Forsætisráðherra Noregs: Erum á leið inn í óvissutíma

Forsætis­ráðherra Noregs, Erna Solberg, sagði á blaðamanna­fundi í dag á efnahagur Noregs væri nú kominn inn í mikið óvissu­tímabil. Ástæðan er hið gríðar­lega mikla fall á olíuverði á undan­förnum fimm mánuðum, en fatið af olíu er nú komið undir 60 Bandaríkja­dali, í fyrsta skipti frá því í byrjun árs 2009, en þá féll verðið hratt í kjölfar dýpsta punkts fjármála­kreppunnar. Eftir­spurn á heims­mörkuðum hrundi þá skömmum tíma, með tilheyrandi áhrifum á nær alla eigna­flokka.

Solberg sagði að nú væri Norðmenn komnir að vendi­punkti og þyrftu að taka afleiðingunum. Líklegt væri að þessi þróun hefði áhrif á olíu­framleiðslu í norskri lögsögu á næsta ári og að draga myndi úr henni.

Í grein norska viðskipta­vefsins Dagens Næringsliv, www.dn.no, kemur fram að forsendur fjárlaga í Noregi séu hugsanlega brostnar sökum þess hvernig þróunin hefur verið undan­farna daga, en norska krónan féll um átta prósent gagnvart evrunni í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár