Píratar mælast næst stærstir í nýrri skoðanakönnun frá MMR

Sjálfstæðis­flokkurinn mælist með 23,5 prósent fylgi í nýrri könnun MMR, en þar í kjölfarið koma Píratar með 14,6 prósent fylgi. Framsóknar­flokkurinn væri minnsti flokkurinn sem næði inn þingmanni miðað við þessa könnun og mælist með 6,4 prósent fylgi.

Fylgi Sjálfstæðis­flokksins mælist 23,5 prósent í nýrri skoðana­könnun frá MMR og eykst um rúmt prósentu­stig frá síðustu könnun. Píratar fylgja í kjölfarið með 14,6 prósent stuðning og eykst fylgi flokksins um þrjú prósentu­stig á milli mælinga.

Fylgi Samfylkingar jókst um eitt prósentu­stig og mælist nú 13,3 prósent en fylgi Framsóknar­flokksins minnkar um tæplega þrjú prósentu­stig frá síðustu mælingu MMR og mælist núna 6,4 prósent, sem er það minnsta sem flokkurinn hefur mælst með í könnunum MMR frá síðustu kosningum árið 2017. 

Stuðningur við ríkis­stjórnina mældist 47,5 prósent og minnkar um tæp sjö prósentu­stig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 54,5 prósent. Stuðningur við stjórnina er þó enn nokkuð meiri en áður en kórónu­veiru­faraldurinn fór að geisa, en þá mældist hann 38,8 prósent, 21. febrúar.

Síðasta könnun MMR var birt 8. maí, en þessi nýja mæling á stuðningi við flokkana var gerð dagana 19.-25. maí.

Lítil hreyfing er á mældu fylgi annarra flokka, en Viðreisn mælist fjórði stærsti flokkurinn með 11,3 prósent, þar næst kemur Miðflokkurinn sem mælist með 10,8 prósent og svo koma Vinstri græn sem mælast með 10,6 prósent, einu prósentu­stigi minna en í síðustu könnun MMR.

Sósíalista­flokkur Íslands mælist með 4,1 prósent og Flokkur fólksins mælist með 3,6 prósent. Stuðningur við aðra mældist 1,8 prósent samanlagt.

Skoðana­könnunin var sem áður segir framkvæmd dagana 19.-25. maí og bárust alls 944 svör Íslendinga 18 ára og eldri sem valdir voru af handahófi úr hópi álits­gjafa MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár