur er á milli mín og for­svars­manna VR með hvaða hætti skuli nálg­ast kjara­samn­ings­gerð og þar sem ég hef ákveðið að þyggja ekki starf hjá VR, þrátt fyrir boð þar um, tel ég eðli­legt að ég stigi úr stóli for­manns Lands­sam­bands íslenskra versl­un­ar­manna á þessum tíma­punkti,“ segi Guð­brandur jafn­framt.

[adspot]

Hann seg­ist vera fullur þakk­lætis fyrir þann tíma sem hann hefur setið í stjórn LÍV sem nú telur tvo ára­tugi og kveður þennan vett­vang fullur auð­mýktar. „Ég vil óska stjórn LÍV vel­farn­aðar í störfum sínum fyrir íslenskt launa­fólk og þakka þeim ein­stak­lingum sem ég hef fengið að vinna með á þessum vett­vangi fyrir ein­stök og góð kynni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár