Heimamenn fyrir norðan slegnir: „Við hentum öllu frá okkur“

Drengurinn sem leitað er í Sölvadal í Eyjafirði, eftir að hann féll í Núpá í gærkvöldi, mun hafa verið gest­komandi hjá bónda á bæ í dalnum og farið með honum til að aðstoða við að koma rafmagni á. Hans er enn saknað.

Erfiðar aðstæður
Erfiðar aðstæður Erfiðar aðstæður eru við leit­ina og nán­ast úti­lokað að kom­ast að svæð­inu öðru­vísi en með því að ganga í ánni. Myndin er úr safni og teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Pressphotos

Drengurinn sem leitað er í Sölvadal í Eyjafirði, eftir að hann féll í Núpá í gærkvöldi, mun hafa verið gest­komandi hjá bónda á bæ í dalnum og farið með honum til að aðstoða við að koma rafmagni á. Hans er enn saknað. Samkvæmt heimildum Stundarinnar er drengurinn sextán ára gamall. Munu drengurinn og bóndinn hafa staðið uppi á stíflu­vegg, þar sem þeir voru að vinna við að hreinsa krapa frá inntaki inn í stífluna, þegar að krapa­bylgja kom niður ánna og hreif drenginn með sér. Bóndinn náði að forða sér undan. Erfiðar aðstæður eru til leitar, þar eð Núpáin fellur í kröppu gili í um það bil tvo til þrjá kílómetra neðan við stífluna. Heimamenn í sveitinni eru mjög slegnir vegna slyssins.

Hentu öllu frá sér 

Hjalti Þórsson vinnur við snjó­ruðning og var hann fenginn til að ryðja veginn inn Eyjafjörð og inn Sölva­dalinn. Hann segir að ekki hafi verið erfitt að ryðja leiðina svo að vel væri en aðstæður til leitar við ánna sé erfiðar. „Hún rennur þarna í þrengslum í tvo til þrjá kílómetra neðan við stífluna, sem er illmögulegt að komast um gangandi. Svo eru þarna krapa­bakkar í hliðunum eftir krapa­flóðið sem tók manninn þannig að það er eiginlega varla nokkurs staðar pláss fyrir mannskap til að ganga nema í ánni. Það er mjög erfitt að athafna sig og komast að þessu. Landið meðfram gilinu er mikið sundur­skorið af lækjum og það hallar mikið að því þannig að það er erfitt yfir­ferðar. Það er líka svell undir snjó þarna og skreipt.“

„Við hentum öllu frá okkur“

Hlynur Þórsson á Akri er félagi í björgunar­sveitinni Dalbjörgu og var við leit í nótt. „Ég var niðri á Akureyri í gærkvöldi og við vorum þar komnir með rafstöðvar á bíl og vorum á leið inn í Svarfaðardal til að koma fjósum í gang þar í rafmagns­leysinu. Við hentum öllu frá okkur þegar útkallið kom og fórum inn eftir inn í dal til leitar.“ Öllum tiltækum mannskap sem var í nágrenninu var þegar beint inn í Sölvadal til leitar.

Klettagil og hrunhætta 

Hlynur var við leit til klukkan þrjú í nótt en aðrir héldu áfram við leit. Élja­gangur var á en gola hæg og ekki mikill snjór. „Þetta er klettagil og bara sum staðar sem hægt er að ganga meðfram ánni. Að vestan­verðu eru hengjur svo það var hrunhætta og það þarf að fara mjög varlega á köflum.“ Félagar í björgunar­sveitinni Dalbjörgu eru vel kunnugir á svæðinu og auðveldar það skipulag aðgerða talsvert en leitar­svæðið er þó talsvert og leitótt í því.

Aðeins einn bær er í byggð í Sölvadal. Hann, sem og aðrir bæir í dalnum, hafa aldrei verið tengdir við rafveitu Landsnets en heima­rafstöðvar voru settar upp í dalnum. Þekkt er að í vondum veðrum hafa inntaksrör þeirra oft stíflast af krapa og erfitt er og hættulegt að hreinsa frá þeim. Þá er þekkt að í Núpánni myndast snjó­stíflur í mikilli úrkomu, sem bresta svo og berast niður ánna.

Heimamenn sem Stundin hefur rætt við í morgun eru mjög slegnir yfir slysinu. Mjög margir þeirra eru á vettvangi við leit eða hafa verið það. 

Kafarar fluttir norður

Á fimmta tug manns voru við leit í nótt á svæðinu og kom tíu manna hópur, sérstak­lega sérhæfður í straumvatns­björgun, að sunnan undir morgun. Kafarar frá slökkviliðinu á Höfuð­borgar­svæðinu og kafarar úr sérsveit Ríkis­lögreglu­stjóra voru þá fluttir norður í gærkvöldi með þyrlu Landhelgis­gæslunnar. 

Alls voru fjórir kafarar, lögreglu­maður og tíu sérhæfðir björgunar­sveitarmenn fluttir norður í Sölvadal með þyrlu Landhelgis­gæslunnar í nótt. Þyrlan lenti við Saur­bæjarkirkju laust eftir klukkan eitt í nótt þar sem kafararnir fóru frá borði, en þyrlan var á svæðinu til 4:30 þegar skyggni tók að versna. Önnur þyrla Landhelgis­gæslunnar flutti tíu björgunar­sveitamenn til viðbótar norður og lenti á Akureyrar­flugvelli á fimmta tímanum. Meiri mann­skapur mun vera á leiðinni norður til leitar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár