Rússar saka Norrænu ráðherranefndina um pólitíska starfsemi

Skrif­stofu Norrænu ráðherra­nefndarinnar í Péturs­borg barst á mánudaginn bréf frá saksóknara í borginni þar sem hann krefst þess að skrif­stofan verði tafar­laust skráð sem útlenskur erindreki í Rússlandi. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Norrænu ráðherra­nefndarinnar. Samkvæmt skriflegu svari frá starfs­manni ráðherra­nefndarinnar við fyrir­spurn Kjarnans koma fram ásakanir í bréfi saksókn­arans á hendur nefndinni um að hún stundi pólitíska starfsemi í Rússlandi.

Samkvæmt rússneskum lögum ber félaga­samtökum sem stunda pólitíska starfsemi, og eru fjár­mögnuð erlendir frá, að skrá sig sem útlenskan erindrekar. Skrif­stofur ráðherra­nefndarinnar í Rússlandi hafa hins vegar haft stöðu frjálsra félaga­samtaka frá því að hún var opnuð árið 1995.

Skoða að áfrýja ákvörðun rússneskra yfirvalda

Dagfinn Høybråten, framkvæmda­stjóri ráðherra­nefndarinnar, segir ákvörðun Rússa hafa komið á óvart, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt á heimasíðu nefndarinnar. „Undan­farna tvo áratugi hefur Norræna ráðherra­nefndin átt mikið og traust samstarf við Norð­vestur-Rússland. Því kemur það flatt upp á okkur að eiga nú að skrá okkur sem útlenskan erindreka. Við skoðun nú þann möguleika að áfrýja ákvörðuninni.“


Høybråten ítrekar að skrif­stofa Norrænu ráðherra­nefndarinnar í Péturs­borg stundi enga pólitíska starfsemi í Rússlandi. Hann segir að skrif­stofan hafi starfað á grund­velli samnings við rússnesk yfirvöld sem gerður var árið 1995 þegar skrif­stofa nefndarinnar opnaði í Péturs­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár