Líkur á að skattaundanskot hafi aukist í byggingaiðnaði

Lægri endur­greiðsla virðis­aukaskatts hefur aukið líkur a skatta­undanskotum í bygginga­iðnaði, að mati Skúla Eggerts Þórðar­sonar ríkis­skattstjóra. Alls hefur beiðnum um endur­greiðslur fækkað um 60 prósent á sama tíma og umsvif í bygginga­iðnaði hafa aukist. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Þar segir að í ársbyrjun 2015 hafi endur­greiðsla virðis­aukaskatts til eigenda íbúðar­húsnæðis lækkað vegna vinnu iðnaðar­manna á húsnæði þeirra úr 100 prósentum í 60 prósent. Endur­greiðslurnar höfðu þá verið 100 prósent frá árinu 2009 í tengslum við hið svokallaða „Allir vinna“ átak. Frá því að endur­greiðslurnar voru lækkaðar hefur beiðnum um endur­greiðslur fækkað mikið, eða um 60 prósent. Það gerist á sama tíma og umsvif í bygginga­iðnaði hafa stóraukist. Því bendir allt til þess að svört vinna sé í mikilli uppsveiflu.

Þannig sleppur kaupandi að vinnu við að greiða 40 prósent af virðis­auka­skattinum og seljandi geti þá sömuleiðis sleppt því að gefa vinnuna upp til tekju­skatts. Þannig verði hið opinbera af umtalsverður tekjum. Á meðan að endur­greiðslur voru 100 prósent var hins vegar engin fjárhags­legur hvati hjá kaupanda að svíkjast undan því að borga virðis­aukaskatt og hann því líklegri til að gefa verkið upp.

Skúli Eggert veltir því fyrir sér við Frétta­blaðið hvort ekki sé rétt að hefja fulla endur­greiðslur á virðis­auka­skattinum að nýju. Þar tekur hann undir með Bjarna Benedikts­syni, fjármála- og efnahags­ráðherra, sem sagði á Alþingi á mánudag að mikilvægt væri að hafa reglum þannig að ekki væri hvati til að stinga undan satti. Í því samhengi nefndi hann sérstak­lega ofan­greindar breytingar á endur­greiðslum til eigenda íbúða­húsnæðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár