Mynd: Úr safni

Meta að ekkert hafi farið úrskeiðis við mælingar á loðnu þrátt fyrir að kvótinn hafi ekki allur veiðst

Haf­rann­sókn­ar­stofnun mælti með að risa­kvóta af loðnu yrði úthlutað í fyrra­haust. Ráð­gjöfin var síðar lækkuð en samt tókst ekki að veiða nema 76 pró­sent. Virði skráðra útgerða hækk­aði gríð­ar­lega í aðdrag­anda þess að til­kynnt var um ráð­gjöf­ina.

Haf­rann­sókna­stofnun metur það sem svo að ekk­ert hafi farið úrskeiðis við mæl­ingar á stærð loðnu­stofns­ins við Íslands­strendur þrátt fyrir að ekki hafi tekið að veiða nema hluta þess kvóta sem úthlutað var á grund­velli ráð­legg­ingar stofn­un­ar­innar.

Þetta kemur fram í svari stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þann 1. októ­ber 2021 lagði Haf­rann­sókna­stofnun til að gefin yrði út 904.200 tonna kvóti af loðnu á fisk­veiði­ár­inu 2021/2022.

Nokkrum mán­uðum síðar, 18. febr­úar 2022, var loðnu­ráð­gjöfin lækkuð um 34.600 tonn niður í 869.600 tonn. Hluti hans fór til Norð­manna, Græn­lend­inga og Fær­ey­inga en kvóti íslenskra útgerða var 686 þús­und tonn. Af honum tókst að veiða 521 þús­und tonn, eða 76 pró­sent úthlut­aðs kvóta.

Engum loðnu­kvóta hafði verið úthlutað í tvö ár áður en kom að þessum risa­kvóta, sem var sá stærsti í tæpa tvo ára­tugi, þannig að um gríð­ar­lega búbót var að ræða fyrir útgerðir sem fengu úthlutað loðnu og þjóð­ar­búið í heild. Áætlað er að útflutn­ings­verð­mæti fram­leiðsl­unnar hafi verið um 55 millj­arðar króna. Aðallega er um loðnu­mjöl að ræða, en á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2022 var sam­an­lagt útflutn­ings­verð­mæti mjöls og lýsis unnið úr loðnu um 77 pró­sent af heild­ar­verð­mætum útfluttra loðnu­af­urða. Á sama tíma­bili í fyrra voru mjöl og lýsi sex pró­sent af heild­ar­verð­mæt­unum.

Stærsti hlutinn af stærstu loðnunni átti að vera á leið í hrygningu

Þegar Haf­rann­sókn­ar­stofun skil­aði sinni upp­runa­legu ráð­gjöf í fyrra­haust kom fram í rök­stuðn­ingi fyrir henni að stærsti hlut­inn af stærstu loðn­unni væri á leið í hrygn­ingu. Í ráð­gjöf­inni sagði þó einnig að „Meiri óvissa var í mati á kyn­þroska­hlut­falli loðnu í mæl­ing­unni í haust­sam­an­borið við fyrri ár. Heilt yfir var loðnan komin stutt á veg með þroskun kyn­kirtla og því í sumum til­vikum erfitt að greina á milli ókyn­þroska loðnu sem mun hrygna 2023 frá kyn­þroska loðnu sem mun hrygna 2022“.

Í frétt sem birt­ist á heima­síðu Haf­rann­sókna­stofn­unar 22. mars 2022 sagði meðal ann­ars „að mik­ill munur hafi verið á milli mæl­inga á stærð hrygn­ing­ar­stofns loðnu í sept­em­ber 2021 (1834 þús. tonn) og í jan­úar/febr­úar 2022 (1213 þús. tonn að með­töldum afla fram að mæl­ingu). Mögu­legar ástæður fyrir þessum mun hafa einnig verið ræddar, en sú veiga­mesta er óvenju mikil óvissa á kyn­þroskamati í haust­mæl­ing­unni sem skap­aði meiri óvissu í mati á stærð hrygn­ing­ar­stofns­ins en alla jafna.“

Þrátt fyrir þessa óvissu á kyn­þroskamati í haust­mæl­ingum Haf­rann­sókna­stofn­unar úthlut­aði þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Kristján Þór Júl­í­us­son, kvóta til útgerða í sam­ræmi við ráð­gjöf­ina þann 13. októ­ber í fyrra. Það gerð­ist eftir síð­ustu þing­kosn­ingar en áður en að ný rík­is­stjórn, skipuð sömu flokkum og á síð­asta kjör­tíma­bili, tók við. Kristján Þór var ekki í fram­boði í síð­ustu kosn­ingum og var því hættur á þingi þegar úthlut­unin átti sér stað en beið myndun nýrrar rík­is­stjórnar á ráð­herra­stóli.

Hafði gríðarleg áhrif á markaðsvirði skráðra útgerða

Þrjú fyr­ir­tækið fengu 56,5 pró­sent af þeim loðnu­kvóta sem var úthlut­að. Ísfé­lag Vest­manna­eyja, einka­fyr­ir­tæki að mestu í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og barna henn­ar, fékk mest, 19,99 pró­sent. Síld­ar­vinnslan og tengd félög komu þar á eftir með 18,5 pró­sent og Brim var í þriðja sæti með um 18 pró­sent.

Eitt af síðustu stóru verkum Kristjáns Þórs Júlíussonar í sjávarútvegsráðuneytinu var að undirrita reglugerð um úthlutun á stærsta lóðnukvóta sem úthlutað hefur verið í næstum 20 ár. Það gerði hann 13. október í fyrra.
Eitt af síð­ustu stóru verkum Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu var að und­ir­rita reglu­gerð um úthlutun á stærsta lóðnu­kvóta sem úthlutað hefur verið í næstum 20 ár. Það gerði hann 13. októ­ber í fyrra.

Tvö þess­ara félaga, Síld­ar­vinnslan og Brim, eru skráð á hluta­bréfa­markað. Eftir til­kynn­ing­una um úthlutun kvót­ans rauk mark­aðsvirði þeirra upp.

Hækk­un­ar­hrinan hófst raunar nokkrum dögum fyrr. Þann 23. sept­em­ber 2021 var mark­aðsvirði Brim tæp­lega 108 millj­arðar króna. Næstu vik­una hækk­aði mark­aðsvirði félags­ins um 20 pró­sent og dag­inn sem upp­haf­leg loðnu­ráð­gjöf Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar var kynnt, rauk mark­aðsvirðið upp um níu pró­sent og hafði þá hækkað um 31 pró­sent á átta dögum, eða 33 millj­arða króna. Síðan þá hefur það haldið áfram að hækka og er nú 182,5 millj­arðar króna. Því hafa 74,5 millj­arðar króna bæst við mark­aðsvirðið frá 23. sept­em­ber og bréf í félag­inu því hækkað um 72 pró­sent. Ekkert félag í Kaup­höll­inni hefur hækkað nálægt því jafn mikið á umræddu tíma­bili og Brim. Það sem af er ári eru hækk­anir á bréfum Brim í sér­flokki á meðal skráðra félaga, en lang­flest félög í henni hafa lækkað umtals­vert í verði á tíma­bil­inu.

Sam­bæri­leg þróun átti sér stað með bréf í Síld­ar­vinnsl­unni. Þann 23. sept­em­ber 2021 var mark­aðsvirði félags­ins tæp­lega 116 millj­arðar króna. Næstu vik­una hækk­aði virði bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni um tæp 13 pró­sent og dag­inn áður en til­kynnt var um loðnu­kvót­ann var mark­aðsvirðið rúm­lega 130 millj­arðar króna. Daginn eftir, þegar til­kynnt var um umfang úthlut­aðs kvóta, hækk­uðu bréfin um níu pró­sent.

Í dag er mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar 162 millj­arðar króna og hefur hækkað um 46 millj­arða króna frá 23. sept­em­ber 2021.

Sam­an­lagt hefur virði Brim og Síld­ar­vinnsl­unnar hækkað um meira en 120 millj­arða króna frá þeim degi.

Besta afkoma frá upphafi

Bæði félög­in, Síld­ar­vinnslan og Brim, högn­uð­ust um rúma ell­efu millj­arða króna í fyrra. Á grund­velli þess árang­­urs greiddi Brim hlut­höfum sínum rúm­­lega fjóra millj­­arða króna í arð vegna frammi­­stöðu síð­­asta árs og Síld­ar­vinnslan greiddi sínum 3,4 millj­arða króna. Stærstu eig­endur Brim, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur (í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar for­stjóra Brim= og félög Hjálm­ars Krist­jáns­sonar (bróður Guð­mundar) fengu um tvo millj­arða króna af arð­greiðslu Brims í sinn hlut og Sam­herji, Kjálka­nes og Snæ­fugl, stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar, rúm­­lega 1,8 millj­­arða króna af arð­greiðslur hennar.

Þegar félögin birtu upp­gjör fyrsta árs­fjórð­ungs 2022 kom í ljós mikil veltu­aukn­ing. Hjá Brim var um að ræða bestu afkomu á fyrsta árs­fjórð­ungi í sögu félags­ins og skipti góð loðnu­ver­tíð þar lyk­il­máli. Velta jókst um 32 pró­sent milli ára og var 13,5 millj­arðar króna. Hagnaður var 3,8 millj­arðar króna.

Hjá Síld­ar­vinnsl­unni næstum tvö­föld­uð­ust rekstr­ar­tekjur miðað við sama árs­fjórð­ung 2021 og voru 12,9 millj­arðar króna. Hagnaður á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins var 3,5 millj­arðar króna. Ástæðan var fyrst og síð­ast fyrsta stóra loðnu­ver­tíðin í mörg ár.

Óvarlegt að draga ályktanir um ráðgjöfina

Haf­rann­sókn­ar­stofnun segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um ástæður þess að ekki tókst að veiða úthlut­uðum afla séu marg­þættar. Þar á meðal séu svæða- og tíma­tak­mark­anir norskra skipa, tím­inn sem skip gáfu sér til loðnu­veiða, óveður og frá­tafir vegna þeirra sem og óvenju­leg hrygn­ing­ar­ganga stofns­ins.

Það sé því óvar­legt að gefa sér það að afl­inn hafi ekki náðst því stærð veiði­stofns­ins, og þar með ráð­gjöfin, hafi ekki dugað fyrir heild­ar­afla­mark­inu. „Samkvæmt afla­reglu ber að nota allar þær mæl­ingar á stærð veiði­stofns­ins sem eru til hverju sinni og hafa verið metnar áreið­an­legar. Nið­ur­stöður allra „heppn­aðra” mæl­inga hafa þannig fengið jafnt vægi svo og metin óvissa þeirra við ákvörðun á afla­marki. Þessu var fylgt eftir í ráð­gjaf­ar­ferl­inu fyrir síð­ustu ver­tíð.“

Ráð­gjöfin hafi byggt á afla­reglu sem fylgt var eftir og henni beitt eins og tíðkast hefur. „Það var ein­róma álit allra þeirra sér­fræð­inga sem komu að stofn­mat­inu og ráð­gjaf­ar­vinn­unni að ekki væru for­sendur til að bregða út frá henni í þetta skiptið frekar en önnur.“

Óvissa í kynþroskamati illmetanleg

Í haust­mæl­ing­unni hafi komið upp óvissa í kyn­þroskamati á loðnu sem væri ill­met­an­leg og sem hefur verið talin óveru­leg hingað til. Ef hún eigi að skýra mun­inn milli haust- og vetr­ar­mæl­ingu þýði það að aðeins um 50 pró­sent af 2019 árgang­inum varð kyn­þroska við tveggja ára aldur (í stað 66 pró­sent). Svo lágt kyn­þroska­hlut­fall hefur aðeins sést einu sinni áður, eða hjá árgangi 1983 sem var stærsti loðnu­ár­gang­ur­inn frá upp­hafi veiða. Þessi 2019 árgangur er senni­lega stærsti árgang­ur­inn síðan 1983 og því sé ekki frá­leitt að kyn­þroska­hlut­fallið kunni að vera þetta lágt. „Hlutfall ókyn­þroska loðnu kann því vel hafa verið hærra en mat stofn­un­ar­innar frá í haust gaf til kynna og gæti því skýrt mun­inn milli haust- og vetr­ar­mæl­ingar. Hverjar eru þá afleið­ingar af þess­ari óvissu? Þess er vænst að það fáist mat á það í haust­leið­angrinum 2022 hvort hlut­fall ókyn­þroska loðnu hafi verið van­metið haustið 2021. Hafi svo verið má búast við því að meira af þeim árgangi komi til hrygn­ingar vet­ur­inn 2023 en vænta mátti. Á móti kemur að árgang­ur­inn þar á eftir (frá 2020) sem jafn­framt er met­inn yfir með­al­lagi, mun mögu­lega skila sér í lægra hlut­falli en allan jafnan til hrygn­ingar við þriggja ára aldur. Stærð­argráða þess­arar óvissu mun því mögu­lega upp­lýs­ast í haust og afleið­ing­arnar gætu orðið breyttar vænt­ingar um stærð hrygn­ing­ar­stofns­ins árið 2023 og 2024.“

Annað atriði sem bendi til þess að óvissa við kyn­þroska­grein­ingar geti skýrt mun­inn milli mæl­inga teng­ist fjölda þriggja ára ein­stak­linga, úr árgangi 2018. Hann hafi verið um sjö pró­sent af fjölda kyn­þroska loðnu í haust­mæl­ing­unni 2021, 12 pró­sent í jan­ú­ar­mæl­ing­unni og 15 pró­sent í afl­anum sem tek­inn er milli mæl­ing­anna. Afgang­ur­inn var tveggja ára, úr árgangi 2019. „Þegar tekið er til­lit til afla og nátt­úru­legra affalla þá ber mat á fjölda 2018 árgangs­ins í haust og vetr­ar­mæl­ingu mjög vel saman. Það sýnir að mun­ur­inn á mati á stærð hrygn­ing­ar­stofns­ins að hausti og vetri er fyrst og fremst til­kom­inn vegna mis­mun­andi mats á fjölda tveggja ára. Þann mis­mun teljum við tengj­ast óvissu í kyn­þroskamati.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár