Að birta en gleyma svo

Réttur manna til að birta og geyma upplýsingar og sjónarmið persónu­verndar takast á í tveimur nýjum dómum Evrópu­dómstólsins. Þessir dómar geta haft ófyrirséðar afleiðingar á alla útgáfu­starfsemi og jafnvel bókasöfn.

Leitar­vélar á netinu eru bókasöfn nútíma­mannsins. Rúmur helmingur Íslendinga notar Google daglega og níu af hverjum tíu vikulega samkvæmt könnun MMR. Bókasöfn, útgáfu­fyrirtæki og fjarskipta­fyrirtæki hafa aðlagast þessari stafrænu þróun þannig að efni er nú aðgengilegt lesendum hvar sem er, hvenær sem er.

Vefurinn timarit.is er ágætt dæmi um vel heppnað verkefni af þessu tagi. Þar geta lesendur nú nálgast hátt í níu hundruð titla og fleiri en fjörutíu þúsund greinar á stafrænu formi. Vefurinn býður einnig upp á leitarsíu sem auðveldar notendum að finna efni frá upphafi útgáfu­starfsemi á Íslandi, svo sem dagblöð fram til dagsins í dag.

Timarit.is hefur án efa bætt aðgengi almennings að fjöl­miðlum fortíðarinnar. Ekki aðeins vegna þess að fólk getur nú nálgast þetta efni á netinu án endur­gjalds, heldur sömuleiðis vegna þeirra fjöl­breyttu leitar­möguleika sem síðan býður upp á.

Rétturinn til að gleymast


En ekki eru allir á eitt sáttir um hvort að efni sem teng­ist for­tíð þeirra, ást­vina og fjöl­skyldu­með­lima, eigi yfir höfuð erindi við les­endur og almenn­ing. Nú er talað um „rétt­inn til að gleym­ast“ eftir að Evr­ópu­dóm­stóll­inn stað­festi þann 13. maí að Google bæri að fjar­lægja hlekk, þar sem hægt var að nálg­ast upp­lýs­ingar um Spán­verj­ann Mario Costeja Gonzáles frá árinu 1998.

Gonzáles var ósáttur við tvær tilkynningar um nauðungar­uppboð á fasteign í hans eigu sem birtust í spænska blaðinu La Vanguardia og teknar voru upp í leitar­niðurstöðum Google. Spænska gagna­verndin (AFPD) sótti málið fyrir hans hönd og taldi að þótt La Vanguardia hefði löggilda ástæðu fyrir því að birta upplýsingarnar, bryti miðlæg söfnun og úrvinnsla slíkra upplýsinga gegn friðhelgi einkalífs, sérstak­lega þegar leitað er að nöfnun einstakra manna.

Á þetta sjónarmið féllst dómstóllinn, sem taldi leitar­lista sem þennan brjóta gegn Evrópu­tilskipun um vernd persónu­upplýsinga og sagði að „ ... þessar upplýsingar geta átt við ýmsa þætti einkalífs hans og án leitar­vélarinnar hefði verið erfitt að tengjast þeim. Netnotendur geta þar af leiðandi fengið mjög nákvæma mynd af því fólki sem leitað er að.“

Í ljósi þessa getur dómurinn haft marg­vísleg áhrif á fjöl­miðlun og eðli upplýsinga. Lesendur vefsíða geta samkvæmt honum óskað þess að hlekkir um þá verði fjar­lægðir eða faldir í leitar­vélum jafnvel þótt þær hafi upphaf­lega verið birtar með löglegum hætti. Í þessu sambandi talar Evrópu­dómstóllinn um að gæta jafnvægis, þar sem meta verði aðstæður hverju sinni og mikilvægi upplýsinganna í þjóðfélags­umræðunni. Dómurinn setur ekki skorður við söfnun og varð­veislu slíkra upplýsinga, en segir að huga verði að persónu­vernd við úrvinnslu og fram­setningu þeirra.

Þetta er stutt útgáfa af grein um þetta efni sem birtist í nýjustu útgáfu Kjarnans. Lesa má greinina í heild í nýjustu útgáfu Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár