Einn áhrifamesti fjárfestirinn í heiminum er 29 ára gömul kona

Það eru kannski ekki svo margir sem kannast við nafn Tracy Britt Cool, 29 ára gamallar aðstoðar­konu Warren Buffett. En þó hefur það breyst mikið eftir að Buffett sjálfur hrósaði henni í hástert á aðalfundi félagsins sem hann hefur stýrt frá árinu 1960, Berkshire Hathaway, og sagði hana vera miklu áhrifa­meiri í fjárfestinugum félagsins heldur en hann sjálfan.

Þrátt fyrir að vera ung að árum þá hefur Cool getið sér gott orð sem greinandi og ráðgjafi. Buffett hefur líka treyst henni mörgum áhrifa­miklum stöðum þegar kemur að eigna­safni Berkshire Hathaway. Þannig er hún í stjórn matvæla­fyrir­tækisins Heinz og stjórnar­formaður fyrir­tækjanna Benjamin Moore og Oriental Trading.

Samkvæmt lista Forbes, er hún á meðal 30 einstaklinga undir þrítugu, sem hvað líklegast er að muni láta til sín kveða í fram­tíðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár