Reykvíkingar, háskólamenntaðir og kjósendur Vinstri grænna báru mest traust til Drífu

Drífa Snædal naut mests trausts kjósenda allra flokka nema Sósíalista­flokks Íslands til þess að leiða Alþýðu­samband áfram næstu tvö árin, samkvæmt niður­stöðum nýlegrar könnunar sem Gallup var falið að framkvæma.

Í könnuninni var spurt hvaða verkalýðsleiðtoga fólk treysti helst til að leiða ASÍ. Auk þessara fjögurra var nafn Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar á listanum.
Í könn­un­inni var spurt hvaða verka­lýðs­leið­toga fólk treysti helst til að leiða ASÍ. Auk þess­ara fjög­urra var nafn Krist­jáns Þórðar Snæ­bjarn­ar­sonar á list­anum. Mynd: Samsett mynd

Skoðana­könnun sem „áhuga­hópur um framtíð verkalýðs­hreyfingarinnar“ lét Gallup framkvæma fyrr í þessum mánuði sýndi að Drífa Snædal naut mests traust hjá stuðnings­fólki allra stjórn­málaflokka til þess að leiða ASÍ næstu tvö árin, nema hjá væntum kjósendum Sósíalista­flokks Íslands.

Í þeirra hópi var Ragnar Þór Ingólfsson, sem 20,9 prósent allra þeirra sem á annað borð tóku afstöðu í könnuninni sögðust treysta best til að leiða ASÍ, með mest traust, en 38 prósent kjósenda Sósíalista­flokks sögðu að þau treystu Ragnari Þór best til þess að leiða ASÍ. 32 prósent völdu Drífu, sem sagði af sér sem forseti ASÍ á meðan að verið var að framkvæma könnunina.

Í könnuninni var auk Ragnars Þórs og Drífu hægt að velja á milli verkalýðs­leiðtoganna Vilhjálms Birgis­sonar, Sólveigar Önnu Jóns­dóttur og Kristjáns Þórðar Snæbjarnar­sonar.

Væntir kjósendur Vinstri grænna báru samkvæmt könnuninni mest traust til Drífu, en 69 prósent þeirra sögðust helst treysta Drífu til þess að leiða ASÍ. Á meðal kjósenda Samfylkingar sögðust 59 prósent treysta Drífu best, en 22 prósent nefndu Ragnar Þór.

Vilhjálmur á eftir Drífu hjá kjósendum D og B

Hjá væntum kjósendum bæði Fram­sóknar og Sjálfstæðis­flokks treystu 47 prósent Drífu best til að leiða ASÍ, en hjá báðum flokkum mældist traustið næstmest í garð Vilhjálms Birgis­sonar.

29 prósent þeirra sem sögðust ætla að kjósa Sjálfstæðis­flokk sögðu að Vilhjálmi, sem er formaður Starfs­greina­sambandsins og Verkalýðs­félags Akraness, væri best treystandi til að leiða ASÍ og 21 prósent þeirra sem sögðust ætla að kjósa Framsókn voru þeirrar sömu skoðunar. Vilhjálmur hefur þó tilkynnt að hann komi ekki til með að bjóða sig fram til forseta ASÍ, og segist sjálfur vilja að Ragnar Þór taki við sem forseti ASÍ.

Örfáir í hópi væntra kjósenda þessara tveggja flokka nefndu Sólveigu Önnu Jóns­dóttur formann Eflingar, sem alls 6,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu treystu best til að leiða ASÍ.

Einungis rúmur helmingur svarenda tók afstöðu

Könnun Gallup, sem fjallað var um í Frétta­blaðinu í morgun, var lögð fyrir á netinu dagana 4.-15. ágúst. Alls voru 1.673 manns í úrtakinu og þar af svöruðu 842 þeim spurninga­lista sem lagður var fyrir.

Einungis 466 þeirra tóku þó afstöðu til spurningarinnar sem áhuga­hópurinn, sem Ólöf Helga Adolfs­dóttir ritari Eflingar hefur verið í forsvari fyrir, lét leggja fyrir, eða 55,3 prósent svarenda.

Háskólaborgarar og Reykvíkingar treystu helst Drífu

Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar, sem nálgast má í heild sinni hér, er töluverður munur á trausti til verkalýðs­leiðtoganna eftir bæði menntunar­stigi svarenda og búsetu þeirra. Þannig voru þeir svarendur sem tóku afstöðu og höfðu háskóla­próf líklegri til að treysta Drífu en aðrir, en 58 prósent þeirra sögðust best treysta Drífu til að leiða ASÍ. Hún naut svo mests stuðnings hjá 50 prósentum þeirra sem lokið hafa framhalds­skólaprófi og 38 prósent þeirra sem höfðu grunn­skólapróf treystu Drífu best, sem er öllu lægra hlutfall.

Ef horft er til búsetu kemur í ljós að svarendur búsettir í Reykjavík báru mest traust til Drífu, en 63 prósent svarenda í höfuð­borginni sögðust helst treysta Drífu til að leiða ASÍ. Í nágranna­sveitar­félögum borgarinnar sögðust 42 prósent helst treysta Drífu, en Ragnar Þór naut mest trausts 27 prósenta svarenda í Kraganum.

Í öðrum sveitar­félögum landsins, lands­byggðunum, sögðust 40 prósent svarenda helst treysta Drífu. Hjá þessum hópi svarenda sögðust 26 prósent treysta Vilhjálmi Birgis­syni best til þess að leiða ASÍ, en 20 prósent sögðust helst treysta Ragnari Þór.

Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar var hvorki marktækur tölfræði­legur munur á svörum ef horft var til kyns, aldurs né fjölskyldu­tekna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár