Norrænir ráðherrar uggandi yfir þróun á auglýsingamarkaði

Norræn úttekt verður gerð til þess að leita lausna sem miða að tryggu og sjálf­bæru starfs­um­hverfi fjöl­miðla á Norð­ur­löndum.

Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, gat ekki fundað með norrænum kollegum sínum á Svalbarða um fjölmiðla. Staðgengill hans sat fundinn.
Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, gat ekki fundað með nor­rænum kol­legum sínum á Sval­barða um fjöl­miðla. Stað­geng­ill hans sat fund­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Norrænir ráð­herrar fjöl­miðla­mála ætla að ráð­ast í stefnu­mót­andi úttekt þar sem leiðir til þess að tryggja sjálf­bært og fjöl­breytt fjöl­miðla­lands­lag á Norð­ur­löndum.

Miklar breyt­ingar hafa orðið á fjöl­miðla­mark­aði á und­an­förnum árum eftir því sem fleiri fjöl­miðlar sækja fram á ver­ald­ar­vefnum. Vef­miðlar mega sín hins vegar lít­ils í sam­keppni um aug­lýs­ingar þegar sam­keppn­is­að­il­arnir eru hnatt­ræn vef­fyr­ir­tæki á borð við Google, Facebook og YouTube. Ráð­herr­arnir ræddu þessar breyt­ingar og mögu­legar lausnir á vax­andi vanda fjöl­miðla­fyr­ir­tækja.

Í frétta­til­kynn­ingu á vef nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­innar og Norð­ur­landa­ráðs um fund ráð­herrana er fjallað um þetta vanda­mál og bent á að meira en helm­ingur aug­lýs­inga­tekna staf­rænna fjöl­miðla fari til erlendra fyr­ir­tækja. Og vegna þess er „hætt við að mörg fjöl­miðla­fyr­ir­tæki muni leggja upp laupana“. Það geti svo haft mikil áhrif á fjöl­breytni í nor­rænu fjöl­miðla­lands­lagi.

Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra Íslands, fund­aði ekki með kol­legum sínum á Sval­barða í gær um starfs­skil­yrði fjöl­miðla og breyttar rekstr­ar­for­sendur vegna breyt­inga á aug­lýs­inga­mark­aði, heldur stað­geng­ill hans.

[links]Tilefni umræð­anna var útkoma nýrrar skýrslu um fyrstu heild­ar­grein­ingu á þróun aug­lýs­inga­mark­aðar á Norð­ur­löndum á tíma­bil­inu 2011-2016. Skýrslan heitir „Kampen om rekla­men“ á frum­mál­inu sænsku, og heitir „Baráttan um aug­lýs­ing­una“ á íslensku.

Ráð­herr­arnir eða full­trúar þeirra ræddu nið­ur­stöður skýrsl­unnar og þau áhrif sem umrædd þróun mun hafa á nor­rænt fjöl­miðla­lands­lag til fram­tíðar. Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu ráð­herrana segir:

„Við viljum tryggja sjálf­bært og fjöl­breytt fjöl­miðla­lands­lag þar sem gott jafn­vægi ríkir milli ljós­vaka­miðla í almanna­þjón­ustu, einka­rek­inna fjöl­miðla, hnatt­rænna vef­miðla og nýj­unga á sviði fjöl­miðl­unar. Það er grunn­ur­inn að breiðri og frjálsri lýð­ræð­isum­ræðu á Norð­ur­löndum. Við erum því ugg­andi yfir þró­un­inni á aug­lýs­inga­mark­aði og afleið­ingum hennar fyrir fjöl­miðla­lands­lagið. Við fylgj­umst náið með gangi mála í lönd­unum.“

„Við höfum ákveðið að ráð­ast í stefnu­mót­andi úttekt á sam­starf­inu í von um að geta greint betur hvaða aðgerða er hægt að grípa til í sam­ein­ingu. Úttektin á að inni­halda til­lögur og er vænt­an­leg fyrir næsta fund nor­rænu menn­ing­ar­mála­ráð­herr­anna.“

[adspot]

Nefnd fjallar um rekstrarumhverfi fjölmiðla

Illugi Gunn­ars­son, for­veri Krist­jáns Þórs í emb­ætti mennta­mála­ráð­herra, skip­aði nefnd um rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla í des­em­ber í fyrra. Nefndin á að fjalla um og skila til­lögum um breyt­ingar á lögum eða aðrar nauð­syn­legar aðgerðir til þess að bæta rekstr­ar­um­hverfi og tryggja að á Íslandi fái þrif­ist fjöl­breyttur mark­aður frjálsra fjöl­miðla.

Ill­ugi lagði fram þings­á­­lykt­un­­ar­til­lögu þann 3. októ­ber í fyrra um athugun á rekstr­­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Sam­­kvæmt henni átti hver stjórn­­­mála­­flokkur að skipa einn full­­trúa í nefnd­ina. Ekki náð­ist að klára afgreiðslu til­­lög­unnar áður en þingi var slitið fyrir Alþing­is­kosn­­ing­arnar í haust og þess í stað kynnti Ill­ugi það í rík­­is­­stjórn að hann myndi skipa nefnd­ina.

Í grein­­ar­­gerð með þings­á­­lykt­un­­ar­til­lög­unni kom fram að full­­trúar einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi hafi vakið athygli stjórn­­­valda á erf­ið­­leikum sem blasa við í rekstri þeirra og megi rekja til ýmissa utan­­að­kom­andi aðstæðna.

Þar megi til dæmis telja til að aug­lýs­inga­­mark­að­­ur­inn hér­­­lendis hafi ekki vaxið sem skyldi þrátt fyrir batn­andi efna­hag þjóð­­ar­innar og auk þess fari ætið stærri hluti aug­lýs­inga­fjár til erlendra stór­­fyr­ir­tækja á borð við Google og Face­­book. Þá hafi staða Rík­­is­út­­varps­ins á aug­lýs­inga­­mark­aði einnig tak­­­mark­andi áhrif á mög­u­­leika ann­­arra fjöl­miðla til að afla aug­lýs­inga­­tekna.

Vegna þess hefur verið skorað á stjórn­­völd að gera „nauð­­syn­­leg­­ar, mál­efna­­legar og tíma­­bærar breyt­ingar á íslenskri lög­­­gjöf til þess að jafna sam­keppn­is­­stöðu félaga á íslenskum fjöl­miðla­­mark­að­i“.

Uppfært: Upp­haf­lega stóð að Kristján Þór hefði fundað á Sval­barða, en hann hafði ekki tök á að vera við­staddur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

norðurlönd

Mest lesið undanfarið ár