Landsnet hefur borgað ARA 172 milljónir

Landsnet, dóttur­fyrirtæki Lands­virkjunar hefur keypt þjónustu fyrir 172 milljónir hjá verkfræði­stofunni ARA. Fyrr­verandi forstjóri Landsnets vinnur nú sem sérfræðingur hjá ARA.

Landsnet hefur keypt samtals 52 verkefni af verkfræðistofunni ARA.
Landsnet hefur keypt sam­tals 52 verk­efni af verk­fræði­stof­unni ARA. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Landsnet hefur borgað verkfræði­stofunni ARA Engineering 172 milljónir fyrir sérfræði­þjónustu á síðustu sjö árum. Fyrr­verandi forstjóri Landsnets vinnur nú sem sérfræðingur hjá ARA.

Verkfræði­stofan ARA Engineering var stofnuð árið 2010 og hefur hefur á þeim tíma sinnt 52 verkefnum fyrir Landsnet. Engin þessara verkefna voru komin á með útboði, en ARA hefur tekið þátt í tveimur útboðum og fengið verkefnið í hvorugt skiptið.

Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets til ársins 2015, starfar nú sem sérfræðingur á vegum ARA. Guðmundur Ingi Ásmundsson, fyrr­verandi aðstoðar­maður Þórðar, tók við af honum sem forstjóri Landsnets.

Í samtali við Kjarnann segir Einar Snorri Einarsson, framkvæmda­stjóri Landsnets, verkefni ARA vera í samræmi við innkaupa­reglur þeirra, en mörg þessara verkefna hafi verið valin á grund­velli sérþekkingar á viðfangs­efninu.

Kostnaður þessara 52 verkefna var hæst 14,2 milljónir og lægst 50 þúsund. Alls hefur Landsnet borgað ARA Engineering tæpar 172 milljónir vegna sérfræði­verkefna á síðustu sjö árum.

Landsnet er að hluta til opinbert fyrirtæki, en eigendur þess eru Lands­virkjun, RARIK, Orkuveita Reykja­víkur og Orkubú Vestfjarða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár