Tilraun til valdaráns í Tyrklandi

Flug­völlur hertekinn, brúm lokað og skot­hvellir heyrast í höfuð­borginni.

Tyrkneski herinn er sagður í fréttum erlendra fjölmiðla, þar á meðal breska ríkis­útvarpsins BBC, hafa tekið völdin víða í Tyrklandi. Þetta kom einnig fram í stuttri tilkynningu frá hernum á tyrknesku frétta­stöðinni NTV.

Yfirvöld segja að þetta sé „ólögleg aðgerð“ og það þeir sem beri ábyrgð á henni fá þyngstu refsingu fyrir. Herinn hefur ítrekað í yfir­lýsingum, að hann hafi steypt Recep Tayyip Erdogan forseta landsins af stóli, og fari nú með völdin.

Fréttir hafa borist af því í kvöld að herþotum hafi verið flogið í lágflugi yfir borginni. Ataturk-flug­völlurinn í Istanbúl hefur verið hertekinn og samgöngu­æðum í borginni hefur verið lokið af hernum. Lýst hefur verið yfir útgöngu­banni, og lögreglu­þjónar verið hand­teknir.

Þá sjást skrið­drekar á götum úti, og meðal annars í nálægt við opinberar byggingar í Istanbúl.

Erdogan forseti ræddi við sjónvarpsstöð í Tyrklandi nú í kvöld, en hann er í sumarfríi við Svartahafið. Hann notaði forritið Facetime til þess að ræða við fjöl­miðilinn, eins og sjá má hér að neðan. Hann hvatti Tyrki til þess að fara út á götur og sýna ríkis­stjórninni stuðning. Ekkert vald væri eins sterkt og vald fólksins.

Borgara­þjónusta íslenska utan­ríkis­ráðuneytisins hefur verið virkjuð vegna fregna af valda­ráninu, og er þeim tilmælum beint til íslenskra ferða­manna í Tyrklandi og Íslendinga sem búa í landinu að láta vita af sér. Flestar samskipta­leiðir aðrar en símalínur virðist lokaðar í Tyrklandi, og tekið hefur gildi útgöngu­bann í helstu borgum. Utan­ríkis­ráðuneytið beinir því til fólks að halda sig innandyra og fylgja fyrir­mælum tyrkneskra yfirvalda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár