Hagnaður Ísfélagsins næstum þrefaldaðist og eigendurnir fengu 1,9 milljarða króna í arð

Eitt stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins, sem er að uppi­stöðu í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og barna hennar, átti eigið fé upp á 40,8 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Fjöl­skyldan er umsvifa­mikil í fjár­fest­ingum í rekstri ótengdum sjáv­ar­út­vegi.

Guðbjörg Matthíasdóttir er stærsti eigandi Ísfélags Vestmannaeyja.
Guðbjörg Matth­í­as­dóttir er stærsti eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja. Mynd: Bára Huld Beck

Ísfélag Vest­manna­eyja hagn­að­ist um 5,3 millj­arða króna á síð­asta ári, ef miðað er við gengi Banda­ríkja­dals í lok árs 2021, en fyr­ir­tækið gerir upp í þeirri mynt. Hagn­að­ur­inn næstum þre­fald­að­ist milli ára en hann var 1,8 millj­arðar króna árið 2020 miðað við gengi Banda­ríkja­dals í lok þess árs. Veiking krón­unnar í fyrra jók hagn­að­inn, þegar hann er umreikn­aður í íslenskar krónur, lít­il­lega.

Rekstr­ar­tekjur Ísfé­lags­ins í upp­gjörs­mynt­inni juk­ust um 59 pró­sent milli ára og voru um 16,4 millj­arðar króna. Eigið fé Ísfé­lags­ins um síð­ustu ára­mót var 40,8 millj­arðar króna og jókst það um 3,5 millj­arða króna milli ára þrátt fyrir að útgerðin hafi fjár­fest í tveimur nýjum upp­sjáv­ar­skipum. Vaxta­ber­andi skuldir Ísfé­lags­ins lækk­uðu um næstum 2,6 millj­arða króna á árinu 2021 og eig­in­fjár­hlut­fall útgerð­ar­innar var 58,3 pró­sent í lok síð­asta árs.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs­reikn­ingi Ísfé­lags­ins sem var nýlega birtur í árs­reikn­inga­skrá Skatts­ins. Þar segir að góður rekstur á árinu, þar sem tekjur og afkoma juk­ust mikið frá fyrra ári, skýrð­ist „einna helst af loðnu­ver­tíð á árinu 2021 en ekki voru stund­aðar loðnu­veiðar síð­ustu tvö ár þar á undan.“

Þegar Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, und­ir­rit­aði reglu­gerð um úthlutun á stærsta loðnu­kvóta í 20 ár þann 13. októ­ber í fyrra fengu þrjár útgerðir 56,5 pró­sent af þeim loðnu­kvóta sem var úthlut­að. Ísfé­lag Vest­manna­eyja fékk mest, 19,99 pró­sent. Síld­ar­vinnslan og tengd félög komu þar á eftir með 18,5 pró­sent og Brim var í þriðja sæti með um 18 pró­sent.

Að mestu í eigu einnar fjölskyldu

Ísfé­lagið gerir út sjö fiski­skip frá Vest­manna­eyjum, fjögur upp­sjáv­ar­skip, tvö bol­fisk­skip og einn króka­bát. Helstu starfs­þættir félags­ins eru fryst­ing sjáv­ar­af­urða, fiski­mjöls- og lýs­is­fram­leiðsla og útgerð fiski­skipa. 230 starfs­menn starfa hjá fyr­ir­tæk­inu til sjós og lands, en það rekur frysti­hús og fiski­mjöls­verk­smiðjur í Vest­manna­eyjum og á Þórshöfn.

Alls eru hlut­hafar 131 tals­ins en ÍV fjár­fest­inga­fé­lag á 89 pró­sent hlut í Ísfélagi Vest­manna­eyja og tíu stærstu eig­end­urnir eiga yfir 98 pró­sent. Stærsti beini eig­andi þess er Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, sem á 91,7 pró­sent hlut í ÍV fjár­fest­inga­fé­lagi, en auk þess eiga börn hennar hlut.

Stjórn Ísfé­lags­ins lagði til á síð­asta aðal­fundi að greiddur yrði út arður upp á 15 millj­ónir Banda­ríkja­dala vegna frammi­stöðu útgerð­ar­innar á árinu 2021. Miðað við gengi í lok síð­asta árs eru það um 1,9 millj­arðar króna. Það er ívið lægri upp­hæð en Ísfé­lagið greiddi í heild í tekju­skatt á síð­asta ári, en sú upp­hæð nam tæp­lega 1,3 millj­örðum króna. Hagnaður Ísfé­lags­ins fyrir afskriftir, skatta og fjár­magns­gjöld (EBITDA-hagn­aður) var um 7,1 millj­arður króna. Af þeim hagn­aði fór því um 18 pró­sent í tekju­skatt. Ekki er til­greint í árs­reikn­ingi hvað var greitt í veiði­gjald á árinu 2021.

Stærstu eig­endur Ísfé­lags­ins eru afar umsvifa­miklir á öðrum sviðum atvinnu­lífs­ins en sjáv­ar­út­vegi. Á meðal eigna Guð­bjargar og fjöl­skyldu hennar er stór hluti í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, sem hún hefur stutt við með hluta­fjár­aukn­ingu á und­an­förnum árum sam­hliða miklum tap­rekstri útgáfu­fé­lags­ins. Auk þess á fjöl­skyldan meðal ann­ars hluti í ýmsum skráðum félög­um, allt hlutafé í ÍSAM, einu stærstu inn­­­flutn­ings- og fram­­leiðslu­­fyr­ir­tækis lands­ins og fjöl­margar fast­eignir.

Þriðjungur frosinna uppsjávaafurða fóru til Úkraínu

Í árs­reikn­ingnum er vikið að atburðum sem áttu sér stað eftir lok reikn­ings­árs­ins sem geta haft áhrif á rekst­ur­inn, nánar til­tekið inn­rás Rúss­lands í Úkraínu í lok febr­úar. Þar segir að Ísfé­lagið hafi í gegnum árin átt í tölu­verðum við­skiptum við fyr­ir­tæki í Úkraínu en um þriðj­ungur fros­inna upp­sjáv­ar­af­urða félags­ins hafa verið seld þangað síð­ast­liðin ár. „Mikil óvissa er um þróun mark­aða í Úkraínu en eins og sakir standa er erfitt að meta mögu­leg áhrif á við­skipti og fjár­hags­lega stöðu Ísfé­lags­ins vegna ástands­ins í Úkraínu. Fjár­hags­leg staða félags­ins er sterk og engin hætta á að stríðs­á­tökin hafi áhrif á rekstr­ar­hæfi þess.“

Á öft­ustu síðum árs­reikn­ings Ísfélags Vest­manna­eyja eru birt yfir­lit yfir ófjár­hags­legar upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækið, meðal ann­ars sam­fé­lags­lega ábyrgð þess. Þær upp­lýs­ingar eru nú mun ítar­legri en þær hafa áður verið. Í kafla sem ber und­ir­heitið „Mannauður“ segir meðal ann­ars: „Hjá Ísfé­lag­inu er lögð áhersla á að starfs­menn sýni heil­indi í starfi. Hvorki spill­ing né mútu­þægni er liðin og vinnur félagið að því að setja starfs­mönnum félags­ins form­legar siða­reglur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár