Björn Leví biður um sérstaka rannsókn á aksturskostnaði Ásmundar

Þing­maður Pírata hefur skilað inn end­ur­teknu erindi til For­sætis­nefndar en hann telur að að rann­saka þurfi allar end­ur­greiðslu­færslur á akst­urs­kostn­aði þing­manna.

Björn Leví Gunnarsson og Ásmundur Friðriksson.
Björn Leví Gunn­ars­son og Ásmundur Frið­riks­son. Mynd: Samsett.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur skilað inn end­ur­teknu erindi til For­sætis­nefndar en hann telur að að rann­saka þurfi allar end­ur­greiðslu­færslur á akst­urs­kostn­aði þing­manna. Í þetta skiptið biður hann sér­stak­lega um að end­ur­greiðslur á akst­urs­kostn­aði Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verði rann­sak­aðar.

Þetta kemur fram á facebook-síðu Björns Levís í dag.

Töluverð umræða var um málið fyrr á árinu í fjöl­miðlum en Ásmundur fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­­ur­s­­kostn­aðar í fyrra. Það þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­ur­greiðslu úr rík­­is­­sjóði vegna keyrslu sinn­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­metra í fyrra, og fékk end­ur­greitt frá rík­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­ur.

Björn Leví segir jafn­framt að síð­asta erindi hans hafi verið vísað frá á þeim for­sendum að eng­inn hefði verið til­greindur. Björn Leví seg­ist end­ur­taka erindi sitt um að rann­saka þyrfti allar end­ur­greiðslu­færslur vegna orða skrif­stofu­stjóra Alþingis. Samkvæmt Birni Leví sagði skrif­stofu­stjór­inn að skrif­stofa Alþingis hefði ekki talið það vera í verka­hring sínum að leggja mat á það hvort þing­maður ætti erindi á fund sem hann væri til dæmis boð­aður á eða hvort rétt hefði verið að hann hefði boðað til fundar. Slíkt yrði að vera í höndum þing­manns­ins sjálfs.

„Að auki, af því að síð­asta erindi var vísað frá, þá bið ég sér­stak­lega um að end­ur­greiðslur á akst­urs­kostn­aði Ásmundar verði sér­stak­lega rann­sak­aðar. Til þess að vera viss um að rann­sókn á a.m.k. einum þing­manni eigi sér stað,“ segir Björn Leví.

Ástæð­urnar sem Björn Leví gefur fyrir að benda á Ásmund sér­stak­lega eru tvær. Í fyrsta lagi vegna þess að Ásmundur er með lang­hæsta akst­urs­kostn­að­inn og í öðru lagi segir Björn Leví að fólk sem Ásmundur hafi átt að funda með hafi haft sam­band við hann og véfengt að þeir fundir hafi getað talist sem end­ur­greið­an­legur starfs­kostn­aður.

Í erindi Björns Levís segir að með vísan til ofan­greindra atriða sé þess óskað að for­sætis­nefnd taki til umfjöll­unar hvort þeir þing­menn sem vísað er til að ofan hafi brotið siða­reglur alþing­is­manna, sbr. 16. gr. siða­regln­anna vegna þeirra end­ur­greiðslna sem þeir fengu fyrir akst­urs­kostnað. Til vara sé þess óskað að athugað verði hvort Ásmundur Frið­riks­son, hafi brotið siða­reglur alþing­is­manna vegna þeirra end­ur­greiðslna sem hann fékk fyrir akst­urs­kostnað, sbr. 16. gr. siða­regln­anna. Þess sé óskað að tekin verði afstaða til þess hvort siða­reglur, hátt­ern­is­reglur eða lög hafi verið brotin þegar máls­at­hugun lýkur sam­kvæmt 17. gr. siða­reglna alþing­is­manna og hvort þurfi að vísa mál­inu áfram til þar til bærra yfir­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár