Húnaþing vestra sendir frá sér hjálparkall

Sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra lýsir því hvernig grunn­stofn­anir sam­fé­lags­ins voru óvið­búnar fár­viðr­inu og yfir­völdum fyr­ir­fórst að tryggja öryggi þeirra. Íbúar höfðu hvorki raf­magn, fjar­skipti né aðgengi að upp­lýs­ingum þar sem grunn­inn­viðir brugð­ust.

Húnaþing vestra sendir frá sér hjálparkall
Rauð við­vörun Illviðri síð­ustu daga hefur svipt íbúa á Norð­ur­landi öryggi og örygg­is­kennd. Mynd: Húnaþing vestra

„Húnaþing vestra hefur verið raf­magns­laust í rúm­lega 40 klukku­stundir,“ segir í bókun sveit­ar­stjórnar Húna­þings vestra í dag, þar sem því er lýst hvernig „allir helstu opin­beru inn­viðir sam­fé­lags­ins brugð­ust“ í ill­viðri síð­ustu daga vegna ónógs við­bún­aðar þeirra sem sinna mik­il­vægum innviðum sam­fé­lags­ins.

Þannig hefur verið raf­magns­laust í fár­viðri og íbúar á sama tíma ekki haft aðgengi að upp­lýs­ingum þar sem fjar­skipti og útsend­ingar Rík­is­út­varps­ins hafa legið niðri.

Húnaþing vestra nær frá Hrúta­firði í vestri til Húnaflóa í austri, skammt vestan Blöndu­óss. Íbúarnir eru aðeins um 1.200 tals­ins og er stærsta byggðin Hvamms­tangi.

Sveit­ar­stjórnin lýsir því í bókun sinni í dag hvernig raf­magns­ör­yggi, aðgengi að upp­lýs­ingum og sam­skipta­leiðir hafi brugð­ist vegna lít­ils við­bún­aðar grunn­þjón­ustu­kerfa. Hins vegar hafi sjálf­boða­liðar komið til bjargar. „Það er alger­lega óvið­un­andi að grunn­stofn­anir sam­fé­lags­ins, RARIK, Landsnet og fjar­skipta­fyr­ir­tækin hafi ekki verið betur und­ir­búin og mönnuð á svæð­inu en raun ber vitni. Aftur á móti voru Björg­un­ar­sveit­irnar og Rauði kross­inn, sem rekin eru í sjálf­boða­vinnu, vel und­ir­búin og komin með tæki og fólk á stað­inn áður en veðrið skall á.“

Þau þakka sjálf­boða­liðum að ekki fór verr. „Fórnfýsi þessa fólks er okkur sem hér búum alger­lega ómet­an­leg.“

Eft­ir­far­andi er bókun sveit­ar­stjórnar í heild sinni.

Bókun sveitarstjórnar Húnaþings vestra

„Sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra lítur atburði síð­ustu sól­ar­hringa grafal­var­legum augum. Ljóst er að allir helstu opin­beru inn­viðir sam­fé­lags­ins brugð­ust í því veð­ur­á­hlaupi sem nú gengur yfir.

Starfs­fólk og sjálf­boða­liðar sem staðið hafa vakt­ina hafa unnið þrek­virki síð­ustu daga við að koma á raf­magni, fjar­skiptum og greiða fyrir sam­göngum eins og kostur er. Fórnfýsi þessa fólks er okkur sem hér búum alger­lega ómet­an­leg.

„Fórnfýsi þessa fólks er okkur sem hér búum alger­lega ómet­an­leg.“

Húnaþing vestra hefur verið raf­magns­laust í rúm­lega 40 klukku­stundir, hluti sveit­ar­fé­lags­ins er ekki enn kom­inn með raf­magn og ekki vitað hversu lengi það ástand varir. Ljóst er að nú þegar hefur orðið tals­vert tjón hjá íbúum og eykst það eftir því sem tím­inn líður.

Það er alger­lega óvið­un­andi að grunn­stofn­anir sam­fé­lags­ins, RARIK, Landsnet og fjar­skipta­fyr­ir­tækin hafi ekki verið betur und­ir­búin og mönnuð á svæð­inu en raun ber vitni. Aftur á móti voru Björg­un­ar­sveit­irnar og Rauði kross­inn, sem rekin eru í sjálf­boða­vinnu, vel und­ir­búin og komin með tæki og fólk á stað­inn áður en veðrið skall á.

Óásætt­an­legt er að tengi­virkið í Hrúta­tungu hafi verið ómannað þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Lands­nets um annað. Sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra gerir þá grund­vall­ar­kröfu að á svæð­inu sé mann­afli sem getur brugð­ist við með skömmum fyr­ir­vara. Starfs­stöð RARIK á Hvamms­tanga er ein­menn­ings­starfs­stöð og hefur því ekki burði til að takast á við aðstæður sem þessar. Nú stendur fyrir dyrum að RARIK leggi niður starfs­stöð­ina á Hvamms­tanga sem sveit­ar­stjórn telur með öllu óvið­un­andi. Aðstæður síð­ustu daga sýna fram á mik­il­vægi þess að á Hvamms­tanga sé starf­andi vinnu­flokkur með a.m.k. tveimur til fjórum stöðu­gildum. Engin vara­afls­stöð er í Húna­þingi vestra og hefði verið hægt að lág­marka vand­ann ef slík stöð væri stað­sett á Hvamms­tanga.

Í kjöl­far víð­tæks raf­magns­leysis duttu öll sam­skipti út, far­síma­sam­band og Tetra kerfi lög­reglu. Lífs­spurs­mál er að íbúar sveit­ar­fé­lags­ins geti náð í við­bragðs­að­ila ef alvar­leg slys eða veik­indi ber að höndum.

„... þá sér­stak­lega er litið til örygg­is­hlut­verks Rík­is­út­varps­ins sem brást alger­lega“

Hlutverk fjöl­miðla er mjög mik­il­vægt í aðstæðum líkt og sköp­uð­ust síð­ustu daga og þá sér­stak­lega er litið til örygg­is­hlut­verks Rík­is­út­varps­ins sem brást alger­lega. Dreifi­kerfi RÚV lá niðri víða í sveit­ar­fé­lag­inu og náð­ust send­ingar illa eða alls ekki. Almennri upp­lýs­inga­gjöf til íbúa um stöðu og horfur var ekki sinnt. Litlar sem engar fréttir bár­ust frá Húna­þingi vestra þrátt fyrir að veð­ur­að­stæður væru hvað verstar á þessu svæði og útvarpið nær eina leið íbúa til að fá upp­lýs­ingar. Ótækt er að vísað sé til vef­síðna til frek­ari upp­lýs­inga um stöðu mála þegar hvorki er raf­magn né fjar­skipta­sam­band.

Grafal­var­legt er að ekki sé starfs­stöð lög­reglu á svæð­inu sér­stak­lega við aðstæður sem þessar. Sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra hefur ítrekað vakið máls á þessu án nokk­urra und­ir­tekta.

Sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra lýsir áhyggjum sínum af því að ekki er vara­afl­stöð við Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands Hvamms­tanga. Sveit­ar­stjórn hvetur til að úr því verði bætt hið snarasta.

Sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra mun á næstu dögum óska eftir fundum með RARIK, Lands­neti, Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands, lög­reglu og stjórn­völdum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár