Dvalarleyfiskort auðveldi aðgengi að rafrænum skilríkjum

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra leggur til að dval­ar­leyfiskort, útgefin af Útlend­inga­stofnun, verði bætt á lista yfir við­ur­kennd per­sónu­skil­ríki við útgáfu raf­rænna skil­ríkja.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur lagt til breytingar á reglugerð sem heimila að dvalarleyfiskort, útgefin af Útlendingastofnun, verðti tekin gild sem rafræn skilríki.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur lagt til breyt­ingar á reglu­gerð sem heim­ila að dval­ar­leyfiskort, útgefin af Útlend­inga­stofnun, verðti tekin gild sem raf­ræn skil­ríki. Mynd: Eyþór Árnason

Drög að reglu­gerð um breyt­ingu á reglu­gerð um raf­ræna auð­kenn­ingu liggur nú fyrir sam­ráðs­gátt stjórn­valda þar sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, leggur til að dval­ar­leyfiskort, útgefin af Útlend­inga­stofnun, verði bætt á lista yfir við­ur­kennd per­sónu­skil­ríki við útgáfu raf­rænna skil­ríkja.

Í umsögn á sam­ráðs­gátt stjórn­valda segir að á fundi Vel­ferð­ar­nets Suð­ur­nesja með full­trúum háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn hafi verið vakin athygli á því að hópur fólks af erlendum upp­runa geti ekki fengið raf­ræn skil­ríki, sér­stak­lega í til­viki flótta­fólks.

Í til­kynn­ingu frá háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu segir að rót vand­ans liggi í því að til við­ur­kenndra per­sónu­skil­ríkja, sem kraf­ist er við útgáfu raf­rænna skil­ríkja, telj­ast vega­bréf, öku­skír­teini og nafn­skír­teini gefin út af Þjóðská Íslands eða sam­svar­andi erlendum stjórn­völdum. Slík per­sónu­skil­ríki eru tekin af flótta­fólki við kom­una til lands­ins og því er ómögu­legt fyrir þann hóp fólks að nálg­ast raf­ræn skil­ríki.

„Þetta getur valdið veru­legu óhag­ræði fyrir þennan hóp sem á erfitt með að sækja sér ýmsa þjón­ustu án raf­rænna skil­ríkja,“ segir í umfjöllun um breyt­ingu á reglu­gerð­inni í sam­ráðs­gátt.

Aldrei fleiri umsóknir um alþjóðlega vernd

Umsóknir um alþjóð­lega vernd hafa aldrei verið fleiri og eru 2.718 það sem af er ári að því er segir í til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra, sem hækk­aði í síð­ustu viku við­bún­að­ar­stig á landa­mærum á hættu­stig vegna fjölda flótta­manna. Embættið reiknar með að umsækj­endum um alþjóð­lega vernd muni fjölda enn frekar það sem eftir lifir árs.

Flestar umsókn­irnar eru frá Úkraínu en frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst í febr­úar hafa 1.646 ein­stak­lingar með tengsl við Úkraínu sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Næst stærsti hóp­ur­inn er frá Venes­ú­ela, 537 manns, og þriðji fjöl­menn­asti hóp­ur­inn telur 119 manns sem öll hafa tengsl við Palest­ínu. Með reglu­gerð­ar­breyt­ing­unni á að auð­velda þessum hópi, sem og öðrum af erlendum upp­runa, að sækja sér ýmsa þjón­ustu.

Dvalarleyfiskort verði viðurkennd persónuskilríki líkt og vegabréf, ökuskírteini og nafnskírteini

Um er að ræða reglu­gerð nr. 100/2020 um raf­ræna auð­kenn­ingu og traust­þjón­ustu fyri raf­ræn skil­ríki. Til þess að gefa út raf­ræn skil­ríki þarf, sam­kvæmt reglu­gerð­inni, að styðj­ast við gild og við­ur­kennd per­sónu­skil­ríki.

Til slíkra telj­ast vega­bréf, öku­skír­teini, nafn­skír­teini gefin út af Þjóðskrá Íslands eða nafn­skír­teini með mynd sem gefin eru út af sam­svar­andi erlendum stjórn­völdum.

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið vill skoða þann mögu­leika að við þennan lista bæt­ist einnig dval­ar­leyfiskort, útgefin af Útlend­inga­stofnun. Dval­ar­leyfiskort eru aðeins gefin út að und­an­geng­inni ítar­legri skoðun á grund­velli reglna sem sam­ræmdar eru innan Schengen svæð­is­ins.

Í drög­unum er lögð til breyt­ing á reglu­gerð nr. 100/2020 um raf­ræna auð­kenn­ingu og traust­þjón­ustu fyrir raf­ræn við­skipti. Í drög­unum er lagt til að dval­ar­leyfiskort sem útgefin eru af Útlend­inga­stofnun telj­ist til gildra per­sónu­skil­ríkja vegna útgáfu raf­rænna skil­ríkja.

Ráðu­neytið leggur jafn­framt til að reglu­gerðin verði upp­færð með vísan til laga um raf­ræna auð­kenn­ingu og traust­þjón­ustu fyrir raf­ræn við­skipti, nr. 55/2019, en þeim var breytt með lögum nr. 18/2021 um breyt­ingu á lögum um Neyt­enda­stofu og fleiri lögum, og fer nú Fjar­skipta­stofa með fram­kvæmd eft­ir­lits sam­kvæmt lög­unum. Því er lagt til að reglu­gerð­inni verði breytt til sam­ræmis.

Hægt er að senda inn athuga­semdir í sam­ráðs­gátt til 17. októ­ber.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár