Ragnheiður Elín ávarpar ráðstefnu um vel tengda viðskiptavininn

Opin ráðstefna í tengslum við aðalfund Samtaka verslunnar og þjónustu verður haldin á morgun

Það má segja að í ljósi frétta­umfjöllunar seinustu daga um ívilnanir til fiskeldis­félagsins Matorku að heiti ráðstefnu Samtaka verslunnar og þjónustu, þar sem Ragn­heiður Elín Árna­dóttir mun flytja ávarp, sé heldur óheppilegt. Ráðstefnan, sem fer fram á morgun á Grand Hótel, ber heitið Vel tengdi viðskipta­vinurinn.

Líkt og víða hefur komið fram gerði iðnaðar- og viðskipta­ráðherra samning við félagið í febrúar sem hljóðaði upp á 400 milljónir króna í formi afslátta af sköttum og opinberum gjöldum. Helstu eigendur félagsins eru vægast sagt vel tengdir. Einar Sveinsson er einn helsti eigandi félagsins en hann er föður­bróðir Bjarna Benedikts­sonar, fjármála­ráðherra.

Annað félag, sem er í óbeinni eigu Einars Sveins­sonar, Thorsil, hefur auk þess fengið mikla ívilnun frá íslenska ríkinu, upp á 770 milljónir króna.

Þá hefur annar stór hluthafi í Matorku gegnt ýmsum trúnaðar­störfum fyrir Sjálfstæðis­flokkinn, Eiríkur Svavarsson lögmaður. Hann gegndi veigamikilu hlutverki í InDefence-hópnum ásamt Jóhannesi Þór Skúlasyni, aðstoðar­manni Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar forsætis­ráðherra. Eiríkur veitti atvinnu­veganefnd Alþingis einnig umsögn vegna frumvarps um ívilnanir til nýfjárfestinga, án þess að nefna tengsl sín við Matorku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár