Margrétarskálin

Árið 1953 var dönskum lögum breytt þannig að konur og karlar ættu sama rétt til krúnunnar, aldur í beinan legg skyldi ráða. Þetta var gert í ljósi þess að elsta barn dönsku konungs­hjónanna, Friðriks IX og Ingiríðar drottningar var stúlka, Margrét Þórhildur. Konungs­hjónin eignuðust þrjár dætur en ekki son og þar að auki var þessi laga­breyting í takt við breytta tíma.

Árið 1952 hóf ungur hönnuður, Jacob Jensen, störf hjá teiknistofunni Bernadotte og Bjørn Industridesign A/S. Jacob þessi var nýútskrifaður úr Danska hönnunar­skólanum, af iðnhönnunar­braut sem hinn þekkti arkitekt Jörn Utzon hafði sett á laggirnar. Jacob (fæddur 1926) hafði dottið út úr skóla og vann eftir það um skeið á bólstur­verkstæði föður síns. Hann varð síðar enn þekktasti iðnhönnuður Dana, einkum vegna starfa sinna hjá Bang & Olufsen.

Fyrsta verk Jacobs Jensen á teiknistofu Bernadotte og Bjørns, var að teikna skál, ætlaða til alhliða nota í eldhúsi. Þetta var akkúrat um sama leyti og verið var að breyta að dönsku ríkisarfa­lögunum og Sigvard Bernadotti, sem var bróðir Ingiríðar dana­drottningar fékk leyfi dönsku krúnunnar til að kenna skálina við Margréti ríkisarfa. Skálin fékk því nafnið Margretheskålen, Margrétar­skálin.

Fyrir­tækið Rosti, sem þá var tíu ára gamalt, tók að sér að framleiða Margrétar­skálina. Skálin, sem var steypt í móti, var gerð úr sérstöku plastefni, melamíni, og hafði marga eigin­leika umfram Bakelite efnið sem þá var mikið notað. Var miklu léttara og ekki jafn viðkvæmt. Skálarnar eru enn fram­leiddar úr þessu sama efni, það er ekki rétt að setja sjóðandi vökva í þær og þær eiga ekki erindi í örbylgju­ofninn.

Sló strax í gegn


Engan, hvorki hönn­uð­inn, vinnu­veit­endur hans né Rosti fyr­ir­tækið, hefur lík­lega grunað hví­líkt snilldar eld­hús­á­hald Jacob Jensen hafði skapað. Enn síður hefur þá grunað að 61 ári síðar hefðu selst næstum 50 millj­ónir skála. Hönn­uð­ur­inn sagði ein­hvern­tíma í við­tali að hann hefði kannski átt að tryggja sér eins og eina krónu af hverri seldri skál, en það væri nú auð­velt að vera vitur eftir á bætti hann svo við. Annars hefur hann ekki þurft að örvænta um afkom­una, er heims­þekktur hönn­uður og ekki á hor­leggj­unum eins og sagt er. Mar­grét­ar­skálin er á nútíma­lista­safn­inu MOMA í New York, meiri upp­hefð getur ekki einni eld­hús­skál hlotn­ast.

Gúmmíhringur á botni og lok eina breytingin


Mar­grét­ar­skálin var í fyrstu fram­leidd í fjórum litum, hvítum grænum, gulum og bláum og í fjórum stærðum. Núna eru stærð­irnar 10 og lit­irnir að minnsta kosti 15. Formið á skál­inni er algjör­lega óbreytt en uppúr 1960 var farið að setja gúmmí­kant, eða hring, neðan á botn­inn til að gera skál­ina stöðugri á borði.

Hvað er svona merkilegt við eina skál ?


Þessa spurn­ingu lagði eitt dönsku blað­anna fyrir fólk á förnum vegi. Allir þekktu skál­ina og svörin voru á þá leið að hún væri ein­fald­lega svo þægi­leg og hægt að nota hana til margra hluta í eld­hús­inu. "Alltaf eins og ný" sagði einn. Margir sögðu að hún fal­leg og maður fengi aldrei leiða á að hafa hana fyrir aug­unum. "Ein­fald­lega flott" sagði fólk. "Kjöt­boll­urnar bestar ef þær eru hrærðar í Margréti" sagði einn sem spurður var. Einn úr hópi við­mæl­enda sagði að eini mínus­inn við Mar­grét­ar­skál­ina væri sá að hún væri ekki lengur fram­leidd í Danmörku. Fram­leiðslan var fyrir nokkrum árum flutt til Hollands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár