Stærsti erlendi fjárfestirinn í Íslandsbanka selur sig niður fyrir fimm prósent í bankanum

Einn þeirra sjóða sem var valinn til að vera hornsteins­fjárfestir í Íslands­banka í fyrra hefur reglulega bætt við sig eign í bankanum síðastliðið rúmt ár. Nú hefur sjóðurinn, Capital Group, hins vegar selt sig niður fyrir fimm prósent.

Íslandsbanki var skráður á markað í júní í fyrra.
Íslands­banki var skráður á markað í júní í fyrra. Mynd: Nasdaq Iceland

Capital Group, sem er fjórði stærsti eigandi Íslands­banka, hefur selt 0,11 prósent hlut í bankanum og á nú 4,92 prósent hlut. Við söluna fer eignar­hluturinn undir fimm prósent og salan því tilkynningar­skyld til Kaup­hallar.

Capital Group er á meðal tveggja erlendra sjóða sem voru valdir til að kaupa hlut í Íslands­banka í aðdrag­anda almenns útboðs á hlutum í bankanum i fyrra, en hann var í kjölfarið skráður á markað. Hinn sjóðurinn, RWC Asset Management, hafði selt þorra eignar sinnar í Íslands­banka um síð­ustu ára­mót og leyst um leið út umtals­verðan hagn­að. Capital Group hafði hins vegar verið að bæta jafnt og þétt við sig eignar­hlutum. Sjóðurinn átti 3,8 prósent hlut í fyrra­sumar en var kominn upp í 5,06 prósent í lok mars síðastliðins.

Báðir sjóðirnir voru á meðal þeirra sem fengu að taka þátt í lokuðu útboði á hlutum í Íslands­banka í mars síðastliðnum, þegar 207 fjár­festar voru valdir til að kaupa 22,5 prósent hlut í Íslands­banka með fjögurra prósenta afslætti af markaðs­virði. RWC Asset Management fékk að kaupa hluti fyrir tæp­lega tvo millj­arða króna og Capital Group keypti fyrir rúman milljarð króna.

Ríkis­sjóður Íslands er enn stærsti eigandi Íslands­banka með 42,5 prósent eignar­hlut. Þar á eftir koma þrír stærstu lífeyris­sjóðir landsins: Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins (LSR), Gildi og Lífeyris­sjóður verzlunarmanna með samtals rúmlega 20 prósent eignar­hlut.

Hlut­ur­inn hefur hækkað um sjö millj­arða

Sá hópur fjár­festa sem var val­inn til að taka þátt í lok­aða útboð­inu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka borg­aði 117 krónur fyrir hvern hlut. Heild­ar­upp­hæðin var, líkt og áður sagði, 52,65 millj­arðar króna. Það var rúm­­lega fjögur pró­­sent undir skráðu gengi bank­ans á þeim tíma og afslátt­­ur­inn rök­studdur með því að það væri alvana­­legt alþjóð­­lega þegar stór hlutur í skráðu félagi væri seldur með til­­­boðs­­fyr­ir­komu­lagi að gefa afslátt.

Við lokun mark­aða á föstudag var gengi bréfa í Íslands­banka 132,4 krón­ur, eða um 13 pró­sent yfir því verði sem hóp­ur­inn fékk að kaupa á í mars. Virði þess hlutar sem var seldur er nú því 59,6 millj­arðar króna, eða um sjö millj­örðum krónum meiri en það var í mar­s.

Ljóst er að hluti þeirra sem tóku þátt í útboð­inu hafa þegar selt hlut­ina sína með hagn­aði. Þar á meðal eru margir erlendir fjár­festar sem tóku líka þátt í almenna útboðinu í fyrra, og seldu sig hratt niður í kjölfar þess. Nokkrum vikum eftir útboðið lá fyrir að að minnsta kosti 34 fjár­festar hefði selt og að nöfn 60 fjár­festa birt­ust ekki á hlut­hafa­skrá af ýmsum ástæð­u­m.

Hlut­höfum hefur fækkað um 40 pró­sent

Ríkið hóf að selja hluti í Íslands­banka í fyrra, þegar 35 pró­sent hlutur var seld­ur, og bank­inn var skráður á markað í júní 2021. Þá voru hlut­hafar í bank­anum 24 þús­und tals­ins. Í almennu útboði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar var þátt­taka almenn­ings mikil enda þótti útboðs­geng­ið, 79 krónur á hlut, vera afar lágt miðað við efna­hags­reikn­ing bank­ans og stöðu mála á hluta­bréfa­mark­aði á þeim tíma. Á fyrsta degi við­skipta hækk­aði verðið enda um 20 pró­sent og í dag er það 68 pró­sent hærra en það var í útboð­inu.

Þegar Íslands­­­banki birti upp­­­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í lok síð­asta mán­aðar kom fram að hlut­hafar í bank­­anum séu nú 14.300 tals­ins. Þeim hefur því fækkað um 9.700 frá því í júní í fyrra, eða um 40 pró­­sent. ­Kaup­endur af þorra þeirra bréfa sem seld hafa verið eru íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­ir, í eigu íslensks almenn­ings, sem eiga að minnsta kosti sam­an­lagt um 28 pró­­sent hlut í bank­an­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár