Skúli veðsetti heimili sitt fyrir 358 milljónir í september

Skúli Mogensen, eig­andi WOW air, veð­setti heim­ili sitt, hótel á Suð­ur­nesjum og fast­eignir í Hval­firði fyrir lánum frá Arion banka í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Um er að ræða tæp­lega 733 millj­ónir króna á tveimur trygg­inga­bréfum.

Skúli Mogensen, eig­andi WOW air, veð­setti heim­ili sitt, hótel á Suð­ur­nesjum og fast­eignir í Hval­firði fyrir lánum frá Arion banka. Samtals er um að ræða 733 millj­ónir króna á tveimur trygg­inga­bréfum sem Arion banki þing­lýsti á fast­eignir tengdum Skúla í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þetta kemur fram í umfjöllun Stund­ar­innar í dag.

Veðsetti húsið sitt fyrir nærri 360 milljónir

Trygg­inga­bréf­inu var bæði þing­lýst á eignir sem tengj­ast rekstri WOW air með óbeinum hætti, á hótel á Suð­ur­nesjum sem félagið TF-KEF ehf. á, og eins á fast­eignir í Hvamms­vík í Hval­firði sem Skúli Mogensen á í gegnum félagið Kotasælu ehf.. Trygg­inga­bréfið á hót­el­inu á Suð­ur­nesjum er á þriðja veð­rétti á eftir tveimur trygg­inga­bréfum frá Arion upp á sam­tals 650 millj­ónir króna sem hvíla á fyrsta og öðrum veð­rétti, sam­kvæmt umfjöllun Stund­ar­innar.

Arion banki þing­lýsti einnig nýju trygg­inga­bréfi upp á 2,77 millj­ónir evra, 358 millj­ónir króna, á heim­ili Skúla á Sel­tjarn­ar­nesi sama dag. Engin veð­bönd hvíldu á hús­inu fyrir þetta.

Samtals er því um að ræða tæp­lega 5,7 millj­ónir evra, 733 millj­ónir króna, á tveimur trygg­inga­bréfum sem Arion banki þing­lýsti á fast­eignir tengdar Skúla í sept­em­ber.[adspot]

Skúli fjárfesti 770 milljónir í skuldabréfaútboði WOW air

[links]Í sept­em­ber 2018 stóð WOW air í skulda­bréfa­út­boði í þeirri von að tryggja áfram­haldi rekstur flug­fé­lags­ins. Þremur dögum áður en Skúli Mogensen und­ir­rit­aði trygg­ing­ar­bréfin á fast­eign­unum lauk skulda­bréfa­út­boð­inu.

Skúli til­kynnti skulda­bréfa­höfum WOW air í nóv­em­ber að hann hefði sjálfur fjár­fest í skulda­bréfa­út­boð­inu fyrir 770 millj­ónir króna. Það var 1/12 af því sem safn­að­ist í útboð­inu en alls söfn­uð­ust 60 millj­ónir evra til að end­ur­fjár­magna WOW air að hluta.

Ekki fékkst svar frá Arion banka

Stundin hafði sam­band við Arion banka til að spyrj­ast fyrir um málið og hvort bank­inn hefði veitt ný lán til Skúla á þessum tíma eða hvort bank­inn hefði verið að taka frek­ari veð, og þar með tryggja stöðu, gagn­vart Skúla á WOW air á þessum tíma. Í svari frá bank­anum sagði að banka­leynd kæmi í veg fyrir að Arion gæti tjáð sig um við­skipti sín við við­skipta­vini bank­ans. Stundin spurði Skúla Mogensen einnig að því hvort hann hefði fjár­magnað þátt­töku sína í skulda­bréfa­út­boð­inu með láni frá Arion banka. Skúli svar­aði ekki fyr­ir­spurn blaðs­ins, sem send var í tölvu­pósti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið undanfarið ár