Er baráttan um borgina þegar ráðin?

Skoð­ana­kann­anir sýna nokkuð skýrar víg­línur fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fara í lok næsta mán­aðar. Lítil hreyf­ing virð­ist á fylgi milli fylk­inga. Rýnt var í stöð­una í nýjasta þætti Kjarnans.

Karen Kjartansdóttir er annar gestur Kjarnans að þessu sinni.
Karen Kjart­ans­dóttir er annar gestur Kjarnans að þessu sinni. Mynd: Hringbraut

Mun ein­hver hreyf­ing verða á milli þeirra tveggja fylk­inga sem eru til staðar í Reykja­vík, og hverf­ast ann­ars vegar í kringum Sam­fylk­ing­una og hins vegar í kringum Sjálf­stæð­is­flokk­inn? [links]Getur ein­hver flokkur galdrað fram kosn­ing­artöfra­bragð á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar og stolið nægi­lega mörgum pró­sentum til að hafa úrslita­á­hrif á hvernig næsti meiri­hluti í höf­uð­borg­inni verður.

Hvaða áhrif mun kvenna­fram­boð hafa, getur Viðreisn eða jafn­vel Framsókn stað­sett sig á milli fylk­ing­anna sem sækja ann­ars vegar fylgi sitt til gömlu Reykja­víkur og hins vegar til efri byggða og mun ein­hver þeirra flokka sem hefur þegar úti­lokað sam­starf við valda flokka snú­ast hugur?

[adspot]Þetta er á meðal þess sem rætt var í síð­asta þætti Kjarnans á Hring­braut, sem var frum­sýndur síð­ast­lið­inn mið­viku­dag kl. 21. Gestir þátt­ar­ins að þessu sinni voru almanna­tengl­arnir Karen Kjart­ans­dóttir og Andrés Jónsson. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár