Síminn er að skoða að fjármagna Mílu sérstaklega

Síminn er með það skoðunar að fjármagna dóttur­félag sitt Mílu sérstak­lega, í stað þess að fjármagna samstæðu fyrir­tækisins sem eina einingu. Afkoma Símans á fyrri helmingi árs litast mjög af stjórnvalds­sekt frá Samkeppnis­eftirlitinu vegna enska boltans.

Orri Hauksson er forstjóri Símans.
Orri Hauksson er for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Síminn er með það skoðunar að fjármagna dóttur­félag sitt Mílu sérstak­lega, í stað þess að fjármagna samstæðu fyrir­tækisins sem eina einingu. Þetta kemur fram í tilkynningu með árshluta­uppgjöri Símans, sem birt var í gær.

Í tilkynningunni er haft eftir Orra Haukssyni, forstjóra Símans, að rekstur Mílu sé „stöðugur og traustur sem endranær“ og að Míla muni taka við fleiri verkefnum frá Símanum á næstu mánuðum svo sem rekstri farsíma­dreifi­kerfis og IP-nets og verða þannig stærra hlutfall samstæðunnar.

Míla á og rekur grunn­kerfi fjar­skipta á Íslandi, þ.e. kopar­kerfi , ljós­leiðara- og örbylgju­kerfi sem nær til heimila, fyrir­tækja og stofnana um land allt. Samkvæmt fjárfesta­kynningu Símans er áætlað að á bilinu 90-92 þúsund heimili á landinu verði ljóðs­leiðara­tengd í árslok.

Tekjur vaxa en stór sekt litar afkomuna

Tekjur Símans jukust um 3,2 prósent á fyrri hluta árs 2020 miðað við sama tímabil í fyrra, vegna mikils tekju­vaxtar í sjónvarps­þjónustu og upplýsinga­tækni. Tekjur Símans af bæði farsíma- og talsíma­þjónustu drógust þó saman á milli ára.

Reikitekjur frá erlendum ferða­mönnum minnkað þar sem fáir ferðamenn hafa komið. Þær lækka um 130 milljónir króna á milli ára og skýra samdráttinn í farsíma­tekjum, sem annars eru í hægum vexti.

Afkoma fyrir­tækisins var þó mun lakari en á fyrri hluta síðasta árs og litast mjög af 500 milljón króna stjórnvalds­sekt frá Samkeppnis­eftirlitinu, sem reiknast inn í uppgjörið.

Eins og áður hefur komið fram telur Síminn að ákvörðun Samkeppnis­eftirlitsins, vegna meintra brota á sáttum félagsins við eftir­litið hvað varðar útsendingar á enska boltanum, sé röng. Búist er við að áfrýjunar­nefnd samkeppnis­mála úrskurði í málinu innan skamms.

Fram kemur í fjárfesta­kynningu Símans að áhrif COVID-19 á reksturinn hafi verið minni en búist var við. Síminn hefur ekki nýtt sér nein úrræði stjórn­valda vegna heims­faraldursins og starfsemin er sögð hafa gengið hnökra­laust fyrir sig á meðan að starfs­menn unnu heima.

Auglýsinga­tekjur fyrir­tækisins hækkuðu á milli ára á síðasta ársfjórðungi og eru sagðar í takt við áætlun félagsins, sem greip til hagræðingar­aðgerða snemma í faraldrinum til að vega á móti tekju­missi. Síminn býst við því að aukið atvinnu­leysi í haust muni hafa áhrif á spurn eftir vörum fyrir­tækisins.

Hluthafar fengu 500 milljóna arðgreiðslur í apríl

Síminn greiddi hluthöfum sínum út 500 milljón króna arð í apríl­mánuði, en arðgreiðslan var samþykkt á hluthafa­fundi Símans í mars.

Hagnaður Símans á síðasta ári nam 3.070 milljónum króna og hefur félagið þá stefnu að greiða að lágmarki 50 prósent af hagnaði eftir skatt í arð eða endurkaup hluta­bréfa. Endurkaup hluta­bréfa hófust í maí og hafa þegar verið keypt bréf fyrir 900 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár