MAST rannsakar eldiskvíar á Vestfjörðum: Kafað eftir götum

Ríki­stofnunin MAST rannsakar nú hvort göt hafi komið á sjókvíar laxeldis­fyrirtækja á Vestfjörðum eftir að ætlaðir eldis­laxar veiddust í Mjólká. Karl Steinar Ósskarsson, yfirmaður fiskeldis hjá stofnunni, segir að kafað sé eftir götum en að engin hafi fundist hingað til og að verið sé að greina þá laxa sem sýni hafa verið tekin úr.

Kanna hvort göt hafi komið á sjókvíar
Kanna hvort göt hafi komið á sjó­kvíar Mat­væla­stofnun kannar nú hvort göt hafi komið á sjó­kvíar á Vest­fjörðum eftir að ætl­aðir eld­is­laxar veidd­ust í Mjólká í Arn­ar­firði. Engin göt hafa fund­ist við kaf­anir hingað til. Myndin er af þjón­ustu­báti og sjó­kví í Dýra­firði. Mynd: Stundin

Ríkis­stofnunin Matvæla­stofnun (MAST) rannsakar nú hvort göt hafi komið á einhverjar sjókvíar á suðvestanverðum Vestfjörðum eftir að ætlaðir eldis­laxar veiddust í Mjólká í Arnar­firði í sumar.  Þetta segir Karl Steinar Óskarsson, deildar­stjóri fiskseldis­deildar MAST, í svörum í tölvu­pósti til Stundarinnar. MAST vinnur nú að rannsókn málsins og greinir þá tólf laxa úr Mjólká sem stofnunin hefur tekið sýni úr. Engin göt hafa fundist hingað til. „MAST fyrir­skipaði köfun í allar kvíar á nálægum eldis­svæðum. Engin göt hafa fundist.“ 

Stundin greindi í síðustu viku frá því að umræddir laxar hafi veiðst í Mjólká í síðustu viku.  Stöðvar­stjórinn í Mjólk­árvirkjun, Leifur Jónasson, segir að hann telji líklegt að um helmingur tólf laxa sem starfs­menn virkjunarinnar veiddu sér til dundurs í ánni hafi verið eldis­laxar. 

Karl Steinar segir að rannsókn á löxunum standi nú yfir og að niður­stöður greiningar á því liggi fyrir innan tveggja vikna. „Rannsókn MAST stendur yfir. Sýni hafa verið send í DNA greiningu til að komast að uppruna þessara laxa. Niður­stöður ættu að liggja fyrir innan tveggja vikna.“ 

Í kjölfar þessarar greiningar verður hægt að fullyrða hvort og þá hversu margir þessara tólf laxa voru eldis­laxar. 

Tólf eldislaxar greindir 

Hafrannsóknarstofnun greindi frá því í fyrra að hún hefði uppruna­greint tólf eldislaxa sem veiðst hefðu í íslenskum ám á liðnum árum. Stofnuninni tókst að uppruna­greina níu eldislaxa með vissu.

„MAST lítur alvar­legum augum á öll strok eld­is­laxa“
Karl Steinar Ósk­ars­son,
yfir­maður fisk­eldis hjá MAST

Af þessum tólf voru tveir eldis­laxar sem veiddust í Mjólká og mátti rekja annan þeirra til sjóvía Arnarlax í Hringsdal í Arnar­firði. Ekki náðist að greina uppruna hins eldis­laxins með vissu. 

Slysa­sleppingar á eldis­löxum eru slæmar þar sem erfða­blöndun getur átt sér stað við villta laxa­stofninn hér á landi. Ef erfða­blöndun verður mikil getur villti íslenski laxa­stofninn hætt að vera til með tíð og tíma.  Karl Steinar segir líka að MAST líti strok eldislaxa alvarlegum augum.  „MAST lítur alvarlegum augum á öll strok eldislaxa.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓY
    Óttar Yngvason skrifaði
    Varðandi greiningu á meintum eldislöxum, þá tekur aðeins nokkrar mínútur að greina hreistursýni í smásjá til að fá staðfest hvort um er að ræða eldislax eða villtan lax. Hvað dvelur Gísla og co. hjá MAST að framkvæma þetta og upplýsa? Það er í sjálfu sér nauðsynlegt rannsóknarefni.
    Flókin erfðagreining er ágæt til viðbótar, en það er síðari áfangi.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Er á móti laxeldi í sjó. landeldi er allt annað.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár