Segir gæði vísindastarfs á Landspítala hafa hrakað á síðustu árum

Prófessor við lækna­deild Háskóla Íslands segir að öfugþróun hafi átt sér stað í vísinda­starfi á Land­spítala eftir að hann var gerður að háskóla­sjúkrahúsi árið 2000, og að ekkert skilgreint fjármagn hafi fengist til að sinna því.

Magnús Gottfreðsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.
Magnús Gott­freðs­son, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands. Mynd: HÍ/Kristinn Ingvarsson

Gæðum vísindalegra birtinga frá Land­spítalanum og stöðu klínískra heilbrigðis­vísinda í Háskóla Íslands hefur hrakað eftir að spítalinn varð að háskóla­sjúkrahúsi um aldamótin. Á sama tíma hefur ekkert skilgreint fjármagn runnið til að sinna uppbyggingu vísinda­starfs og nýsköpunar af hálfu eigenda spítalans. Þetta skrifar Magnús Gottfreðsson, prófessor í lækna­deild Háskóla Íslands, í nýjasta tölublaði Vísbendingar sem kom út á föstu­daginn.

Stóð vel að vígi um aldamótin

Í grein sinni fer Magnús yfir niður­stöðum greiningar sem norræna stofnunin NordForsk framkvæmdi á fram­leiðni og gæði rannsókna á Norður­löndum. Samkvæmt þeim minnkuðu gæði vísindalegra birtinga á Land­spítalanum á tíma­bilinu 1999-2014, en þau voru mæld eftir fjölda tilvitnana sem birtingarnar fengu.

Samkvæmt Magnúsi stóðu spítalarnir þrír sem mynduðu síðan Land­spítala vel að vígi í þessum mála­flokki undir lok síðustu aldar, en um aldamótin var vísindalegt framlag hins nýsameinaða Land­spítala mest í hópi sex háskóla­sjúkrahúsa á Norður­löndunum sem voru til skoðunar. Magnús segir einnig að klínísk heilbrigðis­vísindi hafi verið eitt sýnilegasta tromp Háskóla Íslands á erlendum vettvangi, ásamt jarð­vísindum.

Í botnsætið á 15 árum

Eftir sameiningu hafi staða Land­spítalans hins vegar versnað, en samkvæmt niður­stöðum Nordforsk voru gæði vísinda­birtinga þar mun minni en á hinum háskóla­sjúkrahúsum á Norður­löndunum sem voru til skoðunar árin 2011-2014.

Magnús bendir á að staða klínískra vísinda innan stærsta samstarfs­aðila spítalans, Háskóla Íslands, sé mjög háð því að spítalinn geti risið undir nýsköpunar- og vísinda­hlutverki sínu. Ef miðað er við alþjóð­lega samanburðar­lista Times Higher Education á háskólum hefur sú staða versnað til muna innan háskólans á síðustu árum, á meðan gæði annarra fagsviða hafi nokkurn veginn staðið í stað.

„Það tekur langan tíma að byggja upp vísinda­starf og nýsköpun, en fjár­festing í þessum mála­flokki er skyn­samleg ráðstöfun af mörgum ástæðum,“ skrifar Magnús í greininni sinni. „Ekkert skilgreint fjármagn hefur runnið til að sinna þessu lögbundna hlutverki af hálfu eiganda spítalans og samlegðar­áhrifin sem urðu til við sameininguna fyrir 20 árum voru tekin út úr starfseminni í stað þess að byggja upp vísindi og nýsköpun,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Magnúsar í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár