Fjöldi látinna í Sádi-Arabíu kominn yfir 700

Nú hefur verið staðfest að 717 eru látnir eftir troðning í Mina í nágrenni helgu borgarinnar Mekka í Sádi-Arabíu í morgun. Rúmlega 800 til viðbótar eru slasaðir.

Um tvær milljónir manna eru á svæðinu í pílagríms­ferð. Að sögn yfirvalda í Sádi-Arabíu eru 1,4 milljónir útlendingar. Í dag er fyrsti dagur Eid al-Adha hátíðarinnar, sem markar endalok hajj, pílagrímsmánuðarins. Pílagrímar koma til Mina til þess að kasta steinum í einn þriggja veggja sem tákna Satan, og grýta þannig djöfulinn, sem er hluti af hajj. Í janúar árið 2006 létust 364 pílagrímar í troðningi í þessum táknræna gjörningi. Árið 1990 létust tæplega 1.500 manns í troðningi í göngum á leið til Mekka.

Reuters greinir frá því að yfirvöld í Sádi-Arabíu hafi reynt að koma í veg fyrir að hörmungar sem áður hafa átt sér stað gætu endur­tekið sig. Yfir hundrað þúsund lögreglu­menn starfi á svæðinu og eiga að geta dreift miklum mann­fjölda ef of þröngt er orðið.

Fleiri en 220 sjúkra­bílar og fjögur þúsund björgunar­menn eru á staðnum, en fólk hefur haldið áfram að streyma á staðinn.

Stjórn­völd í Íran hafa greint frá því að 43 íranskir ríkis­borgarar hafi látist í troðningnum, og hafa sakað stjórn­völd í Sádi-Arabíu um að að hafa gert mistök í öryggis­málum. Tveimur leiðum að veggjunum þar sem steinum er kastað í djöfulinn hafi verið lokað af óþekktum ástæðum og því hafi aðeins þrjár leiðir verið færar, sem hafi valdið slysinu. Eina útskýringin sé léleg stjórnun og skortur á öryggis­ráðstöfunum.

Fréttin var uppfærð eftir því sem upplýsingar um fjölda látinna og slasaðra breyttust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár