Hvað þarf til að setja Bandaríkjaforseta af?

Það er tiltölu­lega einfalt mál að setja Bandaríkja­forseta af ef hann reynist skyndi­lega óhæfur til að gegna embætti sínu. Vandinn liggur hins vegar í því að það eru vara­forsetinn og ríkis­stjórnin sem verða að hafa frumkvæði að því.

Donald Trump.
Donald Trump. Hann verður átt­ræður í sumar. Mynd: AFP

Eins og nú er komið virðist ekki alveg óhugsandi að áður en síðara kjör­tímabili Trumps Bandaríkja­forseta lýkur í janúar 2029 muni stjórn­völd í Banda­ríkjunum þurfa að horfast í augu hvort hann sé í raun hæfur til að gegna embætti sínu.

Ekki af neinum pólitískum ástæðum heldur verði spurningin einfald­lega sú hvort honum hafi hrörnað svo mikið andlega og/eða líkamlega að hann geti ekki lengur tekið með vitrænum hætti þær ákvarðanir sem Bandaríkja­forseti stendur frammi fyrir á hverjum degi.

Trump sýnir nú aukin merki aldurs síns – hann verður áttræður 14. júní í sumar – og því er að minnsta kosti ástæða til að skoða þann möguleika. 

Engin ákvæði lengi vel

Í upphaflegri stjórnar­skrá Banda­ríkjanna stóð aðeins að vara­forsetinn tæki við embætti forseta ef sá síðarnefndi yrði óhæfur til að gegna því. Ekkert var hins vegar kveðið á um hver ætti að meta það eða …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi hrokafulli og hégómalegi forseti hefur sýnt og sannað að hann er ekki forseti venjulegs fólks, hann er forseti tiltölulega fárrar auðmannastéttar sem með ómerkilegu lýðskumi hefur komist upp með hreint ótrúlega hluti. Nú er boðið upp á þýfi sem BNA hefur haft af Venezuela þar sem olíuauðævi þeirrar þjóðar sem þar býr á. Það er eins og ekkert megi vera í friði. Í Ghana sem áður var nefnd Gullströndin sökum mikillra auðæva þar verður innan við 2% af arðinum af gullinu eftir í því landi. Yfir 98% rennur sem arður af gullgreftrinum þarlendis í vasa amerískra fyrirtækja. Það þykir mér einkennilegt að ekkert hefur verið fjallað um þetta mikilsverða mál sem er væntanlega hvatning fyrir Donald Trump til aukinna umsvifa á Grænlandi þar sem verður að fara með fyllstu varfærni sökum þess hver þar er margt viðkvæmt. Hættan af geislavirkni getur orðið hættuleg ef þjösnaskapurinn verður mikill sem er nokkuð líklegt miðað við framgöngu þessa umdeilda forseta sem hyggst stjórna með hervaldinu og tollagleði.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár