Freyr Eyjólfsson: Ógnarástand í París

Þessa stundina, þegar þessi orð eru skrifuð, er einskonar ógnar­ástand í París. Maðurinn sem myrti lögreglu­konu í gær og komst undan, er kominn aftur á stjá. Nú hefur hann tekið fimm manns í gíslingu í matvörubúð gyðinga við port de Vincennes. Meðal gíslanna eru börn og að minnsta kosti einn hefur særst.

Freyr Eyjólfsson.

Freyr Eyjólfsson.
Freyr Eyj­ólfs­son.

Á sama tíma er fjölmennt lögreglulið í smábænum Dammartin-en-Goele sem er um 14 km norðan við París. Þar eru Kouachi-bræðurnir í prentsmiðju með gísla. Lögreglan er að reyna ná sambandi og semja við ódæðis­mennina. Það þykir óvíst að þeir vilji semja, hugsanlega reyna þeir að drepa fleiri lögreglu­menn; þeir vilja skapa ótta og glundroða. Það er jafnvel talið að leið þeirra bræðra hafi legið á Charles de Gaulle flug­völlinn sem liggur rétt Dammartin; slíkt hefði getað skapað mikinn glundroða.

Fólk óttast frekara mannfall – jafnvel frekari hryðju­verk. Þetta er stærsta lögreglu­aðgerð í sögu lýðveldisins. Neyðarlög gilda þessa stundina og hver einasti lögreglu­þjónn í borginni er vopnaður.

Nú þykir ljóst að þessi tvö atvik tengjast og þessir menn tilheyra ef til vill sama hópnum. Ég er staddur á kaffihúsi þessa stundina í 18. hverfi. Það er ógn í loftinu, flesta setur hljóðan og andrúms­lofið er afar sérkennilegt. Það er næstum þögn í borginni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár