Undirritun nýs loftslagssáttmála markar tímamót

Loftslags­sáttmáli verður undir­ritaður í höfuð­stöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York 22. apríl næst­komandi.

Fulltrúa stjórn­valda 150 ríkja verða við undir­ritun nýs loftslags­sáttmála í höfuð­stöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York 22. apríl næst­komandi, það er sátt­málann sem samþykktur var í París síðastliðinn desember.

Segolene Royale, umhverfis­ráðherra Frakk­lands, greindi frá þessu í dag, en hún hefur yfir­umsjón með því verkefni, fyrir hönd stjórn­valda í Frakk­landi og þeirra sem komu að Parísar­fundinum í desember, að leiða málið til lykta á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Hún hefur að undan­förnu fundað með utan­ríkis­ráðherrum og þjóðar­leiðtogum ríkja, sem hafa ábyrgð á loftslags­málum í ríkis­stjórnum stærstu ríkja heimsins.

Mikið er lagt upp úr því að fá virka þátttöku frá Banda­ríkjunum, Kína og öðrum mestu mengunar­völdum heimsins, og hafa þær þjóðir staðfest þátttöku sína í undir­rituninni um næstu helgi.

Undir­ritunin mun marka tímamót fyrir umhverfismál í heiminum og barátt­unni gegn mengun loftslags að manna­völdum. Búast má við róttækri stefnu­breytingu hjá mörgum þjóðum þegar sátt­málinn hefur verið undir­ritaður, þar sem þjóðir munu skuld­binda sig til að draga úr losun mengandi loft­tegunda og minnka verulega notkun jarðefna­eldsneytis. Búist er við því að stað­festing sátt­málans geti ennfremur haft mikil áhrif á fjár­festingar í nýsköpun sem tengist orku­iðnaði, þar sem sátt­málinn felur í sér væntingar þörfina sem þarf að uppfylla svo markmiðin geti náð fram að ganga.

Ísland hefur sett sér markmið um að draga úr losun gróðurhúsa­lofttegunda um 40 prósent fram til ársins 2013.

Kjarninn fjallaði ítarlega um ráðstefnuna í desember, en Birgir Þór Harðarson sat hana sem blaða­maður fyrir hönd Kjarnans. Hann fjallaði meðal annars um helstu áskoranir í loftslags­málunum í hlaðvarps­þætti sínum Þukli.

Um 50 þjóð­höfðingjar yrðu viðstaddir undir­ritunina. Sátt­málinn tekur gildi ef meira en 55 ríki sem bera ábyrgð á meira en 55 prósent losunar gróðurhúsa­lofttegunda hafa staðfest hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár